Hoppa yfir valmynd

Frétt

15. maí 2015 Forsætisráðuneytið

Ríkisstjórnin styrkir hátíðarhöld vegna kjörs Vigdísar Finnbogadóttur

Ríkisstjórnin samþykki í morgun að veita 4 milljónum króna af ráðstöfunarfé sínu til hátíðardagskrár sem haldin verður á Arnarhóli sunnudaginn 28. júní nk. Hátíðin er haldin í tilefni þess að hinn 29. júní 2015 verða 35 ár liðin frá sögulegu kjöri Vigdísar Finnbogadóttur í embætti forseta Íslands. 

Fyrir viðburðinum fer Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum í samvinnu við Alþingi, Reykjavíkurborg, Framkvæmdanefnd um 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna og fjölmörg samtök. Skipuð hefur verið framkvæmdanefnd, sem mun bera ábyrgð á undirbúningi viðburðarins og mun Lilja D. Alfreðsdóttir, verkefnisstjóri í forsætisráðuneyti, taki sæti í framkvæmdanefndinni fyrir hönd stjórnvalda.

Háskóli Íslands, Reykjavíkurborg og Framkvæmdanefnd um 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna hafa heitið fjárhagslegum stuðningi við verkefnið, alls 4 til 5 milljónir króna, en áætlað er að heildarkostnaður nemi um 16-18 milljónum króna. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum