Hoppa yfir valmynd

Frétt

20. nóvember 2019 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Áform kynnt um lagafrumvarp um þjóðgarð á miðhálendi Íslands

Horft að Snæfelli - myndHugi Ólafsson

Umhverfis- og auðlindaráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga um þjóðgarð á miðhálendi Íslands. Þverpólitísk nefnd um undirbúning að stofnun þjóðgarðsins hefur unnið að áherslum sem frumvarpið mun byggja á. Áformin hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda.

Kveðið er á um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og þverpólitísk nefnd um stofnun hans hefur verið að störfum síðan vorið 2018. Í henni eiga sæti fulltrúar allra flokka á Alþingi auk tveggja fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga og fulltrúa frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og forsætisráðuneytinu. Nefndinni var m.a. ætlað að skilgreina mörk þjóðgarðsins, setja fram áherslur um skiptingu landsvæða innan hans í verndarflokka, gera tillögur að helstu áherslum í stjórnunar- og verndaráætlun og atvinnustefnu fyrir þjóðgarðinn, taka afstöðu til stjórnskipulags hans, fjalla um svæðisskiptingu og rekstrarsvæði og greina tækifæri með stofnun þjóðgarðs á byggðaþróun og atvinnulíf.

Nefndin hefur kynnt í samráðsgátt stjórnvalda hugmyndir að einstökum þáttum sem hún hefur fjallað um. Síðustu tvö áhersluatriði nefndarinnar voru kynnt í samráðsgátt í október, annars vegar umfjöllun um fjármögnun og hins vegar áherslur í lagafrumvarpi. Þá hefur nefndin staðið fyrir kynningarfundum og fundaröðum með sveitarstjórnum og hagaðilum.

Áformin um frumvarpið hafa sem fyrr segir nú verið sett í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Frestur til að skila umsögn er til og með 4. des 2019. Drög að frumvarpi um þjóðgarðinn munu einnig verða kynnt í samráðsgátt.

Áformað er að umhverfis- og auðlindaráðherra leggi frumvarpið fram á Alþingi vorið 2020.

Áform um frumvarp til laga um Hálendisþjóðgarð á Samráðsgátt

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum