Hoppa yfir valmynd
Lokið

Framvinda verkefnisins

Komugjöld aldraðra og öryrkja í heilsugæslu voru felld niður 1. janúar 2019. Þann 1. janúar 2021 lækkuðu almenn komugjöld í heilsugæslu úr 700 kr. í 500 kr. Þá var einnig fellt niður sérstakt komugjald hjá þeim sem leita á aðra heilsugæslustöð en þar sem þeir eru skráðir. Frá sama tíma færðust skimanir fyrir leghálskrabbameini til heilsugæslunnar og greiða nú konur sem fara í skimun hjá heilsugæslunni einungis 500 kr. komugjald í stað 4.800 kr. gjalds fyrir skimun.

Greiðsluþrep í lyfjum fyrir lífeyrisþega lækkaði úr 14.500 kr. í 14.000 kr. 1. janúar 2021. Annað þrep hefst þegar lífeyrisþegi hefur greitt 14.000 kr. í lyfjakostnaði en í öðru þrepi greiða sjúkratryggingar 85% lyfjaverðs á móti 15% greiðsluhlutdeild sjúklings.

Með nýjum samningi um tannlæknaþjónustu við aldraða og öryrkja í ágúst 2018 var greiðsluþátttaka þessa hóps lækkuð til muna en þá voru framlög ríkisins til tannlæknaþjónustu við þessa hópa aukin um rúm 140%. Þann 1. janúar 2021 lækkaði greiðsluþátttaka aldraðra og öryrkja vegna tannlæknaþjónustu enn frekar. Sjúkratryggingar greiða nú 57% tannlæknakostnaðarins en stefnt er að því að það hlutfall verði komið í 75% árið 2024 í samræmi við gildandi fjármálaáætlun. 

Þann 1. júní 2021 tók gildi reglugerð sem heimilar Sjúkratryggingum Íslands að veita styrki vegna tveggja hjálpartækja af sömu gerð sem tiltekin eru í reglugerð, til barna sem eiga fasta búsetu á tveimur stöðum.

Með reglugerðarbreytingu sem tekur gildi 1. júlí 2021 verða fjárhæðir vegna kaupa á hjálpartækjum uppreiknaðar til samræmis við verðlag eftir að hafa verið óbreyttar frá árinu 2008. Árlegur útgjaldaauki vegna þessa nemur um 214 milljónum króna á ársgrundvelli.

Endurgreiðslur tannlæknakostnaðar vegna alvarlegra afleiðinga meðfæddra galla, slysa og sjúkdóma hafa tekið mið af gjaldskrá sem verið hefur óbreytt allt frá árinu 2004. Þann 1. júlí 2021 tekur gildi breyting á reglugerð nr. 451/2013 sem leiðir til þess að sjúklingar sem hér um ræðir munu fá endurgreiddan kostnað samkvæmt raunvirði í stað gjaldskrárinnar frá árinu 2004. Árlegur útgjaldaauki vegna þessa nemur um 180 milljónum króna.

Ábyrgð

Heilbrigðisráðuneytið

Kafli

Sterkt samfélag

Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum