Hoppa yfir valmynd
Lokið

Framvinda verkefnisins

Margvíslegar aðgerðir á öllum skólastigum eru afstaðnar. Lögum um aðgengi að háskólum var breytt til að jafna stöðu bók- og verkmenntaðra og stutt við þróun nýrra námsbrauta í framhalds- og háskólum. Grundvallarbreyting var gerð á iðn- og verknámskerfinu, reglum um vinnustaðanám breytt og rafræn ferilbók innleidd til að bæta þjónustu við nemendur og auka gæði námsins. Kennsluakademía opinberu háskólanna var stofnuð 2021 og unnið er að þróunarverkefni um að auka gæði náms og námsumhverfis í háskólum. Stuðningur hefur aukist við umsóknir akademískra starfsmanna í samkeppnissjóði. Allt nýtt námsefni fyrir grunnskóla er nú gefið út rafrænt og sérstök áhersla er á útgáfu námsefnis fyrir nemendur sem nota táknmál og nemendur með annað móðurmál en íslensku. Menntarannsóknarsjóður var stofnaður, Nýsköpunarsjóður námsmanna efldur og Verksmiðjan - nýsköpunarkeppni fyrir nemendur 8.-10. bekkjar var gangsett. Stafrænar smiðjur (FabLab) í skólum efldar og þeim fjölgað.

Ábyrgð

Mennta- og menningarmálaráðuneytið

Kafli

Sterkt samfélag

Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum