Hoppa yfir valmynd
14.09.2023 Innviðaráðuneytið

Áætluð tekjujöfnunarframlög fyrir árið 2023 og framlög til útgjaldajöfnunar endurskoðuð

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um áætlaða úthlutun tekjujöfnunarframlaga ársins 2023. Tillagan er samþykkt á grundvelli 13. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 1088/2018. Að teknu tilliti til ráðstöfunarfjármagns sjóðsins nemur áætluð heildarfjárhæð framlaganna 1.400 m.kr.

Við útreikning framlaganna er gengið út frá hámarkstekjumöguleikum sveitarfélaga af útsvari og fasteignaskatti. Framlagið er einungis greitt hafi sveitarfélög fullnýtt heimild sína til álagningar útsvars. Fyrir 1. október koma ¾ hlutar af áætluðum framlögum til greiðslu samtals 1.050 m.kr. Uppgjör framlaganna fer fram í desember á grundvelli leiðréttrar skrár um álagðar skatttekjur sveitarfélaga.

Framlög til útgjaldajöfnunar fyrir árið 2023 endurskoðuð

Innviðaráðherra hefur einnig samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaða úthlutun framlaga til útgjaldajöfnunar úr sjóðnum á árinu 2023, skv. reglugerð nr. 1088/2018. Við endurskoðunina var tekið mið af leiðréttum hámarkstekjum á íbúa í hverju sveitarfélagi.

Efnisorð

Síðast uppfært: 8.9.2017 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum