Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 50/2013, úrskurður 16. ágúst 2013

Mál nr. 50/2013
Eiginnafn: Irmelín

Hinn 16. ágúst 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 50/2013 en erindið barst nefndinni 12. ágúst:

Eiginnafnið Irmelín (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Irmelínar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Irmelín (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum