Hoppa yfir valmynd
Lokið

Framvinda verkefnisins

Fjárveitingar til framhaldsskólanna hafa aukist mikið og nýtt reiknilíkan til fjárveitinga er komið í notkun. Þannig hafa skólarnir fengið svigrúm til eigin stefnumótunar, í samræmi við markmið ríkisstjórnarinnar. Viðurkenndum námsbrautum hefur fjölgað og þjónusta við nemendur verið bætt, t.d. stoðþjónusta á borð við geðheilbrigðisþjónustu. Grundvallarbreytingar hafa orðið á starfsnámi á framhaldsskólastigi og fyrstu lögin um lýðskóla hafa tekið gildi. Skipulega hefur tekist að draga úr brotthvarfi nemenda, sem hefur aldrei mælst lægra. Auknu fé hefur verið varið til sérstakrar íslenskukennslu fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku og Alþingi hefur samþykkt lög sem styrkja lagastoð og heimildir fagráðsráðs eineltismála. Áfram er unnið að því að bæta gæði menntatölfræði sem nýtist til m.a. stefnumótunar.

Ábyrgð

Mennta- og menningarmálaráðuneytið

Kafli

Sterkt samfélag

Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum