Hoppa yfir valmynd
Lokið

Framvinda verkefnisins

Þann 11. júní 2018 var samþykkt þingsályktun nr. 26/148 um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku, með áherslum í þessa veru. Kerfisáætlun Landsnets hefur síðan þá tekið mið af þeim áherslum, í samræmi við rafokulög. Forgangsröðun mikilvægra framkvæmda.

Áherslur úr þingsályktun þegar komnar til framkvæmda. Landsnet áætlar framkvæmdir upp á 80 milljarða króna á næstu árum. Sérstök greining liggur fyrir á möguleikum jarðstrengja. Samþykkt og fjármagnað 600 m.kr. átak í þrífösun og jarðstrengjavæðingu dreifikerfis raforku á næstu 5 árum, þannig að því lúki 2025. Breyting á lögum um jöfnun dreifikostnaðar samþykkt á haustþingi 2020 sem tryggir, ásamt fjármálaáætlun, viðbótarframlög í jöfnun dreifikostnaðar í þéttbýli og dreifbýli þannig að fullri jöfnun er náð frá og með september 2021.  Að frumkvæði ANR var lagt fram á haustþingi 2020 frumvarp til laga um einföldun og aukna skilvirkni í leyfisveitingarferlum vegna framkvæmda í flutningskerfi raforku. Og sérstöku stöðugildi bætt við hjá Skipulagsstofnun vegna þeirra mála.

Ábyrgð

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið

Samstarfsráðuneyti

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið

Kafli

Sterkt samfélag

Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum