Hoppa yfir valmynd

Frétt

9. október 2019 Innviðaráðuneytið

Útgjaldajöfnunarframlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hækka

Frá Ísafirði - myndHugi Ólafsson

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um að hækka útgjaldajöfnunarframlög sjóðsins vegna ársins 2019 um 400 m.kr. Áætlað útgjaldajöfnunarframlag skv. A-hluta framlaganna nemur því 9.600 m.kr. 

Áætlað framlag vegna B-hluta útgjaldajöfnunarframlaga ársins nemur 575 m.kr. en í lok ársins verður úthlutað 175 m.kr. á grundvelli umsókna frá sveitarfélögum vegna íþyngjandi kostnaðar við skólaakstur á árinu 2019 umfram tekjur. Jafnframt er áætlað að 50 m.kr. verði úthlutað vegna akstursþjónustu fatlaðs fólks úr dreifbýli. 

Samtals nema því útgjaldajöfnunarframlög 10.400 m.kr. á árinu 2019.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum