Hoppa yfir valmynd
23. september 2023 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Morgunverðarfundur Velferðarvaktarinnar um stöðu og aðstæður foreldra sem ekki deila lögheimili með barni

Velferðarvaktin stendur fyrir morgunverðarfundi á Hótel Reykjavík Natura mánudaginn 9. október kl. 9.00-10.30 um stöðu og aðstæður foreldra sem ekki deila lögheimili með barni. Kynntar verða helstu niðurstöður nýlegrar rannsóknar á stöðu og aðstæðum foreldra sem ekki deila lögheimili með barni.

Velferðarvaktin og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið stóðu að rannsókninni en Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands sá um framkvæmd hennar. Þá verða flutt erindi og að lokum fara fram pallborðsumræður, meðal annars með þátttöku félags- og vinnumarkaðsráðherra og dómsmálaráðherra. 

Óskað er eftir að þátttakendur skrái sig:

Dagskrá

9.00-9.20: Rannsókn á stöðu og aðstæðum foreldra sem deila ekki lögheimili með barni

Ari Klængur Jónsson, nýdoktor við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands, kynnir helstu niðurstöður

9.20-9.40: Hefur regluverk þróast samhliða breyttu fjölskyldumynstri?

Steinunn Bergmann, félagsráðgjafi, formaður Félagsráðgjafafélags Íslands, fjallar um megineinkenni íslenska kerfisins í sögulegu og alþjóðlegu samhengi

9.40-9.50: Sjónarmið Foreldrajafnréttis

Brjánn Jónsson, formaður, kynnir sjónarmið félagsins

9.50-10.30: Pallborðsumræður:

  • Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra
  • Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra
  • Brjánn Jónsson, formaður Foreldrajafnréttis
  • Gyða Hjartardóttir, umsjónar og ábyrgðaraðili SES (Samvinna eftir skilnað) á Íslandi
  • Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands

Fundarstjóri Siv Friðleifsdóttir, formaður Velferðarvaktar.

Húsið opnar kl. 8:30.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum