Hoppa yfir valmynd

Frétt

13. október 2021 Forsætisráðuneytið

Styrkveitingar Jafnréttissjóðs Íslands frá 2016 til 2020

Frá afhendingu styrkja úr Jafnréttissjóði 18. júní sl. - mynd

Eitt hundrað milljónum króna af fjárlögum hefur verið varið ár hvert í Jafnréttissjóð Íslands á tímabilinu 2016 til 2020 og voru alls 132 verkefni styrkt á tímabilinu. Tryggt hefur verið fjármagn til sjóðsins sem felur í sér að um 60 milljónum króna verður úthlutað úr Jafnréttissjóði 2023 og 2025.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra:

„Það er ánægjulegt að sjá hvað Jafnréttissjóður Íslands hefur styrkt fjölbreytt verkefni á liðnum árum. Sjóðurinn hefur stuðlað að aukinni þekkingu og rannsóknum á jafnrétti og umræðu um jafnréttismál. Enn er þó verk að vinna og því er ánægjulegt að fjármagn til sjóðsins sé tryggt næstu ár.“

Á hátíðarfundi í tilefni af 100 ára kosningaréttarafmælis kvenna þann 19. júní 2015 samþykkti Alþingi þingsályktun nr. 13/144 um Jafnréttissjóð Íslands. Með þingsályktuninni var Jafnréttissjóður Íslands stofnaður og ákveðið að hann tæki við rannsóknarverkefnum Jafnréttissjóðs á starfstíma sínum.

Unnin hefur verið samantekt á styrkveitingum Jafnréttissjóðs þar sem styrkveitingar eru skoðaðar með tilliti til markmiða sjóðsins og fjallað um þau verkefni sem hafa hlotið hæsta styrki.

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum