Málefni fatlaðs fólks í alþjóðlegu ljósi - erindi
Þann 15. mars 2012 efndi velferðarráðuneytið til málþings um skýrslu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og Alþjóðabankans um málefni fatlaðs fólks á alþjóðavísu, World Report on Disability á Grand Hóteli Reykjavík. Aðalfyrirlesari var Dr. Tom Shakespeare, sérfræðingur hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni en auk hans voru fulltrúar frá Embætti landlæknis, forsætisráðuneytinu, innanríkisráðuneytinu, Landsamtökunum Þroskahjálp, Rannsóknasetri í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands og Öryrkjabandalagi Íslands með stutt innlegg um stöðu mála og þýðingu skýrslunnar fyrir Ísland en málþingið var haldið í samvinnu við þessa aðila auk Mannréttindaskrifstofu Íslands.
- Setning
Lára Björnsdóttir, fundarstjóri - Ávarp Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra
- Fyrirlestur Tom Shakespeare (60Mb, hljóðskrá Mp3 - enska)
Kynning á alþjóðaskýrslunni um fötlun (World Report on Disability)
Tom Shakespeare, sérfræðingur hjá WHO
Hvaða þýðingu hefur alþjóðaskýrslan um fötlun fyrir Ísland?
Stutt innlegg og umræður
- Héðinn Unnsteinsson, stefnumótunarsérfræðingur í forsætisráðuneytinu
- María Rún Bjarnadóttir, lögfræðingur í innanríkisráðuneytinu
- Sveinn Magnússon, skrifstofustjóri í velferðarráðuneytinu
- Geir Gunnlaugsson, landlæknir
- Gerður A. Árnadóttir, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar
- Guðmundur Magnússon, formaður Öryrkjabandalags Íslands
- Rannveig Traustadóttir, prófessor í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands
Sjá einnig: Fötlun og aðstæður fatlaðs fólks á alþjóðavísu