Hoppa yfir valmynd

20 Framhaldsskólastig

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Skilgreining málefnasviðs

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð mennta- og barnamálaráðherra. Það skiptist í fjóra málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2022–2024. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.

Fjárhagsleg þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2022–2024

Útgjaldarammi - heildaryfirlit og breytingar eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum, sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Breytingar á ramma milli áranna 2023 og 2024 

Heildargjöld málefnasviðs 20 Framhaldsskólastig árið 2024 eru áætluð 44.752,3 m.kr. og lækki um 506,7 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2023, eða sem svarar til 1,2%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 2.611,4 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 6,2%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun, t.a.m. þannig að nýju útgjaldasvigrúmi hafi að einhverju leyti verið jafnað á móti aðhaldsmarkmiði. Aðhaldsmarkmiðið felur m.a. í sér sértækar afkomubætandi aðhalds­ráðstafanir á málefnasviðum og er nánar fjallað um þær í kafla 5 Gjöld ríkissjóðs.

Útgjaldarammi - hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2022 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

Útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2022 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu20.1 Framhaldsskólar

Starfsemi málaflokksins er í höndum 40 opinberra og einkarekinna framhaldsskóla. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2024 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2023. Þannig endur­spegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2024

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Hækka hlutfall nemenda sem ljúka starfs- og tækninámi og jafna kynja­dreifingu

Endurskoða framtíðarskipulag og hús­næðiskost framhaldsskóla með það mark­mið að mæta samfélagslegum, faglegum og fjárhagslegum áskorunum og fjölga nemendum í starfs- og tækninámi.

Mennta- og barnamálaráðuneyti

Innan ramma

Fjölga nemaplássum og vinna að jafnari kynjadreifingu í starfsnámi.

Mennta- og barnamálaráðuneyti og Nemastofa atvinnulífsins

Innan ramma

Einfalda leiðir eldri nemenda til að fá hæfnimat og ljúka starfsnámi.

Mennta- og barnamálaráðuneyti

 

Innan ramma

Markmið 2: Fjölga nemendum sem ljúka prófi á tilskildum tíma

Styðja við verkefni sem stuðla að bættri líðan nemenda í framhaldsskólum.

Mennta- og barnamálaráðuneyti

Innan ramma

Veita sérstakt fjárframlag til fram­halds­skóla vegna nemenda í brotthvarfs­hættu.

Mennta- og barnamálaráðuneyti

Innan ramma

Mæla árlegt brotthvarf úr framhaldsskóla og kynna skólastjórnendum.

Mennta- og barnamálaráðuneyti

 

Innan ramma

Markmið 3: Auka gæði menntunar í framhaldsskólum.

Uppbygging heildstæðrar skólaþjónustu á framhaldsskólastigi með áherslu á þjón­ustu, ráðgjöf og stuðning við framhalds­skóla. Þátttaka í þróun miðlægrar staf­rænnar námsgagnaveitu þvert á skólastig.

Menntamálastofnun

Innan ramma

Þróun starfa í framhaldsskóla til að mæta þörfum fjölbreyttari nemendahóps í sam­ræmi við faglegar áherslur á hverjum stað og tíma.

Mennta- og barnamálaráðuneyti og Kennarasamband Íslands

Innan ramma

Endurskoðun gæðaviðmiða og framkvæmdar ytra mats.

Mennta- og barnamálaráðuneyti

 

Áframhaldandi þróun reiknilíkans.

Mennta- og barnamálaráðuneyti

 

Innan ramma

     

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 43.107,5 m.kr. og lækkar um 502,6 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 3.018,1 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Við vinnslu frumvarps til fjárlaga 2024 var ákveðið að halda eftir hluta af framlögum til framhaldsskóla sem verður síðan úthlutað til þeirra við 2. umræðu fjárlaga 2024. Þá verða jafnframt gerðar breytingar á nemendafjöldatölum og fjárveitingum til skóla þar sem þá liggja fyrir betri upplýsingar um skólavist nemenda enda þá nokkuð liðið á skólaárið.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 117 m.kr. vegna fjölgunar nemenda í verknámi, sbr. markmið nr. 1.
  2. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 445 m.kr. vegna fjölgunar nemenda í framhaldsskólum. Samhliða fellur niður tímabundin fjárheimild að sömu fjárhæð.
  3. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 100 m.kr. vegna fjölgunar nemenda á starfsbrautum framhaldsskóla.
  4. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 42,8 m.kr. vegna hækkunar á sértekjum sem hækka um sömu fjárhæð.
  5. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 30 m.kr. vegna millifærslu milli málefnasviða.
  6. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 662 m.kr. vegna tímabundinna verkefna sem falla niður. Meðal annars falla niður 445 m.kr. vegna fjölgunar nemenda í framhaldsskólum og önnur tímabundin framlög í framhaldsskólatengd verkefni.
  7. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 578,4 m.kr. og lækkar fjárheimild málaflokksins sem því nemur. Skiptist aðhaldið niður á milli stofnana, verkefna og sjóða innan málaflokksins. 

20.20 Tónlistarfræðsla

Um málaflokkinn gilda lög um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla, nr. 75/1985, og taka þau til tónlistarskóla sem reknir eru af sveitarfélögum og annarra sem njóta styrks sam­kvæmt lögunum. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðar­skiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl. Heildar­fjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 729,3 m.kr. og tekur ekki breytingum frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 50,2 m.kr.

20.30 Vinnustaðanám og styrkir

Tilgangur löggjafar um vinnustaðanámssjóð er að auðvelda nemendum að ljúka tilskildu námi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla, koma til móts við kostnað fyrirtækja og stofn­ana af vinnustaðanámi og auðvelda fyrirtækjum og stofnunum að taka nemendur á náms- eða starfsþjálfunarsamning. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl. Eðli málaflokksins er með þeim hætti að markmið og aðgerðir í málaflokki 20.10 Framhaldsskólar eru að hluta til leiðandi fyrir úthlutun námsstyrkja.

Árin 2024–2027 verður fylgst með áhrifum rafrænnar ferilbókar á starfsþjálfun og tíma­lengd hennar með það í huga hvort endurskoða þurfi.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 242,6 m.kr. og tekur ekki breytingum frá gildandi fjárlögum.

20.40 Jöfnun námskostnaðar

Undir málaflokkinn falla lög um námsstyrki, nr. 79/2003, sem veittir eru til jöfnunar á fjár­hagslegum aðstöðumun nemenda í framhaldsskólum að því leyti sem búseta veldur þeim misþungri fjárhagsbyrði eða efnaleysi torveldar þeim nám.

Meginmarkmið þessa málaflokks er að stjórnvöld leggi áherslu á jafnt aðgengi að námi óháð búsetu og öðrum aðstæðum. Á árinu verður gerð úttekt á framkvæmd laga um námsstyrki og skoðað hvernig þau þjóna hlutverki sínu. Samhliða verður endurskoðuð reglugerð um námsstyrki, nr. 692/2003.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 672,9 m.kr. og hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málaflokksins er 4,1 m.kr. en annars tekur málaflokkurinn ekki breytingum frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 49,8 m.kr.

Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum