Hoppa yfir valmynd

Frétt

24. febrúar 2016 Heilbrigðisráðuneytið

Aukið öryggi sjúklinga með nýjum aðgerðum við Landspítala

Skurðaðgerð
Skurðaðgerð

Landspítali mun á næstu vikum hefja framkvæmd aðgerða sem gera kleift að loka heilaæðagúlum með æðaþræðingartækni. Nýr tækjabúnaður og ráðning sérhæfðs læknis á röntgendeild Landspítala gerir þetta mögulegt.

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra, staðfesti nýverið samning um þessa þjónustu sem gerður hefur verið milli Sjúkratrygginga Íslands og Landspítala. Aðgerðir af þessu tagi voru gerðar í sumum tilfellum hér á landi fyrir um áratug síðan og þá af erlendum sérfræðingum, en undanfarin ár hafa sjúklingar verið sendir til útlanda í meðferð af þessu tagi en aðrir hafa undirgengist opna skurðaðgerð hérlendis.

Samningurinn nær til þjónustu fyrir sjúkratryggða einstaklinga sem þurfa á þessum aðgerðum að halda. Fyrst um sinn munu erlendir sérfræðingar koma hingað til lands og vera starfsfólki æðaþræðingardeildar spítalans innan handar með aðstoð meðan þjónustan er að festa sig í sessi.

Nánar er fjallað um aðgerðirnar á vef Landspítala . Þar kemur fram að öryggi sjúklinga með sjúkdóma í æðakerfi heila- og taugakerfis muni aukast til muna með þessari nýju starfsemi.

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra segir að fimm ára áætlun um búnaðar- og tækjakaup til sjúkrahúsa sem fylgt hefur verulega aukið fjármagn til þessara mála hjá Landspítala og sjúkrahússinu  á Akureyri og verulegar kjarabætur til lækna og annars heilbrigðisfólks í samningum sé nú að skila þeim árangri sem að var stefnt: „Þetta sjáum við endurspeglast í ýmsum stórum skrefum sem verið er að taka til að efla og bæta þjónustu við sjúklinga. Samningurinn sem hér um ræðir er gott dæmi um þetta" segir Kristján Þór.

Búist er við að fyrsta aðgerðin verði á spítalanum í mars 2016. Auk kostnaðar sem fellur á Landspítala er kostnaður Sjúkratrygginga Íslands við samninginn áætlaður tæpar 100 milljónir króna. Það er þó gert ráð fyrir að samningurinn leiði til umtalsverðrar lækkunar á kostnaði þegar á heildina er litið þar sem aðgerðirnar verða nú hér á landi og ekki þarf að senda sjúklinga utan. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum