Hoppa yfir valmynd
21. október 2022 Matvælaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Auglýst eftir umsóknum í Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóð

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Sýklalyfjaónæmis- og súnusjóði. Sjóðurinn er fjármagnaður af matvælaráðuneyti og heilbrigðisráðuneyti, og renna samtals 30 milljónir kr. í sjóðinn árlega.

Tilgangur sjóðsins er að fjármagna verkefni undir formerkjum „Einnar heilsu“ (e. One Health) í baráttunni gegn sýklalyfjaónæmi. Sjóðurinn starfar í samræmi við þingsályktun nr. 40/149 um aðgerðaáætlun um matvælaöryggi og vernd búfjárstofna.

Auglýst er eftir eftirfarandi umsóknum:

  • Umsóknum um styrki til grunnrannsókna í sýklalyfjaónæmi. 

Í styrkumsókn skal m.a. koma fram: Markmið verkefnis, fjárhæð sem sótt er um í sjóðinn, framkvæmda- og kostnaðaráætlun, áætlun um nýtingu fjármagns sem sótt er um, rannsóknaleyfi og hvernig nýta megi niðurstöður til að draga úr sýklalyfjaónæmi. Sótt skal um í nafni einstaklings, stofnunar eða starfseiningar.

Úthlutanir sjóðsins eru tvisvar á ári og rennur umsóknarfrestur út 1. desember 2021.

  • Umsóknum um styrki til þess að fjármagna tilteknar skimanir fyrir ónæmum sýklum.

Einungis verða fjármagnaðar skimanir sem eru umfram lögbundnar skimanir, t.d. tilteknar skimanir í matvælum, sauðfé, hrossum, gæludýrum, sníkjudýrum og umhverfi.

Í styrkumsókn skal m.a. koma fram skimunar- og kostnaðaráætlun og rökstuðningur fyrir mikilvægi verkefnisins.

Úthlutanir sjóðsins eru einu sinni á ári og rennur umsóknarfrestur út 1. desember 2021.

  • Umsóknum um styrki til þess að fjármagna umframkostnað vegna rannsókna í almannaþágu í því skyni að rekja uppruna sýkla sem dreifast á milli manna og dýra (súnur) í þeim tilvikum þegar upp koma hrinur, hópsýkingar eða faraldrar. 

Umsóknir geta borist sjóðnum allt árið um kring og verða afgreiddar á fundi sjóðsstjórnar.

Í styrkumsókn skal m.a. koma fram lýsing á atburðinum og rannsóknaáætlanir viðkomandi stofnana auk frumrits reikninga vegna rannsókna sem áritaðir eru af yfirdýralækni eða sóttvarnalækni.

Úthlutanir sjóðsins eru eftir þörfum.

Umsækjendur skulu sækja um styrk á rafrænu formi á eyðublaðavef Stjórnarráðsins á slóðinni https://minarsidur.stjr.is

Nánari upplýsingar um sjóðinn má finna hér.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum