Hoppa yfir valmynd
16.12.2019 Innviðaráðuneytið

Framlög Jöfnunarsjóðs til stuðnings við tónlistarnám skólaárið 2019-2020

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um úthlutun framlaga vegna nemenda sem þurfa að sækja tónlistarskóla utan síns sveitarfélags fyrir skólaárið 2019-2020, á grundvelli 7. gr. reglna frá 31. ágúst 2016. Framlagið byggist á samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga um eflingu tónlistarnáms og jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms.

Framlag á hvern nemenda fyrir skólaárið 2019-2020 er 472.855 kr. og samþykktar voru umsóknir fyrir 13 nemendur. Heildarupphæð framlaga er því um 6,2 m.kr. sem greiðist í jöfnum greiðslum á 12 mánuðum. Við greiðslu framlagsins fyrir nóvember fer jafnframt fram greiðsla vegna framlaga fyrir september og október.

Efnisorð

Síðast uppfært: 8.9.2017 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum