Hoppa yfir valmynd
Lokið

Framvinda verkefnisins

Markmið

Mótuð verður flugstefna þar sem horft er til lengri tíma og rík áhersla lögð á að alþjóðaflugvellir landsins mæti sem best þörfum flugrekanda fyrir varaflugvelli og hliðum inn til landsins verði fjölgað til að efla ferðaþjónustu.

Staða

Fyrsta flugstefnan var kynnt á árinu 2020 og samþykkt samhliða endurskoðaðri samgönguáætlun. Settur hefur verið upp aðflugsbúnaður á flugvellinum á Akureyri sem er mikilvægur öryggisbúnaður fyrir millilandaflug. Þá er unnið að stækkun flugstöðvar og flughlaði á Akureyri sem styður við og greiðir fyrir beinu millilandaflugi til Akureyrar. Miðað er við að framkvæmdir við flugstöðina hefjist á árinu 2021. Loks er miðað við að yfirlag verði endurnýjað á Egilsstaðaflugvelli 2021 og sett þar upp aðflugsljós. Framkvæmdin styður við millilandaflug til vallarins og styrkir hann sem varaflugvöll fyrir Keflavíkurflugvöll

Ábyrgð

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið

Samstarfsráðuneyti

Dómsmálaráðuneytið og avinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið

Kafli

Sterkt samfélag

Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum