Hoppa yfir valmynd
Komið vel á veg

Framvinda verkefnisins

Í febrúar 2019 var undirritað samkomulag sem miðar að því að tryggja betur rétt neytenda til upplýsinga um uppruna, framleiðsluhætti, lyfjanotkun og umhverfisáhrif matvæla. Í mars 2019 var skipaður samráðshópur sem mun ráðast í átaksverkefni um merkingar og hvernig betur megi upplýsa neytendur og fyrirtæki um réttindi og skyldur. Hópurinn skilaði niðurstöðum sínum haustið 2020 og nú er unnið samkvæmt aðgerðaráætlun sem ráðherra fól starfsfólki ráðuneytisins að vinna.  Unnið er samkvæmt aðgerðaráætlun í kjölfar vinnu hópsins. Ráðuneyti sem annast verkefni samkvæmt innkaupastefnu sendu erindi til ráðherranefndar um matvælastefnu í nóvember 2020  til að gera grein fyrir stöðu verkefna.

Í innkaupastefnu matvæla fyrir ríkisaðila eru aðgerðir sem miða að því að tryggja aðgang neytenda að upplýsingum um hollustu og uppruna.

Ábyrgð

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið

Kafli

Þróttmikið efnahagslíf

Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum