Hoppa yfir valmynd

Frétt

7. desember 2016 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Seinni úthlutun úr myndlistarsjóði 2016

Myndlistarráð úthlutaði um 13 millj. kr. í styrki til 41 verkefnis í seinni úthlutun sjóðsins á þessu ári. Sjóðnum bárust 128 umsóknir og sótt var um alls 97,5 millj. kr.

Stóru verkefnastyrkirnir að þessu sinni eru sautján talsins og eru þeim veittar samtals 6.650 þús. kr. en sá flokkur er stærstur líkt og í fyrri úthlutunum. Af þessum verkefnum eru fimm einkasýningar hér á landi og erlendis og ellefu samsýningar. Að auki hljóta tíu myndlistarmenn styrki í flokki minni sýningarverkefna að heildarupphæð 2.500 þús.kr., átta styrkir að heildarupphæð 2.600 þús. kr. fara til útgáfu- og rannsókna og 1.300 þús. kr er veitt til undirbúnings verkefna og annarra styrkja.

Hlutverk Myndlistarsjóðs er að efla íslenska myndlist með fjárhagslegum stuðningi og stuðla þannig að framgangi listsköpunar, kynningu og aukinni þekkingu á íslenskri myndlist. Myndlistarsjóður heyrir undir myndlistarráð og starfar samkvæmt myndlistarlögum og eftir reglum sem mennta- og menningarmálaráðherra setur. Sérskipaðar matsnefndir meta umsóknir og gera tillögur um úthlutanir.

Eftirfarandi verkefni hljóta styrki úr sjóðnum í seinni úthlutun ársins 2016:

Styrkir til útgáfu og rannsókna

·         Sigrún Alba Sigurðardóttir, 500.00 kr. Íslensk samtímaljósmyndun 1975-2015

·         Listasafn Reykjavíkur, 400.000 kr. Yfirlitssýning á Kjarvalsstöðum 2017

·         Helga Óskarsdóttir f.h. Artzine, 400.000 kr. Artzine vefrit

·         Lortur Framleiðslufélag, 400.000 kr. Blindrahundur

·         Heiðar Kári Rannversson, 300.000 kr. Normið er ný framúrstefna

·         Halldóra Arnardóttir, 300.000 kr. List og menning sem meðferð, Íslensk söfn og Alzheimer

·         Freyja Eilíf Logadóttir, Lind Völundardóttir, Helga Völundardóttir, 200.000 kr. Draumland, útgáfa á bók um Völund  Draumland Björnsson

·         Hildigunnur Birgisdóttir, 100.000 kr. Meðvirkni, útgáfa

Undirbúningsstyrkir og aðrir styrkir

·         Hrafnhildur Arnardóttir, 500.000 kr. Taugafold

·         Birna Bjarnadóttir, 250.000 kr. Töfrafjallið ,,Við erum hér en hugur okkar er heima”

·         Gjörningaklúbburinn, 200.000 kr. Sálnasafn, nóg til frammi

·         Myndhöggvarafélagið, 150.000 kr. Hjólið

·         Steingrímur Eyfjörð, 100.000 kr. Kalda stríðið/Geðrof/Portret

·         Leifur Ýmir Eyjólfsson, 100.000 kr. ,,Standard Portait”

Styrkir til minni sýningarverkefna

·         Skaftfell myndlistarmiðstöð, 300.000 kr. Tvær einkasýningar: Sigurður Atli Sigurðsson og Hanna Kristín Birgisdóttir

·         Anna Hrund Másdóttir, 200.000 kr. More than a feeling

·         Markús Þór Andrésson og Dorotheé Kirch, 300.000 kr. Staðarstaður – íslensk myndlist

·         Sequences, 200.000 kr. 10 ára afmælishátíð Sequences

·         Nýlistasafnið, 300.000 kr. The Primal Shelter is The Site for Primal Fears

·         Rakel McMahon, 200.000 kr. Home Run

·         Jóhanna Kristbjörg Sigurðardóttir, 300.000 kr. Jóhanna Kristbjörg Sigurðardóttir at KUNSTHALLE Sao Paulo

·         Tinna Ottesen, 400.000 kr. Innsetning í Listasafni Árnesinga

·         Leifur Ýmir Eyjólfsson og Sigurður Atli Sigurðsson, 200.000 kr. PRENT OG VINIR

·         Linn Björklund og Vala Björg Hafsteinsdóttir, 100.000 kr. Tröll

Styrkir til stærri sýningarverkefna

·         Styrmir Örn Guðmundsson og Annabelle Von Girsevald, 350.000 kr. What Am I Doing With My Life?

·         Listasafn Reykjavíkur, 700.000 kr. Ragnar Kjartansson sýning

·         Anna Hallin og Olga Bergmann, 300.000 kr. Anna Hallin og Olga Bergmann – Momentun 9 – Naturhuset

·         Kling & Bang, 600.000 kr. Opnunarsýning Kling & Bang í Marshall húsinu

·         Lilja Birgisdóttir og Jessamyn Fiore, 250.000 kr. It's easy to remember, so hard to forget

·         Una Margrét Árnadóttir og Unndór Egill Jónsson, 500.000 kr. EITT SETT

·         Ingibjörg Jóhannsdóttir, 500.000 kr. Other Hats, Icelandic Printmaking

·         Djúpavogshreppur, 500.000 kr. Rúllandi Snjóbolti 2017

·         Verksmiðjan Hjalteyri, 500.000 kr. Umhverfing, sýningardagskrá 2017 í Verksmiðjunni á Hjalteyri

·         Áslaug Thorlacius og Finnur Arnar Arnarson, 400.000 kr. Búskapur

·         Ragnheiður Gestsdóttir, 200.000 kr. Speak Nearby, Part II

·         Aðalheiður S. Eysteinsdóttir, 250.000 kr. Sýningar og verkefni 2017

·         Theresa Himmer, 200.000 kr. Speak Nearby, Part II

·         Kristín Gunnlaugsdóttir, Margrét Jónsdóttir, Valgeir Sigurðsson, 400.000 kr. Super Black

·         Einar Falur Ingólfsson, 200.000 kr. Landsýn

·         Freyja Eilíf Logadóttir f.h.Ekkisens, 300.000 kr. Ekkisens

·         Anna Líndal, 500.000 kr. Yfirlitssýning á Kjarvalsstöðum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum