Hoppa yfir valmynd
2. október 2023 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

María Rut Reynisdóttir ráðin framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar

Stjórn Tónlistarmiðstöðvar Íslands hefur ráðið Maríu Rut Reynisdóttur, skrifstofustjóra menningarmála hjá Reykjavíkurborg sem framkvæmdastjóra nýrrar Tónlistarmiðstöðvar. Tónlistarmiðstöð er stofnuð með það að markmiði að verða einn af hornsteinum íslensks tónlistarlífs og -iðnaðar og með henni er stigið stórt skref í áttina að því að veita listgreininni aukið vægi og til að greiða leið íslensks tónlistarfólks, innan lands sem utan. Tónlistarmiðstöðin var formlega stofnuð þann 15. ágúst sl.

María Rut Reynisdóttir hefur frá árinu 2008 helgað sig störfum í listum og menningu, einkum tónlist, og hefur víðtæka reynslu sem menningarstjórnandi og sérfræðingur í menningarmálum. María var umboðsmaður Ásgeirs Trausta árin 2012 - 2017 og framkvæmdastjóri Íslensku tónlistarverðlaunanna um fjögurra ára skeið. Árið 2017 hóf hún störf hjá Reykjavíkurborg og leiddi starf Tónlistarborgarinnar Reykjavíkur á mótunarárum verkefnisins eða frá 2017 til 2022. Hún starfar nú sem skrifstofustjóri menningarmála á menningar- og íþróttasviði Reykjavíkurborgar.

„Það er einstaklega spennandi áskorun að fá að leiða nýja Tónlistarmiðstöð og vinna að hag íslenskrar tónlistar um land allt sem og erlendis. Stofnun Tónlistarmiðstöðvar er stórt skref fyrir íslenskt tónlistarlíf og þar sameinast Útón, Tónverkamiðstöð og hið nýja Inntón undir einum og sama hattinum þar sem unnið verður að því að efla allar hliðar tónlistarlífsins,“ er haft eftir Maríu Rut í tilkynningu frá Tónlistarmiðstöð.

„Það er mikill fengur að fá Maríu Rut til að leiða starfsemina Hún hefur mikla yfirsýn yfir greinina og hún nýtur trausts þvert á stefnur og strauma, segir Einar Bárðarson formaður stjórnar Tónlistarmiðstöðvarinnar. Stjórn hennar skipa auk hans þau Sólrún Sumarliðadóttir, Ásmundur Jónsson, Guðrún Björk Bjarnadóttir, Gunnar Hrafnsson, Páll Ragnar Pálsson og Sigrún Grendal.

María sat í stjórn Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss 2022 - 2023 og var um tíma sendiherra Norræna menningarsjóðsins hér á landi. María var annar tveggja höfunda skýrslunnar um áhrif Covid á íslenskan tónlistariðnað sem kom út árið 2020 og hún sat í starfshóp um stofnun tónlistarmiðstöðvar sem menningar- og viðskiptaráðherra skipaði árið 2021. María er útskrifaður KaosPilot frá KaosPilot-skólanum í Árósum í Danmörku (Enterprising leadership and creative project, process and business design) og er að auki með BA-gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands.

Tónlistarmiðstöð er sjálfseignarstofnun sem rekin er á einkaréttarlegum grunni með sjálfstæðri fjárhagsábyrgð og starfar samkvæmt sérstakri skipulagsskrá sem stjórn setur og staðfestir. Stofnaðilar Tónlistarmiðstöðvar eru STEF, Félag hljómplötuframleiðenda, Félag íslenskra hljómlistarmanna, Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum og Tónskáldafélag Íslands, auk menningar- og viðskiptaráðherra f.h. ríkissjóðs. Öll félögin eiga fulltrúa í stjórninni. Tónlistarmiðstöð starfar samkvæmt nýjum tónlistarlögum, nr. 33/2023.

Sjá einnig: Tónlistarmiðstöð formlega stofnuð og ný stjórn kynnt

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum