Hoppa yfir valmynd
16. janúar 2024 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Yfir 60% skráð kílómetrastöðu

Yfir 60% þeirra sem eiga rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbíla hafa nú skráð kílómetrastöðu á Mínum síðum Ísland.is eða í Ísland.is appinu og eru skráningarnar orðnar rúmlega 29.000. Um áramótin tók gildi kílómetragjald fyrir notkun slíkra bíla og hafa eigendur frest til 20. janúar til að skrá kílómetrastöðuna.

Kílómetragjaldið byggist á fjölda ekinna kílómetra og því munu þeir greiða sem nota vegakerfið. Gjaldið verður 6 kr/km fyrir rafmagns- og vetnisbíla en 2 kr/km fyrir tengiltvinnbíla.

Fyrsti gjalddagi vegna kílómetragjalds er 1. febrúar og eindagi 14 dögum síðar. Þeir sem ekki skrá bíla sína fyrir 20. janúar fá reikning fyrir áætlaðri notkun sem miðast við meðalakstur fólksbíls og eru rétt rúmlega sjö þúsund krónur á mánuði. Með skráningu á kílómetrastöðu á Ísland.is munu greiðslur endurspegla notkun bíls.

Áfram stutt við kaup á rafbílum

Stjórnvöld munu halda áfram að styðja við kaup á rafmagns- og vetnisbílum þó að form stuðningsins hafi breyst um áramótin. Veittur verður beinn stuðningur við kaup á slíkum bílum í stað ívilnunar í virðisaukaskatti. Orkusjóður mun annast afgreiðslu styrkjanna. Umsækjendur sækja um með stafrænum hætti á Mínum síðum á Ísland.is. Allar nánari upplýsingar um styrkafgreiðslu er að finna á vef Orkusjóðs og á Ísland.is. Því verður áfram verulegur ávinningur af orkuskiptum fyrir bíleigendur.

Nánar:

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum