Hoppa yfir valmynd
6. nóvember 2017 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Rannsókn á lífskjörum og fátækt barna

Velferðarvaktin hefur falið EDDU öndvegissetri að gera rannsókn á lífskjörum og fátækt barna á Íslandi. Niðurstöðurnar verða sambærilegar niðurstöðum lífskjararannsókna Evrópusambandins (EU Survey of Income and Living Conditions - EU-SILC).  

Í rannsókninni verður þróun lífskjara og lífsgæða barna rakin yfir tímabilið 2004-2016 með megináherslu á þrjú tímabil, þ.e. uppgangstímabilið frá 2005-2007, árin um og eftir hrun, frá 2008 til 2011 og endurreisnartímann frá 2012-2016. Staða íslenskra barna verður borin saman við stöðu annarra þjóðfélagshópa og stöðu barna í öðrum Evrópulöndum en einnig verður munurinn á milli ólíkra hópa barna greindur og helstu áhrifaþættir á lífskjör barna metnir. Niðurstöður verða settar í samhengi við helstu þjóðfélagsbreytingar sem urðu á tímabilinu og breytingar sem gerðar voru á opinberri stefnumótun og varða lífskjör barna.

Niðurstöður rannsóknarinnar verða birtar í skýrslu þar sem dregin verður upp heildstæð mynd af lífskjörum barna á Íslandi og þau sett í evrópskt samhengi. Skýrslan mun innihalda nýjar mælingar upp úr lífskjararannsókninni sem ekki hafa birst áður á Íslandi. Einnig verður þar bent á hvaða upplýsingar skortir til að bæta reglubundna gagnasöfnun sem varpar ljósi á lífskjör barna. Áætlað er að skýrslan verði gefin út í ágúst 2018 og verður gerð hennar í höndum Kolbeins Stefánssonar, félagsfræðings.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum