Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 50/2014, úrskurður 30. júlí 2014

Mál nr. 50/2014
Eiginnafn: Lótus

Hinn 30. júlí 2014 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 50/2014 en erindið barst nefndinni 28. júní:

Eiginnafnið Lótus (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Lótusar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Lótus (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá. 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum