Hoppa yfir valmynd
10. nóvember 2023 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Vinnum gullið – ný staðsetning vegna mikillar aðsóknar

Ráðstefnan Vinnum gullið – ný stefna í afreksíþróttum á Íslandi hefur verið flutt í Silfurberg í Hörpu vegna mikillar aðsóknar. Á ráðstefnunni verða kynnt áform um eflingu afreksíþróttastarfs á Íslandi.

Ýmsum spurningum er ósvarað um hvernig bæta megi fyrirkomulag afreksíþróttastarfs og styðja betur við afreksíþróttafólk. Bætt umgjörð íþróttastarfs kallar á aðkomu fjölbreyttra aðila s.s. íþróttasambanda, -héraða og -félaga, fræðasamfélagsins, þjálfara, íþróttafólks og sömuleiðis foreldra sem gjarnan leggja mikinn tíma og fé til að styðja við íþróttaiðkun barna sinna. Leitast verður við að fá fram sem flest sjónarmið til að finna heildstæða útfærslu sem tekur mið af þörfum allra sem koma að afreksíþróttastarfi.

Starfshópur mennta- og barnamálaráðherra mun vinna áfram með niðurstöðurnar og taka mið af þeim í tillögum sínum.

Ráðstefnan er öllum opin en það þarf að skrá sig. Mennta- og barnamálaráðuneytið hvetur öll áhugasöm um íþróttir og afreksstarf til að mæta.

Streymi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum