Hoppa yfir valmynd
9. febrúar 2023 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Grænlandssjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki

Stjórn Grænlandssjóðs auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum á árinu 2023.

Grænlandssjóður er starfræktur í samræmi við lög nr. 108/2016 og hlutverk hans er að efla samskipti Grænlands og Íslands. Sjóðurinn veitir styrki til kynnisferða, námsdvalar, listsýninga, íþróttaviðburða og annarra málefna á sviði menningar, menntunar og vísinda, sem geta stuðlað að auknum samskiptum Grænlendinga og Íslendinga.

Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki til verkefna sem uppfylla framangreind skilyrði. Veittar eru 3,0 millj. kr. úr sjóðnum á þessu ári.

Umsóknum óskast beint til stjórnar Grænlandssjóðs og sendar menningar- og viðskiptaráðuneyti, Sölvólsgötu 7, 101 Reykjavík, eða til [email protected] fyrir 17. mars 2023.

Einungis verður tekið við umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum en nánari upplýsingar um sjóðinn svo og eyðublöð má finna á vefsíðu sjóðsins hjá menningar- og viðskiptaráðuneytinu.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum