Hoppa yfir valmynd
11. mars 2024 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Ísland.is með sjö tilnefningar til SVEF

Verkefni á vegum Stafræns Íslands fá sjö tilnefningar til Íslensku vefverðlaunanna
Verkefni sem Stafrænt Ísland vinnur að svo Ísland verði leiðandi í opinberri, stafrænni þjónustu fá sjö tilnefningar til Íslensku vefverðlaunanna, sem Samtök vefiðnaðarins (SVEF) veita á föstudag.

Þar á meðal er Ísland.is appið tilnefnt í flokknum App ársins og Ísland.is og Mínar síður Ísland.is í flokknum opinber vefur ársins. Aðsókn að bæði vefnum og appinu hefur stóraukist. Árið 2023 fékk Ísland.is hátt í 18 milljón heimsóknir og þeim sem flytja efni sitt á vefinn fjölgar stöðugt. 25 stofnanir og opinber verkefni höfðu hlutt efni sitt á Ísland.is í lok 2023 en búast má við að þau verði komin yfir 50 í lok árs. Þá hafa um 140 þúsund sótt Ísland.is appið.

Ríkisstjórnin hefur sett sér það markmið að Ísland verði í fremstu röð í opinberri, stafrænni þjónustu og sýna kannanir að vinnunni miðar vel áfram. Stafræn þjónusta er þegar farin að einfalda líf fólks, spara tíma á sama tíma og þjónustan batnar.

Tilnefningarnar eru:

  • Ísland.is appið í flokknum App ársins
  • Ísland.is í flokknum Opinber vefur ársins
  • Mínar síður Ísland.is í flokknum Opinber vefur ársins
  • Ísland.is í flokknum Efnis- og fréttaveita ársins
  • Stafræn stæðiskort í flokknum Samfélagsvefur
  •  Mínar síður Ísland.is í flokknum Stafræn lausn
  •  Stafræn stæðiskort í flokknum Stafræn lausn

Fimmtíu verkefni eru að þessu sinni tilnefnd en verðlaun verða veitt í 10 flokkum. Fjöldi flokkanna endurspeglar breidd þeirra verkefna sem vef- og tækniiðnaðurinn á Íslandi kemur að.

Í fyrra var Stafrænt Ísland tilnefnt til sjö verðlaunanna á Íslensku vefverðlaunum og fékk tvenn verðlaun.

Auk tilnefninga Stafræns Íslands hlaut vefurinn Vegir okkar allra tilnefningu sem markaðsvefur ársins, en verkefnastofa um samgöngugjöld í fjármála- og efnahagsráðuneytinu stendur að vefnum.

Dómnefnd veitir þar að auki í fyrsta skipti sérstök heiðursverðlaun. Þau verðlaun eru veitt verkefnum sem dómnefnd telur hafa skarað fram úr öðrum verkefnum.
Íslensku vefverðlaunin verða veitt í 23. skipti föstudaginn 15.mars. Samtök vefiðnaðarins (SVEF) eru fagsamtök þeirra er starfa að vefmálum á Íslandi en það er SVEF sem stendur fyrir verðlaununum.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum