Hoppa yfir valmynd
7. júlí 1998 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ísland og loftslagsbreytingar af mannavöldum

Ísland og loftslagsbreytingar af mannavöldum

Skýrsla umhverfisráðherra


UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ
október 1997

EFNISYFIRLIT

FORMÁLI UMHVERFISRÁÐHERRA

SAMANTEKT

1. GRÓÐURHÚSAÁHRIF OG LOFTSLAGSBREYTINGAR
1.1. Andrúmsloftið og náttúruleg gróðurhúsaáhrif
1.2. Gróðurhúsaáhrif af mannavöldum
1.3. Áhrif loftslagsbreytinga á umhverfi og samfélag
1.4. Rammasamningur Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar

2. ÚTSTREYMI GRÓÐURHÚSALOFTTEGUNDA Á ÍSLANDI
2.1. Útstreymi einstakra gróðurhúsalofttegunda
2.2. Útstreymi óbeinna gróðurhúsalofttegunda
2.3. Heildarútstreymi gróðurhúsalofttegunda
2.4. Upptaka kolefnis

3. FRAMKVÆMDAÁÆTLUN RÍKISSTJÓRNARINNAR VEGNA
RAMMASAMNINGS S.Þ. UM LOFTSLAGSBREYTINGAR

4. AÐGERÐIR ÍSLANDS GEGN LOFTSLAGSBREYTINGUM
4.1. Koltvíoxíð
4.2. Metan
4.3. Tvíköfnunarefnisoxíð
4.4. Flúorkolefni
4.5. Vetnisflúorkolefni
4.6. Óbeinar gróðurhúsalofttegundir
4.7. Heildarútstreymi gróðurhúsalofttegunda
4.8. Þróunaraðstoð og alþjóðleg samvinna

5. ÁHRIF LOFTSLAGSBREYTINGA Á ÍSLANDI
5.1. Fiskveiðar
5.2. Hækkun sjávarborðs
5.3. Landbúnaður og skógrækt
5.4. Vatnsorka og raforkuframleiðsla

6. RANNSÓKNIR OG FRÆÐSLA
6.1. Veðurfar og vöktun andrúmsloftsins
6.2. Fornveðurfar
6.3. Rannsóknir á áhrifum loftslagsbreytinga á íslensk vistkerfi
6.4. Landgræðsla og skógrækt
6.5. Hafrannsóknir
6.6. Fræðsla

7. SAMNINGAVIÐRÆÐUR UM AÐ STYRKJA ÁKVÆÐI SAMNINGSINS
7.1. Aðdragandi
7.2. Áhersluatriði íslenskra stjórnvalda
7.3. Helstu tillögur sem fram hafa komið
7.4. Horfur í samningaviðræðunum

VIÐAUKI I: Rammasamningur S.þ. um loftslagsbreytingar
VIÐAUKI II: Framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar
VIÐAUKI III: Bréf umsjónarnefndar ráðuneyta til umhverfisráðherra
VIÐAUKI IV: Greinargerð Þjóðhagsstofnunar
VIÐAUKI V: Útdráttur úr skýrslu skrifstofu Rammasamnings S.þ. um Ísland
VIÐAUKI VI: Útstreymi gróðurhúsalofttegunda á Íslandi - nokkrar töflur


FORMÁLI UMHVERFISRÁÐHERRA


Þessi skýrsla er tekin saman í því skyni að upplýsa um gang samningaviðræðna um að styrkja Rammasamning Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar og hvernig staða okkar Íslendinga er í ljósi þeirra viðræðna. Í desember 1997 er fyrirhugað að samþykkja bókun við Rammasamninginn á fundi í Kyoto í Japan, sem á að herða ákvæði hans verulega. Á þessarri stundu er óvíst hvort að samkomulag helstu ríkja náist fyrir Kyoto-fundinn, eða hvað nákvæmlega muni felast í því. Hitt er ljóst að æ fleiri sérfræðingar telja að loftslagsbreytingar af mannavöldum séu eitt alvarlegasta umhverfisvandamál sem heimsbyggðin stendur frammi fyrir og að krafan um raunhæfar aðgerðir til að draga úr þessum breytingum mun verða háværari, hver sem niðurstaðan á Kyoto-fundinum verður.

Meginuppistaðan í efni þessarrar skýrslu er tekin úr annarri skýrslu Íslands til skrifstofu loftslagssamningsins ("Second Status Report for Iceland pursuant to the United Nations Framework Convention on Climate Change"), sem aðildarríkjum loftslagssamningsins ber að skila. Í þeirri skýrslu, sem rituð er á ensku, er að finna upplýsingar um útstreymi gróðurhúsalofttegunda á Íslandi, sem reiknað er út skv. reglum sem skrifstofa loftslagssamningsins setur, auk spár sem unnin er af Hollustuvernd ríkisins um líklega þróun útstreymis fram til ársins 2025. Einnig er þar að finna upplýsingar um stefnu íslenskra stjórnvalda og aðgerðir sem gripið hefur verið til eða til stendur að grípa til í því skyni að draga úr hættulegum loftslagsbreytingum. Þeir kaflar sem um þetta fjalla eru nánast samhljóða í þeirri skýrslu og í þessarri skýrslu til Alþingis. Kafla með almennum upplýsingum um Ísland og íslenskt þjóðfélag er sleppt hér. Á hinn bóginn er í þessarri skýrslu að finna kafla sem ekki eru í hinni skýrslunni, sem fjalla m.a. um gróðurhúsaáhrifin almennt, loftslagssamning S.þ. og þær samningaviðræður sem hófust árið 1995 til þess að styrkja ákvæði hans. Kafli 1, sem fjallar almennt um gróðurhúsaáhrif og loftslagsbreytingar og aðgerðir gegn þeim er að mestu byggður á upplýsingum fengnum frá Umhverfisstofnun S.þ. (UNEP). Í viðaukum er m.a. að finna útdrátt úr skýrslu sendinefndar sérfræðinga á vegum skrifstofu loftslagssamningsins, sem heimsótti Ísland á fyrra ári og gerði úttekt á útstreymisbókhaldi Íslendinga og stefnu stjórnvalda.

Það er vonandi að þessi skýrsla verði til gagns og upplýsingar. Umræður um loftslagsbreytingar af mannavöldum og þátt okkar Íslendinga í að draga úr þeim munu halda áfram, hvað sem líður niðurstöðu Kyoto-fundarins og í þeirri umræðu skiptir grundvallarmáli að góðar upplýsingar liggi til grundvallar.


SAMANTEKT

• Árið 1995 var útstreymi koltvíoxíðs á Íslandi 2.281 þúsund tonn. Útstreymi gróðurhúsalofttegunda í heild var 2.640 þúsund tonn, mælt í ígildum koltvíoxíðs. Þetta var um 0,01% heildarútstreymis á jörðinni.

• Útstreymi koltvíoxíðs á hvern íbúa á Íslandi var um 8,5 tonn árið 1995, en var um 12 tonn á íbúa að meðaltali í ríkjum Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD).

• Hlutur einstakra lofttegunda í útstreymi var árið 1995:
Koltvíoxíð - 86%
Metan - 6%
Tvíköfnunarefnisoxíð - 5%
Aðrar lofttegundir - 3%

• Útstreymi koltvíoxíðs árið 1995 skiptist þannig eftir uppsprettum:
Fiskiskip - 33%
Innanlandssamgöngur - 32%
Iðnaðarferli - 18%
Jarðhitavirkjanir - 3%
Annað - 14%

Það sem er einkennandi fyrir útstreymi koltvíoxíðs á Íslandi miðað við önnur ríki er hið háa hlutfall útstreymis frá farartækjum og hið lága hlutfall útstreymis frá staðbundinni orkuframleiðslu. Um 2/3 hlutar af heildarorkuframleiðslu Íslendinga og um 95% af staðbundinni orkuframleiðslu kemur frá hreinum og endurnýjanlegum orkulindum.

• Heildarútstreymi gróðurhúsalofttegunda dróst saman um 3,5% á tímabilinu 1990-1995. Helsta ástæða þessa var minnkun á losun flúorkolefna frá álverinu í Straumsvík. Útstreymi koltvíoxíðs jókst hins vegar um ríflega 6% á þessu tímabili.

• Útstreymi gróðurhúsalofttegunda á hvern íbúa á Íslandi minnkaði um 7,5% á tímabilinu 1990-1995. Útstreymi koltvíoxíðs á íbúa jókst um 1,4% á þessu tímabili.

• Samkvæmt spám er búist við auknu útstreymi gróðurhúsalofttegunda á Íslandi á næstu árum. Heildarútstreymi mun skv. spám aukast um 16% til ársins 2000, um 26% til ársins 2010 og um 35% til ársins 2020, miðað við árið 1990, verði ekki gripið til frekari aðgerða.

• Erfitt er að spá um hvaða áhrif loftslagsbreytingar af mannavöldum munu hafa á Íslandi. Flest tölvulíkön spá lítilsháttar hlýnun á Íslandi og svæðinu í kring, en að sú hlýnun verði minni en að meðaltali á sömu breiddargráðum. Kólnun loftslags er ekki útilokuð. Helsta áhyggjuefni Íslendinga eru hugsanleg áhrif veðurfarsbreytinga af mannavöldum á stefnu og styrk hafstrauma, þ. á m. Golfstraumsins, sem aftur gætu haft ófyrirséð og alvarleg áhrif á loftslag og fiskgengd við Ísland.

• Stefna íslenskra stjórnvalda er að takmarka útstreymi gróðurhúsalofttegunda árið 2000, þannig að það verði ekki meira þá en árið 1990. Til þess að framfylgja þessarri stefnu samþykkti ríkisstjórnin framkvæmdaáætlun um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum árið 1995. Sérstök nefnd skipuð sjö aðstoðarmönnum ráðherra sér um að fylgja framkvæmdaáætlunni eftir. Nefndin hefur skilað yfirliti til umhverfisráðherra um störf sín, en áfram er unnið að frekari útfærslu framkvæmdaáætlunarinnar í vinnuhópum í einstökum ráðuneytum, sem leita leiða til að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda í samgöngum, sjávarútvegi o.s.frv.

• Meðal aðgerða sem eru í skoðun til þess að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda eru: upptaka koltvíoxíðsskatts, endurskoðun gjaldtöku af bifreiðum og eldsneyti með það fyrir augum að auka hlutfall sparneytinna bifreiða, markviss efling orkusparnaðar við fiskveiðar, efling almenningssamgangna, orkusparnaðarátak í iðnaði, minnkun sorpmagns til urðunar (sem dregur úr útstreymi metans) og aukin binding koltvíoxíðs í lífmassa með skógrækt og landgræðslu.

• Meðal aðgerða sem þegar hafa skilað árangri við að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda má nefna afslátt á verði ótryggðs rafmagns til gufuframleiðslu í rafskautakötlum í fiskimjölsverksmiðjum og öðrum iðnfyrirtækjum, sem hefur leitt til minnkunar á olíubrennslu um 11-12 þúsund tonn, sem aftur þýðir um 35.000 tonna minnkun á útstreymi koltvíoxíðs. Í framhaldi af lækkun gjaldskrár til að gera landrafmagn samkeppnisfært við rafmagn framleitt í ljósavélum skipa hefur CO2-losun minnkað um 5.000 tonn. Vinnsla Sorpu bs. á metani á urðunarstað í Álfsnesi er hafin og mun draga úr losun sem svarar ígildum rúmlega 16.000 tonna af CO2.

• Ríkisstjórnin leggur áherslu á að markmiðum Íslendinga um takmörkun á útstreymi gróðurhúsalofttegunda verði náð á sem hagkvæmastan hátt. Átak til að auka hlutdeild jarðvarmaorku gerði það að verkum að hitaveitu var komið í yfirgnæfandi meirihluta íslenskra húsa fyrir viðmiðunarárið 1990. Hlutur staðbundinnar orkuvinnslu er óverulegur og skiptir litlu í heildarmyndinni. Erfitt kann að reynast að koma við verulegri minnkun á útblæstri frá fiskiskipum og samgöngum, nema til kæmi ný tækni sem yki sparneytni verulega eða opnaði fyrir víðtæka notkun á öðrum orkugjöfum en olíu og öðru jarðefnaeldsneyti.

• Ísland getur lagt sitt af mörkum við að draga úr veðurfarsbreytingum af mannavöldum með því að auka bindingu koltvíoxíðs í gróðri. Þannig má sameina aðgerðir gegn gróðurhúsaáhrifum og aðgerðir gegn uppblæstri og gróðureyðingu. Ríkisstjórnin hefur hrint af stað átaki sem miðar að því að auka bindingu koltvíoxíðs í 100.000 tonn á ári á næstu árum, eða sem svarar um 4-5% af losun Íslendinga af koltvíoxíði.

• Á alþjóðavettvangi hefur Ísland lagt sitt af mörkum við að draga úr losun koltvíoxíðs með því að veita aðstoð við nýtingu jarðhita, sem kemur í stað mengandi orkugjafa. Stefnt er að áframhaldandi aðstoð á því sviði.

• Óvíst er hvaða áhrif alþjóðlegar skuldbindingar munu hafa á uppbyggingu orkufreks iðnaðar hér á landi. Útstreymi frá iðnaðarferlum mun auka útstreymi frá Íslandi verulega. Á hinn bóginn má segja að orkufrekur iðnaður sem er staðsettur á Íslandi og nýtir endurnýjanlegar orkulindir losi mun minna af koltvíoxíði (í mörgum tilvikum um 90% minna) á heimsvísu en verksmiðjur sem nota jarðefnaeldsneyti sem orkugjafa. Þannig tryggir stóriðja staðsett á Íslandi lágmarksútstreymi gróðurhúsalofttegunda. Ríkisstjórn Íslands hefur af þessum sökum undanskilið nýja stóriðju sem nýtir endurnýjanlegar orkulindir frá markmiðum sínum um takmörkun á útstreymi gróðurhúsalofttegunda, enda fullnægi hún skilyrðum um lágmarksútstreymi gróðurhúsalofttegunda frá iðnaðarferlum. Frekari skuldbindingar, samþykktar í Kyoto, mega ekki koma í veg fyrir að framleiðsla fari fram þar sem heildarútstreymi gróðurhúsalofttegunda er minnst. Náttúruverndarsjónarmið ráða hins vegar miklu um nýtingu endurnýjanlegra orkulinda hér á landi.


1. Gróðurhúsaáhrif og loftslagsbreytingar


1.1. Andrúmsloftið og náttúruleg gróðurhúsaáhrif

Andrúmsloftið er að mestu samansett af köfnunarefni (N2), eða um 78%, og súrefni (O2), um 21%. Að auki er þar að finna í mun minna mæli lofttegundir á borð við vatnsgufu (H2O) og koltvíoxíð (CO2), sem hafa umtalsverð áhrif á hitabúskap lofthjúpsins.

Lofthjúpi jarðar má líkja við gler í gróðurhúsi, að því leyti að hann gleypir í sig hluta þess varma, sem ella myndi geisla út frá yfirborði jarðar. Lofthjúpurinn hleypir í gegn um sig sólargeislun til yfirborðs jarðar, sem hitnar fyrir vikið. Jörðin sendir síðan þessa orku til baka út í geiminn í formi innrauðrar geislunar, en lofttegundir á borð við koltvíoxíð gleypa í sig innrauða geisla og halda þannig eftir hluta hitaorkunnar, sem streymir frá yfirborðinu. Þessi eiginleiki lofthjúpsins hefur verið nefndur gróðurhúsaáhrif og reiknað hefur verið út að náttúruleg gróðurhúsaáhrif valdi því að hitastig á jörðinni sé um 30° C hærra en ella væri, sem er mikilvæg, ef ekki nauðsynleg, forsenda þess að líf þrífist á jörðinni.

1.2. Gróðurhúsaáhrif af mannavöldum

Helstu lofttegundir sem valda gróðurhúsaáhrifum eru koltvíoxíð (CO2), vatnsgufa (H2O), óson (O3), metan (CH4), tvíköfnunarefnisoxíð (N2O) og ýmis flúorkolefnissambönd (CFC, HFC og PFC). Að flúorkolefnum undanskildum voru þessar lofttegundir allar til staðar í lofthjúpnum fyrir tilkomu mannsins, en samtals er magn þeirra í andrúmsloftinu minna en 1% af heildinni.

Maðurinn hefur með athöfnum sínum, einkum eftir iðnbyltinguna, aukið hlutfall þessarra lofttegunda í lofthjúpnum og þar með haft áhrif á gróðurhúsaáhrifin. Koltvíoxíð myndast þegar olía, kol og annað kolefniseldneyti er brennt til orkuvinnslu, við ýmis iðnaðarferli og þegar skógar eru felldir eða brenndir. Metan og tvíköfnunarefnisoxíð myndast m.a. vegna rotnunar á lífrænu efni og ýmissar landbúnaðarstarfsemi. CFC og önnur manngerð efni eru m.a. notuð í iðnaði og sleppa út í andrúmsloftið.

Koltvíoxíð veldur um 60% gróðurhúsaáhrifa af mannavöldum. Árlegt útstreymi af mannavöldum nemur um 7 milljörðum tonna af hreinu kolefni, eða sem nemur um 1% af heildarmagni CO2 í andrúmsloftinu. Metan er talið valda um 15-20% af gróðurhúsaáhrifum af mannavöldum og aðrar lofttegundir um 20-25% samanlagt.

Samkvæmt spám vísindamanna er líklegt að hitastig á jörðinni hækki um 1-3,5° C fram til ársins 2100 vegna aukinna gróðurhúsaáhrifa af mannavöldum. Þessi breyting yrði meiri en nokkur breyting á hitastigi og loftslagi sem orðið hefur á jörðinni sl. 10.000 ár. Þessi spá er byggð á núverandi þróun á útstreymi gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftið og miðað við að ekki verði gripið til ráðstafana til þess að draga úr útstreymi. Spár um loftslagsbreytingar af mannavöldum eru bundnar mikilli óvissu og enn erfiðara er að spá fyrir um hver áhrif þeirra verða á einstökum svæðum. Það eykur óvissuna í slíkum spám að náttúrulegar sveiflur í veðurfari kunna að draga úr eða magna sveiflur vegna gróðurhúsaáhrifa af mannavöldum. Víst er þó að fyrstu einkenni gróðurhúsaáhrifa verður vaxandi tíðni afbrigðilegrar veðráttu, aukin ofsaveður, vindur og úrkoma. Spálíkön gera ráð fyrir því að áhrif losunar gróðurhúsalofttegunda komi ekki strax fram við yfirborð jarðar, þannig að hækkun hitastigs og breytingar á loftslagi myndu halda áfram í nokkra áratugi jafnvel þó að styrkur gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftinu hætti að aukast nú þegar.

Haldi núverandi þróun í útstreymi gróðurhúsalofttegunda áfram er líklegt að það jafngildi árið 2030 tvöföldun á magni þess koltvíoxíðs sem var í andrúmsloftinu fyrir daga iðnbyltingarinnar og þreföldun árið 2100. Ef útstreymi koltvíoxíðs af mannavöldum eykst ekki frá því sem nú er munu gróðurhúsaáhrifin verða hægari, eða sem nemur tvöföldun CO2 árið 2100. Talið er að draga þurfi úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda um 30% frá því sem nú er, ef við settum okkur það markmið að styrkur þeirra í andrúmslofti nái jafnvægi við þau mörk sem nemur tvöföldun á CO2 fyrir iðnbyltingu.

Sumar athafnir mannkyns kunna að hafa áhrif til kólnunar frekar en hlýnunar lofthjúpsins. Loftagnir sem innihalda brennisteinssambönd og myndast við bruna olíu og kola endurkasta sólargeislun út í geiminn áður en hún nær yfirborði jarðar og draga með því úr gróðurhúsaáhrifum. Þetta kann að valda staðbundinni kólnun (eða minni hlýnun) á svæðum þar sem brennisteinsmengun er mikil, en þessar brennisteinsagnir eru mun skammlífari í andrúmsloftinu en gróðurhúsalofttegundir og munu því breyta litlu um meginframvindu loftslagsbreytinga. Þá ber þess að gæta að brennisteinssambönd í andrúmslofti valda ýmsum umhverfisvandamálum, s.s. súru regni og teljast því óæskileg.

Talið er að magn koltvíoxíðs í andrúmslofti hafi aukist um 30% síðan um 1800 til okkar dags og vísindamenn telja líklegt að gróðurhúsaáhrif af mannavöldum hafi nú þegar haft merkjanleg áhrif á loftslag á jörðinni. Mælingar benda til þess að hitastig hafi að meðaltali hækkað um 0,3-0,6° C síðan árið 1860 og að sjávarborð kunni að hafa hækkað um 10-25 sentimetra. Mælingar á jöklum á háfjöllum víða um heim sýna að þeir hafa nær undantekningalaust hopað síðastliðna öld, en það er þó ekki talið að ástæða þessa sé eingöngu aukning á útstreymi gróðurhúsalofttegunda.

1.3. Áhrif loftslagsbreytinga á umhverfi og samfélag

Spár um afleiðingar aukinna gróðurhúsaáhrifa og loftslagsbreytinga eru ekki síður undirorpnar mikilli óvissu en spár um hve mikið hitastig muni hækka á næstu áratugum. Það er þó mat vísindamanna að loftslagsbreytingar muni hafa umtalsverð áhrif á allt umhverfi og lífsskilyrði mannsins og annarra lífvera og að þau áhrif verði því meiri sem loftslagsbreytingarnar taki skemmri tíma. Eftirfarandi niðurstöður eru settar fram í skýrslu Alþjóða vísindanefndarinnar um loftslagsbreytingar (IPCC).

Talið er að yfirborð sjávar muni hækka um 15-95 sentimetra fram til ársins 2100 vegna bráðnunar jökla og rúmmálsaukningar hafanna vegna hlýnunar. Þessi hækkun sjávarborðs mun aftur valda sjávarflóðum á strandsvæðum og láglendi og öðru tjóni. Nú er talið að um 46 milljónir manna búi á svæðum þar sem hætta er á sjávarflóðum, en 50 sm hækkun sjávarborðs myndi þýða að um tvöfalt fleiri manns myndu búa við slíka hættu. Hækkun um 1 metra myndi sökkva um 6% Hollands og yfir 17% af Bangladesh, ef ekkert yrði gert til varnar og myndi gera margar láglendar kóraleyjar í Indlands- og Kyrrahafi óbyggilegar.

Loftslagsbelti kunna að færast til frá miðbaug og sú tilfærsla kann að nema 150-550 km á breiddargráðum miðja vegu milli miðbaugs og pólanna. Þetta mun hafa í för með sér samsvarandi tilfærslu á gróðurbeltum, vistkerfum og landbúnaðarframleiðslu. Vegna þess hve skamman tíma þessar breytingar munu taka verði ekkert að gert er líklegt að fjöldi tegunda dýra og plantna nái ekki að færa sig til eða aðlagast nýjum aðstæðum og muni þ.a.l. deyja út.

Ekki er talið líklegt að loftslagsbreytingar muni hafa stórkostleg áhrif til hins verra á matvælaframleiðslu í heiminum, ef litið er á jörðina í heild, en á sumum svæðum kann að verða uppskerubrestur, sem gæti leitt til hungursneyðar. Aukið magn koltvíoxíðs í lofthjúpnum kann að auka ljóstillífun plantna og þ.a.l. uppskeru þegar til langs tíma er litið, en röskun á gróðurbeltum myndi vega upp á móti slíku á næstu öld. Ekki er talið að loftslagsbreytingar muni hafa umtalsverð áhrif á fiskafla í heiminum, en þó kunna að verða verulegar staðbundnar breytingar á stærð og hegðun fiskistofna, sem gætu haft veruleg áhrif á samfélög sem byggja afkomu sína á fiskveiðum. Meðalúrkoma er talin munu aukast, en stór svæði gætu þó þornað upp á meðan annars staðar yrði vætusamara og/eða snjóþyngra. Ferskvatnsöflun mun breytast í kjölfar breytinga á úrkomu og uppgufun. Tíðni tjóna á húsum og öðrum mannvirkjum er talið munu fara vaxandi, vegna sjávarflóða og aukinnar tíðni fellibylja og ofsaveðra sem talin er fylgja í kjölfar hlýnunar lofthjúpsins.

segja til um áhrif loftslagsbreytinga á heilsufar manna, en þó bendir flest til þess að afleiðingarnar verði einkum neikvæðar. Með aukningu á meðalhitastigi munu ýmis sníkjudýr og sjúkdómsberar breiðast út til nýrra staða. Nú er talið að um 45% mannkyns búi á svæðum þar sem moskító-flugur sem bera malaríu þrífast; á síðari helming næstu aldar er líklegt að það hlutfall hækki í 60%, sem gæti þýtt að 50-80 milljónir manna til viðbótar sýktust árlega. Loftslagsbreytingar munu hafa fjölmargar aðrar afleiðingar, beinar og óbeinar, á efnahagsstarfsemi, byggð og heilsufar fólks. Þeir jarðarbúar sem búa við mestan skort og fátækt munu væntanlega verða mest fyrir barðinu á afleiðingum loftslagsbreytinga af mannavöldum.

Reynt hefur verið að spá fyrir um áhrif loftslagsbreytinga af mannavöldum fyrir einstök svæði á jörðinni, með aðstoð tölvulíkana, en slíkar spár eru eðli málsins samkvæmt háðar enn meiri óvissu en spár um meðaltalsáhrif loftslagsbreytinga á jörðinni. Flest líkön benda til þess að hlýnun verði mest á köldum meginlandssvæðum á norðurhveli jarðar að vetri til. Þannig gerir eitt spálíkan ráð fyrir að meðalhitastig í hluta Kanada og Síberíu muni hækka um 10° C að vetri til, en um 2° C á sumrin. Almennt er gert ráð fyrir að hlýnun verði hraðari á meginlöndum og fjarri sjó en yfir höfum og við strendur. Ekki er talið útilokað að aukin gróðurhúsaáhrif geti valdið snöggum og ófyrirséðum loftslagsbreytingum, s.s. með breytingum á hafstraumum.

Ljóst er að mannkynið mun þurfa að grípa til aðgerða til að bregðast við afleiðingum loftslagsbreytinga á komandi öld, óháð því hvort það tekst að stöðva aukningu á útstreymi gróðurhúsalofttegunda eða minnka það.

1.4. Loftslagssamningur Sameinuðu þjóðanna

Árið 1979 var haldið fyrsta Heimsþing um loftslag (First World Climate Conference), sem skoraði á ríki heims að "reyna að spá fyrir um og draga úr loftslagsbreytingum af mannavöldum, sem gætu haft neikvæð áhrif á velferð mannkyns". Árið 1988 settu Umhverfisstofnun S.þ. (UNEP) og Alþjóða veðurfræðistofnunin (WMO) á laggirnar Alþjóða vísindanefndina um loftslagsbreytingar (Intergovernmental Panel on Climate Change – IPCC) til að gefa álit um loftslagsbreytingar og hugsanlegar aðgerðir til að bregðast við þeim. Álit nefndarinnar um að vísindarannsóknir styddu þá tilgátu að loftslagsbreytingar af mannavöldum væru þegar hafnar og myndu líklega aukast á komandi áratugum varð til þess að annað Heimsþing um loftslag skoraði árið 1990 á þjóðir heims að gera alþjóðasamning um viðbrögð við loftslagsbreytingum. Undirbúningur að gerð slíks alþjóðasamnings hófst í desember það ár.

Rammasamningur Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (United Nations Framework Convention on Climate Change – UNFCCC) var lagður fram til undirritunar á Heimsráðstefnu S.þ. um umhverfi og þróun í Ríó de Janeiro í Brasilíu árið 1992. Fulltrúar 156 ríkja, auk Evrópusambandsins rituðu undir samninginn í Ríó, en nú eru aðildarríki hans um 165 talsins. Samningurinn gekk í gildi 21. mars 1994, eftir að 50 ríki höfðu staðfest hann.

Samkvæmt ákvæðum samningsins skuldbinda iðnvædd ríki sig sem heild til þess að grípa til aðgerða sem miða að því að reyna að auka ekki útblástur gróðurhúsalofttegunda, þannig að hann verði ekki meiri árið 2000 en árið 1990 (iðnvædd ríki eru tilgreind í Viðauka I við samninginn, en þau eru ríki Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD), auk ríkja Austur-Evrópu og fyrrum Sovétríkjanna). Þessi skuldbinding felur þó ekki í sér ákveðin losunarmörk fyrir einstök ríki. Iðnvæddu ríkin hafa skuldbundið sig til þess að veita þróunarríkjum fjárhagslega og tæknilega aðstoð til þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Þróunarríkin eru ekki skuldbundin til þess að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda skv. ákvæðum loftslagssamningsins, enda bera iðnríkin langmesta ábyrgð á núverandi útstreymi og hafa meira bolmagn og svigrúm til þess að draga úr útstreymi. Iðnríkin hafa skuldbundið sig til þess að taka reglulega saman upplýsingar um útstreymi gróðurhúsalofttegunda og þær aðgerðir sem viðkomandi ríki hyggst grípa til í samræmi við ákvæði loftslagssamningsins.

Í loftslagssamningnum er að finna leiðbeinandi ákvæði um hvaða grundvallarsjónarmið þurfi að hafa í huga við aðgerðir til þess að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda, þ. á m. eftirfarandi:
- gæta ber jafnræðis aðildarríkja,
- gæta verður hagsmuna komandi kynslóða jafnt sem núlifandi,
- huga þarf sérstaklega að þörfum og sérstöðu þróunarríkja
- aðgerðir skulu vera í samræmi við hagkvæmnisjónarmið, sjálfbæra þróun og opið alþjóðlegt efnahagskerfi.

Markmið loftslagssamningsins er að draga úr uppsöfnun gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftinu þannig að magn þeirra stöðvist við mörk sem myndu koma í veg fyrir hættulegar breytingar á loftslagi af mannavöldum. Engin nákvæm skilgreining er þó til á því hver þau mörk skuli vera eða hve miklar breytingar þurfi að verða til þess að þær teljist "hættulegar". Aðilar eru þó sammála um að með loftslagssamningnum sé ekki miðað að því að reyna að ná styrk gróðurhúsalofttegunda niður á sama stig og var fyrir iðnbyltingu – slíkt yrði enda tæknilega og efnahagslega óraunhæft – heldur að draga úr hraða breytinganna þannig að auðveldara verði fyrir vistkerfi og þjóðir heims að aðlagast breyttu loftslagi. Þannig er talið að hitabreyting um 3,5° C eða meira á næstu 100 árum muni verða of hröð til þess að margar tegundir trjáa geti aðlagað sig breyttum aðstæðum eða numið land á nýju kjörlendi, en hægari aukning á hitastigi auðveldar vistkerfum að aðlagast og/eða flytja sig um set í kjölfar breyttra umhverfisaðstæðna.

Fyrsti sameiginlegi fundur aðildarríkja Rammasamningsins (COP-1) var haldinn í Berlín í mars/apríl 1995, en skv. samningnum á að taka allar ákvarðanir um frekari útfærslu samningsins á slíkum fundum, sem haldnir skulu árlega. Í Berlín var ákveðið að stefna skyldi að því að setja ákveðin töluleg markmið um að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda í iðnríkjunum fyrir árin 2005, 2010 og 2020, en að engin mörk skyldi setja að svo stöddu fyrir þróunarríkin. Annar fundur aðildarríkjanna (COP-2) var haldinn í Genf í júlí 1996, en þar var m.a. ákveðið að þróunarríki skyldu halda bókhald um útstreymi gróðurhúsalofttegunda, á sama hátt og iðnríkin og skila því til skrifstofu UNFCCC í Bonn. Á þriðja fundi ríkjanna, sem halda á í Kyoto í Japan í desember nk. á m.a. að reyna að ákveða bindandi mörk um útstreymi einstakra aðildarríkja í byrjun næstu aldar í samræmi við ákvörðun COP-1 og má segja að þar sé stefnt að metnaðarfyllstu og erfiðustu ákvörðun um framfylgd Rammasamningsins hingað til.



2. Útstreymi gróðurhúsalofttegunda á Íslandi


Í þessum kafla er fjallað um útstreymi gróðurhúsalofttegunda á Íslandi á árunum 1990-1995. Stuðst er við útreikninga Hollustuverndar ríkisins, sem reiknar út útstreymi gróðurhúslofttegunda á Íslandi í samræmi við reglur sem Alþjóða vísindanefndin um loftslagsbreytingar (IPCC) hefur sett.

Einkum er fjallað hér um útstreymi eftirtaldra lofttegunda, sem valda beinum gróðurhúsaáhrifum: Koltvíoxíðs (CO2), metans (CH4), tvíköfnunarefnisoxíðs (N2O), vetnisflúorkolefna (HFC) og flúorkolefna (PFC). Einnig er stuttlega fjallað um útstreymi sk. óbeinna gróðurhúsalofttegunda, þ.e. köfnunarefnisoxíða (NOx), koloxíðs (CO) og rokgjarnra lífrænna efna. Þessar lofttegundir eru taldar geta haft óbein áhrif á hitabúskap lofthjúpsins, en ekki í jafn miklum mæli og hinar fyrrnefndu, þannig að ekki er gert ráð fyrir takmörkunum á útstreymi þeirra í loftslagssamningi S.þ. Einnig er fjallað um útstreymi brennisteinsoxíða (SOx) og sexflúorbrennisteins (SF6).

Útstreymi gróðurhúsalofttegunda er flokkað eftir uppsprettum í eftirfarandi sex flokka, í samræmi við vinnureglur IPCC: orkuvinnslu, iðnaðarferli, útgufun leysiefna, landbúnað, skógarhögg og landnotkun, úrgang og fráveituvatn. Þessum aðalflokkum er síðan skipt í smærri flokka. Einum flokki hefur verið bætt við uppsprettuflokkun IPCC – útstreymi frá jarðhitavirkjunum – þar sem virkjun jarðhita eykur útstreymi jarðgufu og þeirra lofttegunda sem eru til staðar í henni.

Í samræmi við þær reglur sem IPCC hefur sett, er útstreymi gróðurhúsalofttegunda vegna alþjóðasamgangna, þ. á m. útstreymi vegna eldsneytisbrennslu skipa og flugvéla í millilandasamgöngum ekki tekið með í útreikningum á heildarútstreymi frá Íslandi en er gefið upp sérstaklega í skýrslu Íslands til skrifstofu loftslagssamningsins.

2.1. Útstreymi einstakra gróðurhúsalofttegunda

2.1.1. Útstreymi koltvíoxíðs

Útstreymi koltvíoxíðs af mannavöldum á Íslandi var 2.147 þúsund tonn árið 1990. Í þeirri tölu er ekki tekið með útstreymi vegna alþjóðasamgangna. Helsta uppspretta koltvíoxíðs var eldsneytisbrennsla, með um 78% af heildarútstreymi, en 18% útstreymis var vegna iðnaðarferla. Útstreymi koltvíoxíðs vegna virkjunar jarðvarma var áætlað um 4% af heildarútstreymi af mannavöldum. Ef nánar er farið ofan í saumana á útstreymi eftir starfsemi, þá kemur í ljós að stærsti hluti útstreymis CO2 var frá fiskiskipum, rúmlega 30% af heildarútstreyminu. Útstreymi vegna vegasamgangna var nálægt því jafn mikið, eða um 29%. Eldsneytisbrennsla vegna iðnaðar veldur um 11% útstreymis, en þar munar mestu um fiskimjölsverksmiðjur og Sementsverksmiðjuna á Akranesi. Það er áberandi að farartæki (skip, bifreiðar og flugvélar í innanlandsflugi) leggja til nærri tvo-þriðju hluta af heildarútstreymi (eða 64%), á meðan önnur eldsneytisbrennsla og iðnaðarferli leggja til 36%. Hlutur samgangna í losun gróðurhúsalofttegunda er óvenju mikill á Íslandi, samanborið við önnur lönd og kemur þar einkum til hátt hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa á öðrum sviðum, s.s. húshitun og rafmagnsframleiðslu.

Árið 1995 hafði útstreymi koltvíoxíðs á Íslandi aukist um 6% miðað við útstreymið árið 1990 og var 2.282 þúsund tonn. Útstreymi CO2 frá fiskiskipaflotanum jókst um 18% á tímabilinu frá 1990 til 1995, aukning vegna samgangna á landi var 8% og aukning vegna iðnaðarferla var 9%.

Ef útstreymi CO2 á Íslandi er borið saman við útstreymi ríkja í Efnahags- og framfarastofnuninni (OECD) sést að það er um 30% minna hér á landi, eða um 8,5 tonn á íbúa borið saman við 12 tonn. Á hinn bóginn er útstreymið nálægt því hið sama og er að meðaltali í ríkjum Evrópusambandsins. Hér að neðan sést samanburður á útstreymi CO2 (mælt í tonnum á íbúa) á Íslandi og í nokkrum helstu iðnríkjum heims árið 1990:

Lúxemborg 28,9
Bandaríkin 19,8
Kanada 16,7
Ástralía 16,2
Þýskaland 12,8
Belgía 11,4
Holland 11,2
Finnland 10,8
Bretland 10,1
Danmörk 10,1
Japan 9,1
Írland 8,8
Ísland 8,6
Noregur 8,5
Grikkland 8,0
Austurríki 7,7
Ítalía 7,5
Nýja Sjáland 7,4
Frakkland 6,7
Sviss 6,6
Svíþjóð 6,4
Spánn 5,8
Portúgal 4,3

Útstreymi koltvíoxíðs jókst í flestum vestrænum ríkjum á tímabilinu 1990-1994, samkvæmt tölum frá skrifstofu loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna. Hér að neðan sést breyting á útstreymi CO2 í nokkrum iðnvæddum ríkjum á þessu tímabili. Í þeim tilvikum þar sem ríki eru merkt með stjörnu (*) eru tölurnar fengnar frá Evrópusambandinu, en ekki skrifstofu loftslagssamningsins.

Danmörk 21%
*Portúgal 14%
*Spánn 10%
Finnland 8%
Nýja Sjáland 8%
*Grikkland 7%
Japan 7%
Noregur 6%
Holland 5%
Ísland 5%
Kanada 5%
Bandaríkin 3%
*Írland 3%
*Austurríki -2%
*Ítalía -2%
Bretland -4%
Sviss -4%
*Frakkland -5%
Svíþjóð -5%
*Þýskaland -10%
Eistland -43%

2.1.2. Útstreymi metans

Heildarútstreymi metans (CH4) á Íslandi var áætlað um 14 þúsund tonn árið 1990. Helsta uppspretta metanútstreymis var vegna landbúnaðar, eða um 85%. Þar munaði langmest um metan frá meltingarstarfsemi búfjár, en einnig er nokkurt útstreymi frá búfjárúrgangi. Aðrar uppsprettur metans voru vegna urðunar úrgangs, eða um 13% heildarútstreymis og frá eldsneytisbrennslu, um 2% af heildinni.

Árið 1995 var útstreymi metans tæplega 14 þúsund tonn, örlítið minna en 1990. Helsta ástæðan fyrir þessarri minnkun var fækkun búfjár, sérstaklega sauðfjár.

2.1.3. Útstreymi tvíköfnunarefnisoxíðs

Útstreymi tvíköfnunarefnis (N2O) árið 1990 var 410 tonn. Talið er að notkun tilbúins áburðar og búfjáráburðar leggi til rétt rúman helming af heildarútstreymi, en óvissan í útreikningum á útstreymi af þessum völdum er stór. Áburðarframleiðsla er talin valda 38% útstreymis, fiskiskipaflotinn um 4% og farartæki 4%.

Árið 1995 var útstreymi tvíköfnunarefnisoxíðs um 390 tonn, sem er lítilsháttar minnkun frá 1990. Nokkur breyting varð á hlutfalli einstakra uppsprettna í heildarútstreymi; þannig jókst hlutur farartækja upp í 10% af heildarútstreymi vegna aukinnar notkunar hvarfakúta.

2.1.4. Útstreymi vetnisflúorkolefna

Útreikningar á útstreymi vetnisflúorkolefna (HFC) eru byggðir á tölum um innflutning slíkra efna. Fyrir árið 1992 var enginn innflutningur á slíkum efnum, en frá þeim tíma hefur innflutningur þeirra aukist hröðum skrefum, þar sem þau koma í stað efna (einkum CFC), sem talin eru valda eyðingu ósonlagsins. Árið 1995 voru flutt inn 10,5 tonn af HFC.

2.1.5. Útstreymi flúorkolefna

Álbræðsla er eina uppspretta útstreymis flúorkolefna (PFC) á Íslandi. Árið 1990 var áætlað að um 45 tonn af PFC hafi verið losuð, en nokkur óvissa er um þá tölu. Mikil áhersla hefur verið lögð á að draga úr þeim ferlum, sem valda myndun PFC í álframleiðslunni. Árið 1995 er talið að útstreymi PFC hafi dregist saman um meira en 80% hér á landi frá því sem var árið 1990 vegna slíkra aðgerða.

2.1.6. Sexflúorbrennisteinn

Sexflúorbrennisteinn (SF6) finnst í ýmsum raftækjum. Talið er að heildarmagn efnisins á Íslandi sé um 11 tonn og að um 200-250 kg leki út á ári.

2.2. Útstreymi óbeinna gróðurhúsalofttegunda

2.2.1. Útstreymi köfnunarefnisoxíða

Árið 1990 var útstreymi köfnunarefnisoxíða (NOx) áætlað yfir 26 þúsund tonn. Þar af var 61% rakið til fiskiskipaflotans, 28% til farartækja og véla og tæplega 6% til vöruflutninga með skipum innanlands. Um 2% útstreymis var rakið til iðnaðarferla og um 1,5% vegna brennslu lífræns efnis (aðallega vegna starfsemi Kísilgúrverksmiðjunnar).

Árið 1995 hafði útstreymi NOx aukist í rúmlega 28 þúsund tonn, sem er 8% aukning frá 1990. Þessi aukning stafar af aukinni eldsneytisbrennslu fiskiskipaflotans, en útstreymi NOx frá honum jókst um 18% á tímabilinu 1990-1995. Útstreymi frá farartækjum dróst á hinn bóginn lítillega saman vegna aukinnar notkunar hvarfakúta.

2.2.2. Útstreymi koloxíðs

Árið 1990 var heildarútstreymi koloxíðs (CO) áætlað um 58 þúsund tonn. Langstærsta uppspretta koloxíðs var eldsneytisbrennsla farartækja og véla, eða um 95% heildarútstreymis. Fiskiskipaflotinn lagði til tæp 3% af útstreymi CO og brennsla úrgangs um 2%.

Árið 1995 var útstreymi koloxíðs verulega minna en árið 1990, eða um 49 þúsund tonn. Ástæðan er fyrst og fremst aukin notkun hvarfakúta í bifreiðum, en einnig hefur dregið úr brennslu úrgangs með opinni sorpbrennslu.

2.2.3. Útstreymi rokgjarnra lífrænna efna

Útstreymi rokgjarnra lífrænna efna annarra en metans var áætlað nærri 13 þúsund tonn árið 1990. Útstreymi frá farartækjum var um 76% af heildarútstreymi, frá notkun lífrænna leysiefna um 20% og frá fiskiskipum tæp 4%.

Árið 1995 nam útstreymið um 12 þúsund tonnum. Minnkunin skýrist fyrst og fremst af aukinni notkun hvarfakúta í bifreiðum.

2.2.4. Útstreymi brennisteinsoxíða

Heildarútstreymi brennisteinsoxíða (einkum brennisteinstvíoxíðs, SO2) var um 24 þúsund tonn árið 1990. Það er talið að tvo þriðju hluta útstreymisins megi rekja til útblásturs brennisteinsvetnis (H2S) í gufu frá jarðhitavirkjunum. Í þessu sambandi ber að taka það fram að mikil óvissa er í áætlunum um útstreymi gufu frá jarðhitavirkjunum og í hvaða mæli brennisteinsvetni ummyndast í brennisteinsoxíð. Aðrar uppsprettur SO2 eru iðnaðarferli (um 13% af heildarútstreymi), eldsneytisbrennsla vegna iðnaðar (11%) og fiskiskipaflotinn (um 7%).

Árið 1995 var útstreymi brennisteinsoxíða áætlað álíka mikið og árið 1990. Útstreymi frá fiskiskipaflotanum jókst um 50% frá árinu 1990.

2.3. HEILDARÚTSTREYMI GRÓÐURHÚSALOFTTEGUNDA

Árið 1990 var heildarútstreymi gróðurhúsalofttegunda á Íslandi jafngildi 2.730 þúsund tonna af koltvíoxíði. Þessi tala er reiknuð þannig út að gróðurhúsaáhrif fimm lofttegunda (CH4, N2O, HFC, PFC og SF6) eru reiknuð út sem ígildi koltvíoxíðs og þeim ígildum síðan bætt við útstreymi koltvíoxíðs. Árið 1990 var ekkert útstreymi HFC, þar sem þau efni voru ekki flutt inn til landsins fyrr en 1992.

Árið 1995 jafngilti áætlað heildarútstreymi gróðurhúsalofttegunda 2.640 þúsund tonnum af koltvíoxíði, sem var um 3% minnkun frá 1990.

2.4. UPPTAKA KOLEFNIS

Landgræðsla og skógrækt eru kappsmál Íslendinga vegna aldalangrar jarðvegs- og gróðureyðingar í landinu, ennfremur eru miklir möguleikar á að auka um leið kolefnisupptöku í gróðri í viðbót við það sem þegar er gert á því sviði. Ríkisstjórnin hefur með samþykkt framkvæmdaáætlunar sinnar um aðgerðir til þess að draga úr loftslagsbreytingum hrundið af stað áætlun sem miðar að því að auka bindingu koltvíoxíðs um 100.000 tonn á ári fram til ársins 2000. Áætlunin miðar meðal annars að því að sá lúpínu og grasi og dreifa áburði, auk aukinnar skógræktar.

Áætlað hefur verið hvað algengustu landgræðslu- og skógræktaraðgerðir leiða almennt af sér mikla bindingu koltvíoxíðs. Þar var einnig tekið tillit til bindingar kolefnis í jarðvegi vegna uppsöfnunar lífræns forða. Við þessa útreikninga var stuðst við leiðbeiningar IPCC.

Árleg binding
tonn CO2/ha
Lúpína á snauðu landi 3.0
Almenn landgræðsla 2.5
Almenn skógrækt 2.0
Nytjaskógur 5.0

Lagt hefur verið mat á umfang nýrra uppgræðslu- og skógræktaraðgerða síðan 1991 og reiknað hvað þær leiða til mikillar bindingar koltvíoxíðs. Þar eru ekki teknar með aðgerðir sem tengjast stöðvun hraðfara jarðvegseyðingar.

Árleg binding
ha tonn CO2
Lúpína á snauðu landi 3000 9000
Almenn landgræðsla 7200 18000
Almenn skógrækt 3600 7200
Nytjaskógur 2500 12500

Alls 16300 46700


Miðað við óbreyttan framkvæmdahraða til aldamóta má gera ráð fyrir að árleg binding vegna nýrrar ræktunar 1991-2000 verði 77.800 tonn koltvíoxíðs. Það þarf því að bæta við núverandi ræktun nýrri ræktun sem bindur 22.200 tonn svo markmið framkvæmdaáætlunarinnar náist. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita 450 millj. kr. til viðbótar því sem verið hefur svo þau markmið náist. Því má ætla að árið 2000 verði árleg binding koltvíoxíðs um 100 þús. tonnum meiri en hún var árið 1990.


3. Framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar vegna Rammasamnings Sameinuðu þjóðanna


Ríkisstjórnin samþykkti 17. október 1995 sérstaka framkvæmdaáætlun vegna Rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (áætlunin er birt í heild í Viðauka II). Framkvæmdaáætlunin tók mið af niðurstöðum koltvíoxíðsnefndar, sem þáverandi umhverfisráðherra skipaði í ársbyrjun 1991 til þess að kanna útstreymi gróðurhúsalofttegunda og leggja grunn að framkvæmdaáætlun til að takmarka útstreymi þeirra í samræmi við skuldbindingar rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar.

Markmið stefnu ríkisstjórnar Íslands til þess að sporna gegn gróðurhúsaáhrifum er að útstreymi koltvíoxíðs og annarra gróðurhúsalofttegunda verði ekki meira um aldamótin en það var árið 1990, í samræmi við ákvæði Rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar. Ríkisstjórnin leggur áherslu á að þessu markmiði verði náð á sem hagkvæmastan hátt. Því munu þjóðhagslega hagkvæmar aðgerðir hafa forgang, svo sem bætt nýting eldsneytis í farartækjum, þar með talið í fiskiskipum. Áfram verður lögð áhersla á að auka hlutdeild vatnsafls og jarðhita í orkunotkun og draga þannig úr losun gróðurhúsalofttegunda sem er samfara brennslu jarðefnaeldsneytis. Ríkisstjórninni er ljóst að vatnsorka og jarðhiti hafa þegar að mestu leyti komið í stað jarðefnaeldsneytis á þeim sviðum þar sem það er tæknilega unnt og hagkvæmt, og sjá þessir orkugjafar þjóðinni nú fyrir nálega 2/3 hlutum af frumorkunotkuninni. Þess vegna leggur ríkisstjórnin áherslu á landgræðslu og skógrækt til þess að skapa aukið svigrúm, auka öryggi í framkvæmdaáætluninni og draga úr líkum á því að ófyrirséðar breytingar á forsendum komi í veg fyrir að Ísland nái settu markmiði.

Það er álit ríkisstjórnarinnar að skuldbindingar um takmörkun útstreymis gróðurhúsalofttegunda eigi ekki að koma í veg fyrir að reist verði ný stóriðjufyrirtæki í landinu, ef þau vilja nýta sér hinar hreinu orkulindir landsins, jafnvel þótt fyrirtækin noti kol eða koks sem hráefni og auki útstreymi gróðurhúsalofttegunda vegna þess. Þó vill ríkisstjórnin leggja áherslu á að ávallt verði nýtt besta fáanlega tækni í nýjum stóriðjuverum, sem kunna að verða reist á Íslandi á næstu árum, svo að útstreymi gróðurhúsalofttegunda vegna hráefnisnotkunar eða iðnferla verði eins lágt og tæknilega er mögulegt.

Í framkvæmdaáætluninni leggur ríkisstjórnin einkum áherslu á fjórar meginleiðir, þ.e.a.s. hvetjandi aðgerðir, fræðslu, hagstjórnartæki og þvingandi aðgerðir.

Með hvetjandi aðgerðum er átt við aðgerðir ríkisstjórnarinnar og stofnana hennar, til þess að efla starf sveitarfélaga, einkaaðila og áhugamannafélaga svo það stuðli enn frekar að takmörkun á útstreymi gróðurhúsalofttegunda eða að aukinni upptöku koltvíoxíðs.

Fræðsla er mikilvægur hluti framkvæmdaáætlunarinnar, og verður henni beint bæði að almenningi, atvinnuvegunum og nemendum í skólum landsins. Markmiðið er að efla þekkingu fólks á umhverfinu og áhrifum mannlegra athafna á loftslagið. Jafnframt er stefnt að því að virkja almenning, fyrirtæki, ýmis samtök og stofnanir til samstarfs um að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda og auka upptöku koltvíoxíðs í lífmassa.

Megináhersla er lögð á aðgerðir sem eru beinlínis hagkvæmar eða aðgerðir sem stuðla jafnframt að öðrum markmiðum og ávinningi. Af þessum sökum leggur ríkisstjórnin áherslu á eftirfarandi aðgerðir:
1. Olíusparnað, einkum í fiskveiðum, samgöngum og iðnaði.
2. Aukna nýtingu mengunarlausra, innlendra orkugjafa þar sem það er þjóðhagslega hagkvæmt.
3. Gerð heildarskipulags fyrir landnýtingu á Íslandi. Lögð verði áhersla á sjálfbæra landnýtingu og aðlögun landbúnaðar og annarra atvinnuvega að henni.
4. Landgræðslu og skógrækt til að stöðva landeyðingu, vinna upp það sem tapast hefur af ræktuðu landi og bæta gróðurfar. Jafnframt verði komið upp nytjaskógum þar sem það hentar.

Ríkisstjórninni er ljóst að torvelt verður að beita þvingandi aðgerðum í sjávarútveginum, sem er burðarásinn í efnahagslífi þjóðarinnar og skilar meira en helmingi gjaldeyristekna landsins. Ekki er heldur talið framkvæmanlegt að takmarka útstreymi koltvíoxíðs frá iðnaðarferlum að neinu marki, því að eina leiðin til þess væri að takmarka framleiðslu fyrirtækjanna.

Óvissa ríkir um árangur aðgerða, einkum þar sem flestar þeirra snerta margar smáar uppsprettur eins og eru á Íslandi. Þótt árangurinn sé óviss telur ríkisstjórnin mikilvægt að framkvæmdaáætlunin taki á öllum helstu uppsprettum gróðurhúsalofttegunda í landinu. Haft verður virkt eftirlit með árangrinum m.a. með því að vinna ítarlega útstreymisreikninga á hverju ári. Síðan mun ríkisstjórnin endurskoða framkvæmdaáætlunina í ljósi fenginnar reynslu, og efla ákveðnar aðgerðir eftir því sem þurfa þykir.

Vegna hinna sérstöku aðstæðna á Íslandi, það er að staðbundin orkuvinnsla er nú þegar að mestum hluta knúin hreinum orkugjöfum, og vegna mikilvægis fiskveiða sem erfitt er að takmarka útstreymi frá, er talsverð áhersla lögð á bindingu koltvíoxíðs í gróðri. Þannig verður landgræðsla og skógrækt efld og jafnframt stefnt að því að stöðva jarðvegseyðingu.




4. Losunarspár og aðgerðir Íslands gegn loftslagsbreytingum


Í þessum kafla er fjallað stuttlega um spár um losun gróðurhúsalofttegunda hér á landi í nánustu framtíð og til hvaða aðgerða hægt er að grípa til þess að draga úr losun þeirra. Hér verður aðeins stiklað á stóru í þessu sambandi, en nánari útfærsla á spám um losun gróðurhúsalofttegunda er að m.a. að finna í töflum í skýrslu Íslands til UNFCCC (Second Status Report for Iceland pursuant to the United Nations Framework Convention on Climate Change).

4.1. KOLTVÍOXÍÐ

Árið 1990 nam útstreymi koltvíoxíðs á Íslandi 2.147 þúsund tonnum. Í útstreymisspá, sem unnin er af Hollustuvernd ríkisins skv. leiðbeiningum frá UNFCCC, er gert ráð fyrir að útstreymi CO2 árið 2000 nemi um 2.697 þúsund tonnum (aukning um 26% frá 1990). Útstreymi CO2 verður skv. spánni um 2.893 þúsund tonn árið 2010 (35% aukning frá 1990) og 2.944 þúsund tonn árið 2020 (37% aukning).

Ef aðeins er litið á útstreymi koltvíoxíðs vegna orkuvinnslu, þ.e. útstreymi vegna iðnaðarferla undanskilið, þá var það 1.753 þúsund tonn árið 1990. Í útstreymisspá er gert ráð fyrir að útstreymi CO2 vegna orkuvinnslu verði 1.957 þúsund árið 2000 (aukning um 12% frá 1990), 2.153 þúsund tonn árið 2010 (23% aukning frá 1990) og 2.203 þúsund tonn árið 2020 (26% aukning).

Í spánni er gert ráð fyrir verulegri aukningu á útstreymi vegna iðnaðarferla vegna aukinnar stóriðju: nýs álvers Norðuráls á Grundartanga og stækkunar álversins í Straumsvík og járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga. Einnig er gert ráð fyrir aukningu á útstreymi CO2 vegna samgangna og fiskveiða. Gert er ráð fyrir að útstreymi CO2 vegna orkuframleiðslu til annarra en farartækja muni minnka, en þetta mun hafa lítil áhrif vegna þess að slík orkuframleiðsla var óveruleg árið 1990.

Á árunum 1990-2000 er gert ráð fyrir 89% aukningu á CO2-útstreymi vegna iðnaðarferla. Spáð er 12% aukningu á útstreymi CO2 vegna bruna eldsneytis. Þar af mun útstreymi frá fiskiskipaflotanum aukast um 22% og um 17% vegna samgangna á landi. Á hinn bóginn er gert ráð fyrir að samdráttur verði á losun CO2 vegna innanlandsflugs, rafmagnsframleiðslu og orkuvinnslu til iðnaðar.

Meðal aðgerða til að draga úr losun og auka upptöku CO2 má nefna:

Kolefnisupptaka. Ríkisstjórnin ákvað árið 1996 að veita 450 milljónum króna til landgræðslu og skógræktar í því skyni að auka upptöku koltvíoxíðs úr andrúmslofti, þannig að hún verði 100.000 tonnum meiri árið 2000 en árið 1990.

Breytingar á skattlagningu eldsneytis og bifreiða. Á komandi ári verður tekin upp breytt skattlagning á eldsneyti og þungaskattur lagður af. Þessi breyting er talin nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að leggja á skatt á koltvíoxíðútstreymi, en engin ákvörðun um slíka skattlagningu liggur þó ennþá fyrir. Hugmyndir um skattlagningu á eldsneytisnotkun bifreiða í stað virðisaukaskatts og innflutningsgjalda hafa verið til skoðunar, sömuleiðis hugmyndir um undanþágu gjalda fyrir rafmagnsbíla og rafgeyma í þá.

Rafmagn til skipa í höfnum. Sala á rafmagni til skipa í höfnum hefur aukist úr 8 GWh árið 1992 í 14 GWh árið 1995, sem svarar til um 1.500 tonna sparnaðar á gasolíu. Óvíst er hvort hægt sé að ná umtalsvert betri árangri á þessu sviði, en starfshópur á vegum sjávarútvegsráðherra vinnur nú að því að meta heildareftirspurn eftir rafmagni í höfnum og hvort unnt sé að mæta henni.

Aðgerðir til að draga úr útstreymi frá fiskiskipaflotanum. Vinnuhópur í sjávarútvegsráðuneyti skoðar nú hugmyndir um að auka hagkvæmni veiða og draga úr eldsneytiseyðslu fiskiskipa á heimamiðum jafnt sem á fjarlægum miðum. Vonast er til að aukinn afli vegna betra ástands helstu nytjastofna leiði ekki til aukinnar eldsneytisnotkunar, heldur dragi úr eldsneytisnotkun á sóknareiningu.

Aukin notkun endurnýjanlegra orkugjafa. Stjórnvöld hafa lagt á það áherslu á undanförnum árum og áratugum að auka hlut jarðvarma og rafmagns frá endurnýjanlegum orkulindum á kostnað jarðefnaeldsneytis, með þeim árangri að nú eru einungis tæp 2% húsa hituð með olíu. Afsláttur á verði ótryggðs rafmagns til rafskautakatla í fiskimjölsverksmiðjum, sem fyrst var veittur árið 1993, hefur leitt til þess að nú eru um 111 GWh seldar til verksmiðja sem hafa breytt úr olíu í rafmagn, sem samsvarar 11-12 þúsund tonnum minni notkunar svartolíu. Möguleikar eru á að auka hlut rafmagns á þessu sviði enn frekar.

Orkusparnaður í samgöngum og iðnaði. Starfshópar í samgöngu- og iðnaðarráðuneytum vinna nú að tillögum um orkusparnað á sínum sviðum.

Útstreymi frá iðnaðarferlum. Járnblendiverksmiðjan á Grundartanga hefur verið að draga úr notkun kola, en brenna í þeirra stað úrgangstimbri, sem telst endurnýjanlegur orkugjafi (lífmassi) og er ekki tekið með í útreikningum á heildarútstreymi Íslands.

4.2. METAN

Útstreymi metans var um 14 þúsund tonn árið 1990. Útstreymisspá gerir ráð fyrir lítilsháttar minnkun á losun metans í náinni framtíð, þar sem búist er við minnkun sorpmagns sem fer til urðunar vegna aukinnar endurvinnslu og endurnýtingar og ekki er búist við miklum breytingum á fjölda búfjár.

Aðgerðir sem miða að því að draga úr losun metans eru eftirfarandi:

Söfnun metans hófst hjá Sorpu bs. á urðunarstað á Álfsnesi í lok árs 1996. Búist er við að innan nokkurra ára muni um 1.500 tonn af metani verða safnað á Álfsnesi, eða um 10% losunar á Íslandi. Þetta myndi þýða minnkun útstreymis sem svarar um 16,5 þúsund tonnum af koltvíoxíði.

Aukin endurvinnsla mun væntanlega minnka sorpmagn til urðunar og þar með útstreymi metans frá urðunarstöðum. Á höfuðborgarsvæðinu hefur hlutfall úrgangs sem er endurunninn aukist úr 8% árið 1990 í yfir 37% árið 1996. Stjórnvöld stefna að því að helmingur úrgangs verði endurunninn árið 2000. Í því skyni verður m.a. reynt að auka endurvinnslu á pappír og lífrænum úrgangi.

4.3. TVÍKÖFNUNAREFNISOXÍÐ

Útstreymi tvíköfnunarefnisoxíðs var um 400 tonn árið 1990. Ekki er búist við miklum breytingum á losun N2O á næstu árum, en talið er að notkun köfnunarefnisáburðar, sem leggur til obbann af útstreyminu, muni standa í stað eða aukast eitthvað. Útstreymi á N2O mun aukast eitthvað með aukinni notkun hvarfakúta, en þetta mun þó ekki hafa mikil áhrif. Engar sérstakar aðgerðir eru ráðgerðar til þess að takmarka útstreymi þessarrar lofttegundar.

4.4. FLÚORKOLEFNI

Útstreymi flúorkolefna á Íslandi nam um 45 tonnum árið 1990, en var aðeins um 11 tonn árið 1995, vegna uppsetningar nýs tæknibúnaðar og bættrar stýringar í álveri ÍSAL í Straumsvík. Stækkun álversins og starfsemi álvers Norðuráls mun valda aukningu á útstreymi flúorkolefna, en það mun þó verða minna en árið 1990.

4.5. VETNISFLÚORKOLEFNI

Notkun og útstreymi vetnisflúorkolefna (HFC) var að því að best er vitað engin árið 1990. Því er hins vegar spáð að notkun þessarra efna fari vaxandi, þannig að þau verði verulegur þáttur í gróðurhúsaáhrifum af mannavöldum í byrjun næstu aldar. Ástæðan fyrir því er sú að skv. alþjóðasamningum um takmörkun á losun ósoneyðandi efna ber að hætta notkun efna á borð við klórflúorkolefni (CFC) og vetnisklórflúorkolefni (HCFC). Á næstu árum mun íslenski fiskiskipaflotinn því taka upp notkun á vetnisflúorkolefnum (HFC), sem ekki eru skaðleg ósonlaginu, en valda á hinn bóginn gróðurhúsaáhrifum. Mikilvægt er að reyna að finna efni, sem hvorki valda gróðurhúsaáhrifum eða skaða ósonlagið og mun starfshópur í sjávarútvegsráðuneytinu m.a. kanna möguleika á því að draga úr fyrirsjáanlega vaxandi notkun á HFC. Reglugerð um notkun og losun þessarra efna verður væntanlega sett innan skamms, en markmið hennar er að draga úr útstreymi þeirra.

4.6. ÓBEINAR GRÓÐURHÚSALOFTTEGUNDIR

Búist er við að útstreymi koloxíðs og rokgjarnra lífrænna efna minnki á komandi árum vegna aukinnar notkunar á hvarfakútum. Vegagerð ríkisins hyggst reyna að draga úr notkun og þar með losun rokgjarnra lífrænna efna við vegagerð og lofa niðurstöður tilrauna í þá veru góðu.

4.7. HEILDARÚTSTREYMI GRÓÐURHÚSALOFTTEGUNDA

Heildarútstreymi gróðurhúsalofttegunda á Íslandi var árið 1990 um 2.730 þúsund tonn, mælt í ígildum koltvíoxíðs. Árið 1995 var heildarútstreymið um 2.640 þúsund tonn, sem er um 3,3% samdráttur síðan 1990. Skv. bráðabirgðatölum fyrir 1996 var útstreymi þá 2.694 þúsund tonn, sem þýðir um 1,3% samdrátt frá 1990.

Heildarútstreymi árið 2000 er áætlað 3.161 þúsund tonn árið 2000 (16% aukning frá 1990), 3.445 þúsund tonn árið 2010 (26% aukning), 3.675 þúsund tonn árið 2020 (35% aukning) og 3.821 þúsund tonn árið 2025 (um 40% aukning). Þessi útstreymisspá er byggð á orkuspá og upplýsingum um aukið útstreymi vegna þegar samþykktrar stóriðju, en í henni er ekki gert ráð fyrir nýjum aðgerðum til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og auka upptöku koltvíoxíðs, sem kunna að koma til framkvæmda á næstu árum.

4.8. ÞRÓUNARAÐSTOÐ OG ALÞJÓÐLEG SAMVINNA

Framlög Íslendinga til þróunarhjálpar hafa numið um 0,1% af þjóðarframleiðslu undanfarin ár, en yfirlýst stefna ríkisstjórnarinnar er að auka framlög þannig að þau nemi 0,3-0,4% af þjóðarframleiðslu árið 2000. Samkvæmt framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum verður áhersla lögð á aðstoð á sviði jarðhitanýtingar og endurheimt gróðurlendis.

Íslendingar geta líklega lagt einna mest af mörkum til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á alþjóðavettvangi með því að aðstoða þróunarríki og önnur ríki við að nýta jarðhita til orkuvinnslu. Jarðhitaskóli S.þ. hefur starfað á Íslandi síðan 1979 og leggja íslensk stjórnvöld til um 80% fjármagns. Auk þessa hafa íslenskir aðilar aðstoðað við uppsetningu jarðvarmaveitna í Kína, Litháen, Rúmeníu, Slóvakíu og fleiri ríkjum.

Líklegt er að í nýjum viðauka við samninginn verði að finna ákvæði um sameiginlega framkvæmd, þar sem iðnríkin geta í stað þess að minnka losun í eigin landi tekið þátt í verkefnum í ríkjum Mið- og Austur-Evrópu, sem leiða til minni losunar gróðurhúsalofttegunda og fengið það viðurkennt til frádráttar á losun í eigin landi.

Íslendingar búa yfir umtalsverðri þekkingu á jarðvegseyðingu og aðferðum við að stemma stigu við henni. Samkvæmt framkvæmdaáætluninni um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum mun Þróunarsamvinnustofnun Íslands leitast við að bjóða fram aðstoð íslenskra sérfræðinga á sviði gróðureyðingar og landgræðslu í verkefnum á þessu sviði í þróunarríkjum. Nú í september var haldin hér á landi alþjóðleg ráðstefna um eyðimerkurmyndun og jarðvegseyðingu, þar sem þátttakendum gafst tækifæri á að bera saman orsakir og afleiðingar gróðureyðingar við ólíkar aðstæður og kynnast þeim aðferðum sem hér hafa verið notaðar við að hefta gróðureyðingu og endurheimta landgæði.



5. Áhrif loftslagsbreytinga á Íslandi


Mikil óvissa ríkir um hugsanlegar afleiðingar loftslagsbreytinga af mannavöldum á Íslandi. Niðurstaða nýlegra útreikninga benda til þess að líkur séu til þess að hlýnun á norðanverðu Atlantshafi, þ.m.t. Íslandi, verði heldur minni en annars staðar á svipuðum breiddargráðum.

Ísland liggur á hafsvæði þar sem mætast kaldir og hlýir haf- og loftstraumar. Hugsanlegar breytingar á hafstraumum og veðrakerfum, þ. á m. lægðabrautum, gætu því haft umtalsverðar afleiðingar fyrir Íslendinga. Spálíkön um veðurfarsbreytingar eru að svo stöddu ekki nægjanlega fullkomin til þess að hægt sé að gefa út nákvæmar spár fyrir einstök haf- og landsvæði og óvissumörk eru fremur há hvað varðar Ísland og hafið í kring. Samkvæmt niðurstöðum norræns rannsóknarverkefnis um veðurfarsbreytingar og orkuvinnslu, þá er talið hugsanlegt að meðalhiti á sumrum á Íslandi aukist á næstu áratugum sem svarar um 0,25° C á áratug og að meðalhiti á veturna aukist um 0,35° á áratug. Þessum spám ber að taka með varúð, þar sem óvissumörk eru mjög há. Talið er líklegast að einhver hlýnun eigi sér stað næstu áratugi á Íslandi, en það er þó ekki talið útilokað að veðurfarsbreytingar hafi í för með sér kólnun hér á landi. Eitt helsta áhyggjuefni Íslendinga varðandi loftslagsbreytingar af mannavöldum eru hugsanlegar afleiðingar þeirra á hafstraumakerfi jarðar og Golf-strauminn, sem veldur því að meðalhiti á Íslandi er mun meiri en búast mætti við miðað við hnattstöðu landsins.

Vegna hinnar miklu óvissu um hvaða áhrif veðurfarsbreytingar af mannavöldum kynnu að hafa á Íslandi, hefur ekki verið ráðist í gerð áætlana um hvernig bregðast skuli við þeim. Ríkisstjórnin leggur áherslu á að auka rannsóknir og vöktun, til þess að byggja hugsanlegar aðlögunaraðgerðir á. Sérstök áhersla verður lögð á rannsóknir á því hver áhrif veðurfarsbreytinga á hafsvæðið í kringum Ísland og þar með á fiskigengd kunni að verða.

5.1. FISKVEIÐAR

Að svo stöddu er talið ákaflega erfitt að spá um hugsanlegar afleiðingar veðurfarsbreytinga af mannavöldum á fiskistofna og fiskveiðar í kringum Ísland og á nálægum hafsvæðum. Hitt er ljóst að allar breytingar á hafstraumum og hitastigi sjávar myndu hafa miklar afleiðingar á alla grunnþætti sem hafa áhrif á fiskveiðar, s.s. frumframleiðslu (ljóstillífun þörunga) í hafinu, útbreiðslu einstakra fiskistofna, fiskigöngur og staðsetningu hrygningarstöðva. Þetta sést glöggt á þeirri staðreynd að breytingar á ytra umhverfi hafa haft veruleg áhrif á viðkomu og hegðun fiskistofna á Íslandsmiðum á þessarri öld.

Vegna mikilvægi fiskveiða fyrir afkomu Íslendinga hefur ríkisstjórnin ákveðið að auka rannsóknir á beinum og óbeinum áhrifum hugsanlegra loftslagsbreytinga á fiskimiðin, í því skyni að auðvelda aðlögun að þeim.

5.2. HÆKKUN SJÁVARBORÐS

Hugsanleg hækkun á sjávarborði vegna hlýnunar lofthjúpsins er nokkurt áhyggjuefni fyrir Íslendinga, enda býr mikill meirihluti landsmanna við ströndina eða skammt frá henni. Hækkun sjávarborðs gæti valdið töluverðum skaða vegna aukinnar tíðni sjávarflóða og skemmda sem þau gætu valdið á höfnum, vegum og öðrum mannvirkjum.

Sjávarflóð hafa valdið umtalsverðu tjóni í bæjum við suðurströndina og á fleiri stöðum undanfarna áratugi. Í sumum bæjum þyrfti líklega að grípa til sérstakra aðgerða til þess að vernda þá gegn sjávarflóðum, jafnvel þó að hækkun sjávarborðs yrði ekki mikil. Auk hættu á tíðari og skaðlegri sjávarflóðum gæti hækkun á yfirborði sjávar valdið því að rof af völdum sjávar ykist, einkum við suðurströndina.

5.3. LANDBÚNAÐUR OG SKÓGRÆKT

Sveiflur í veðurfari hafa umtalsverð áhrif á landbúnaðarframleiðslu á Íslandi. Hugsanlegar afleiðingar veðurfarsbreytinga af mannavöldum á íslenskan landbúnað voru kannaðar af íslenskum vísindamönnum í tengslum við verkefni, sem unnið var fyrir Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNEP). Athugun þeirra leiddi í ljós að hlýnun sem svaraði um 1,3° C gæti leitt til 16-19% aukningu á heyframleiðslu á Íslandi. Ekki var reiknað með öðrum hugsanlegum áhrifum loftslagsbreytinga á einstaka þætti veðurfars, s.s. úrkomu, vinda og skýjafars.

Búast mætti við því að aukning meðalhita á Íslandi myndi verða til þess að ýmsar plágur (skordýr og plöntusjúkdómar) myndu færast í vöxt í landbúnaði.

5.4. VATNSORKA OG RAFORKUFRAMLEIÐSLA

Í tengslum við norrænt rannsóknarverkefni um loftslagsbreytingar og orkuvinnslu var reynt að meta hvaða áhrif hugsanleg hlýnun kynni að hafa á vatnsbúskap og raforkuvinnslu á Íslandi. Talið var að áhrifin yrðu einkum þau að möguleikar til raforkuframleiðslu myndu aukast, vegna bráðnunar jökla og aukins rennslis í jökulám.



6. Rannsóknir og fræðsla


Rannsóknarráð Íslands varð aðili að alþjóðlegu samstarfi um rannsóknir á hnattrænum umhverfisbreytingum (IGBP - International Geosphere Biosphere Programme) árið 1995 og er í þann mund að hrinda af stað rannsóknaráætlun um hnattrænar breytingar í samvinnu við rannsóknarstofnanir og ráðuneyti. Þessi rannsóknaráætlun mun einnig styrkja tengsl við WCRP (World Climate Research Programme) og HDP (Human Dimensions of Global Change).

Í þessum kafla verður fjallað um helstu rannsóknir sem nú eru stundaðar hér á landi varðandi loftslagsbreytingar af mannavöldum. Þetta er ekki tæmandi upptalning, þar sem margar aðrar rannsóknir koma beint eða óbeint inn á loftslagsbreytingar og afleiðingar þeirra.

6.1. VEÐURFAR OG VÖKTUN ANDRÚMSLOFTSINS

6.1.1. Rannsóknir á veðurfari

Veðurstofa Íslands safnar skipulega upplýsingum um veður frá um 130 athugunarstöðvum á landinu og birtir reglulega upplýsingar um veðurfar og veðurfarsbreytingar, sem byggja á þessarri vöktun og niðurstöðum rannsókna. Veðurstofan hefur tekið þátt í nokkrum alþjóðlegum rannsóknarverkefnum varðandi loftslag og loftslagsbreytingar á norðurslóðum, þ. á m. í norrænu verkefni um loftslagsbreytingar og vatnsorku (í samvinnu við Orkustofnun). Reynt var að meta hugsanlegar afleiðingar loftslagsbreytinga vegna gróðurhúsaáhrifa á Íslandi og hvaða áhrif þær myndu hafa á raforkuvinnslu í vatnsorkuverum. Veðurstofan hefur einnig skoðað spálíkön Max Planck rannsóknastöðvarinnar í veðurfræði í Hamborg og borið þau saman við niðurstöður veðurathugana á Íslandi.

6.1.2. Vöktun andrúmsloftsins

Staðsetning Íslands í miðju Norður-Atlantshafi þýðir að landið er mikilvæg mælistöð vegna vöktunar andrúmsloftsins á heimsvísu. Nokkuð ítarlegar mælingar hafa verið gerðar í mörg ár á þykkt ósonlagsins yfir Íslandi og á síðari árum hafa farið fram ýmsar mælingar á gróðurhúsalofttegundum. Mælingar á ósonlaginu með Dobson-mæli hafa verið gerðar af Veðurstofu Íslands síðan árið 1957.

Veðurstofan hefur tekið þátt í nokkrum alþjóðlegum samvinnuverkefnum um vöktun andrúmsloftsins. Hún hefur m.a. mælt þykkt ósonlagsins í Reykjavík með Brewer-mæli í samvinnu við Aristótelesarháskóla í Þessalóniku í Grikklandi, auk þess sem magn NO2 og SO2 í mismunandi hæð yfir jörðu hefur verið mælt reglulega. Mælingar á magni ósons við jörðu hafa farið fram á tveimur íslenskum veðurathuganastöðvum, í samvinnu við National Oceanic and Atmospheric Administration (NOAA) í Bandaríkjunum. Vikulegar mælingar á styrk koltvíoxíðs (CO2) og metans (CH4) hafa einnig verið gerðar á Stórhöfða í Vestmannaeyjum í samvinnu við NOAA. Þar hefur einnig verið safnað saman upplýsingum um styrk koloxíðs (CO) í andrúmslofti í samvinnu við Maryland-háskóla í Bandaríkjunum. Á veturna hafa verið gerðar vikulegar mælingar á ástandi veðrahvolfs og neðri lögum heiðhvolfs með loftbelg, sem sendur er upp frá Keflavíkurflugvelli. Þær mælingar eru í samvinnu við INTA (Instituto Nacional de Tecnica Aerospatial) í Madríd á Spáni.

6.2. FORNVEÐURFAR

6.2.1. Ísboranir á Grænlandi: GRIP og NGRIP-verkefnin

Íslendingar tóku virkan þátt í Evrópska GRIP (Greenland Icecore Project) verkefninu, sem fólst í borunum á Grænlandsjökli á árunum 1989-1992. Tilgangur borananna var að lesa úr ískjörnum upplýsingar um breytingar sem átt hafa sér stað á lofthjúpnum og veðurfari í því skyni að skilja betur eðli breytinganna og hvaða áhrif aukið útstreymi gróðurhúsalofttegunda kann að hafa á loftslag jarðar. Vísindamenn vonast einnig til þess að öðlast betri skilning á loftslagsbreytingum á Norður-Atlantshafi og því lykilhlutverki sem Golfstraumurinn gegnir í því sambandi. Sérfræðingar við Raunvísindastofnun Háskóla Íslands vinna í samvinnu við danska og franska vísindamenn við rannsóknir á geislavirkum samsætum í borkjörnunum. Með því að skoða styrk samsætna í 3028,8 metra löngum borkjarna er hægt að lesa loftslagssögu Norður-Atlantshafsins síðustu 200.000 ár.

Bandarísku ísborunarverkefni á Grænlandsjökli (GISP II), lauk árið 1993. Athuganir á borkjörnum úr GRIP og GISP verkefnunum sýndu sömu niðurstöður í flestum atriðum. Þó var nokkur munur á niðurstöðum frá ákveðnu tímabili, sem nær m.a. yfir hlýskeið fyrir 120.000 árum. Talið er að skilningur á orsökum þessa hlýskeiðs geti varpað ljósi á þróun loftslags á okkar tímum. Til þess að afla frekari upplýsinga um þetta tímabil var ákveðið að hrinda af stað nýju alþjóðlegu rannsóknarverkefni (NGRIP). Boranir hófust árið 1996 og munu halda áfram til 1998. Sérfræðingar frá Raunvísindastofnun munu rannsaka samsætustyrk í ískjörnunum ásamt sérfræðingum frá Danmörku og Frakklandi.

6.2.2. Fornveðurfar í íslenskum setlögum

Árið 1993 hófst rannsóknaverkefni íslenskra og bandarískra vísindamanna, PALE (Paleoclimate of Arctic Lakes and Estuaries), sem miðar að því að kanna upplýsingar um loftslag, sem geymdar eru í setlögum í vötnum og grunnsævi við Ísland. PALE-verkefnið er hluti af áðurnefndu IGBP-áætlun og miðar að því að reyna að endurskapa loftslagssögu á norðurslóð sl. 150.000, 20.000 og 2.000 ár og bera saman við hnattrænar loftslagsbreytingar á sömu tímabilum.

Helsti tilgangur PALE-verkefnisins á Íslandi er að rannsaka loftslagsbreytingar á Íslandi frá því að ísöld lauk. Þetta er gert með því að rannsaka setlagakjarna úr stöðuvötnum á nokkrum stöðum á landinu og bera þær upplýsingar sem þar eru geymdar saman við upplýsingar úr setkjörnum af landgrunninu. Með því móti er vonast til þess að hægt sé að bera saman aðstæður á landi og í sjó og gagnkvæm áhrif breytinga þar.

6.2.3. Rannsóknir á setlögum fyrir Norðurlandi

Rannsóknaverkefninu PANIS var hleypt af stokkunum árið 1995, en því er ætlað að afla upplýsinga um fornveðurfar út frá borkjörnum úr setlögum af landgrunninu úti fyrir Norðurlandi. Verkefnið er unnið í samvinnu háskóla í Reykjavík, Björgvin í Noregi og Árósum í Danmörku. Með verkefninu er vonast til að betri upplýsinga verði aflað um gjóskutímatal í sjávarseti og að heillegri mynd fáist um þróun loftslags á svæðinu frá Grænlandi til Skandinavíu.

6.3. RANNSÓKNIR Á ÁHRIFUM LOFTSLAGSBREYTINGA Á ÍSLENSK VISTKERFI

Rannsóknir á áhrifum loftslagsbreytinga og aukins magns koltvíoxíðs á andrúmslofti á vistkerfi fara fram á rannsóknarreit í Gunnarsholti á Rangárvöllum. Þessar rannsóknir fara fram í samvinnu Rannsóknastofnunar landbúnaðarins, Skógræktar ríkisins og Landgræðslu ríkisins. Helsta einstaka rannsóknaverkefnið þar felst í því að athuga hvaða áhrif aukið magn koltvíoxíðs og aðrir breytilegir umhverfisþættir hafa á vöxt aspartrjáa. Þetta verkefni er hluti af norrænu rannsóknarverkefni og IGBP-verkefni um áhrif loftslagsbreytinga á landbúnað, skóga og jarðveg.

Tveir tilraunareitir hafa verið settir upp á Íslandi, sem hluti af ITEX (International Tundra Experiment) netinu. Rannsóknastofnun landbúnaðarins sér um mælingar á þessum reitum í samvinnu við Háskólann í Gautaborg í Svíþjóð.

6.4. LANDGRÆÐSLA OG SKÓGRÆKT

Landgræðsla ríkisins og Rannsóknastofnun landbúnaðarins hafa nýlega lokið umfangsmiklu verkefni við að kortleggja jarðvegsrof á Íslandi. Að auki hafa verið gerð gróðurkort af um 2/3 hlutum landsins og vinnur Náttúrufræðistofnun Íslands nú að því að ljúka gerð þeirra. Árið 1993 gáfu Landmælingar Íslands, ásamt Landgræðslunni og RALA, út kort af gróðurhulu landsins, sem unnið var úr gögnum frá LANSAT gervitunglinu.

Mikið rannsóknar- og þróunarstarf fer nú fram í landgræðslu og skógrækt á vegum Rannsóknastöðvar Skógræktar ríkisins á Mógilsá, Rannsókastofnunar landbúnaðarins og Landgræðslu ríkisins. Töluverður árangur hefur náðst í ræktun og fræsöfnun af plöntum sem teljast mikilvægar við landgræðslu.

6.5. HAFRANNSÓKNIR

Ástand hafsins við Ísland er vaktað af Hafrannsóknarstofnun, sem safnar upplýsingum um hitastig sjávar og útbreiðslu sjógerða. Rannsóknir á þörungum og dýrasvifi eru gerðar á vorin og sumrin. Flæði hlýsjávar norður fyrir land er vaktað með stöðugum athugunum á hafstraumum.

Meðal rannsókna sem Hafrannsóknarstofnun stendur fyrir í samvinnu við erlendar vísindastofnanir má nefna rannsóknir á koltvíoxíði í hafinu og flæði þess á milli sjávar og andrúmsloftsins, sem staðið hafa yfir síðan 1983. Rannsóknaverkefni um hringrás kolefnis í norðurhöfum hófst árið 1993, í samvinnu við norska og sænska vísindamenn. Markmið þessa verkefnis er m.a.: Að mæla upptöku hafsins á koltvíoxíði í norðurhöfum; að auka skilning á eðlisfræðilegum, líffræðilegum og jarðefnafræðilegum ferlum, sem hafa áhrif á upptöku og losun koltvíoxíðs; að auka þekkingu á lóðréttri blöndun sjávar og tengsl hennar við breytingar á hitastigi og koltvíoxíðsmagni; og að meta hugsanlegar afleiðingar loftslagsbreytinga í framtíðinni á kolefnishringrásina í norðurhöfum.

6.6. FRÆÐSLA

Í 17. grein aðalnámskrár grunnskóla segir að umhverfismennt eigi að vera "þáttur í kennslu í öllum námsgreinum í grunnskólum, þó í mismiklum mæli". Yfirleitt er fræðsla um umhverfismál tengd kennslu í náttúruvísindum. Á framhaldsskólastigi er sjaldnast nokkur bein kennsla á sviði umhverfismála, en sumir framhaldsskólar hafa boðið upp á kennslu og jafnvel námsbrautir á umhverfissviði.

Umhverfisráðuneytið og stofnanir þess hafa reynt að gera skólum og þá sérstaklega grunnskólum auðveldara að nálgast fræðsluefni um gróðurhúsaáhrif og loftslagsbreytingar. Árið 1994 gáfu umhverfisráðuneytið og Hollustuvernd ríkisins út fræðslubækling um ósonlagið og gróðurhúsaáhrif, sem dreift var í 20.000 eintökum til nemenda á aldrinum 14-16 ára. Stefnt er að útgáfu annars slíks bæklings á næstunni.

Varðandi almannafræðslu, þá hefur umhverfisráðuneytið komið upplýsingum um loftslagsbreytingar á framfæri í gegnum skýrslur, útgáfur og með aðstoð fjölmiðla. Skýrsla um útstreymi gróðurhúsalofttegunda á Íslandi var gefin út árið 1992. Í skýrslum um ástand umhverfismála og í fréttabréfi ráðuneytisins á Veraldarvefnum hefur sömuleiðis verið leitast við að koma upplýsingum um loftslagsbreytingar á framfæri. Í bæklingnum Umhverfið og við, sem Kvenfélagasamband Íslands gaf út í samvinnu við umhverfisráðuneytið árið 1996 er að finna ráð um hvernig almenningur getur lagt sitt af mörkum til þess að draga úr loftslagsbreytingum.

Reynt hefur verið að ná sérstaklega til ýmissa hagsmunahópa og talsmanna atvinnugreina. Má þar m.a. nefna að árið 1996 var haldinn kynningarfundur um loftslagssamning S.þ. fyrir forsvarsmenn í stjórnkerfinu, iðnaði, sjávarútvegi, áhugamannasamtökum o.s.frv., sem var vel sóttur. Umhverfisráðuneytið styrkti einnig tveggja daga ráðstefnu um kolefnisbúskap Íslands, þar sem sérfræðingar héldu fyrirlestra um náttúrulega hringrás kolefnis og áhrif inngripa mannsins í þá hringrás.

Áhugi fjölmiðla á loftslagsbreytingum og alþjóðlegum skuldbindingum Íslands þar að lútandi hefur farið mjög vaxandi á undanförnum misserum, ekki síst í tengslum við umræðu um nýja stóriðju og aukna skógrækt. Umhverfisráðuneytið stóð fyrir námskeiði fyrir fréttamenn um umhverfismál, þ. á m. um loftslagsbreytingar, fyrr á þessu ári.

Árið 1993 lét umhverfisráðuneytið gera könnun á þekkingu almennings á gróðurhúsaáhrifum og loftslagsbreytingum af manna völdum. Þar kom í ljós að 56% aðspurðra sögðust vita hvað gróðurhúsaáhrif væru eða hafa "einhverja vitneskju" þar að lútandi, en 44% sögðust ekki vita hvað gróðurhúsaáhrifin væru. Ekki hefur verið gerð sams konar könnun síðan, en það virðist þó líklegt að hlutfall þeirra sem telja sig vita hvað gróðurhúsaáhrif séu hafi hækkað eitthvað, þar sem fræðsla og fjölmiðlaumfjöllun um málið hefur aukist mikið síðan.



7. Samningaviðræður um að styrkja ákvæði loftslagssamningsins


7.1. AÐDRAGANDI

Á fyrsta þingi aðildarríkja Rammasamnings S.þ. um loftslagsbreytingar sem haldið var í Berlín 28.mars til 7. apríl 1995, var niðurstaðan að núverandi ákvæði samningsins væru ekki fullnægjandi ef ná ætti markmiðum hans og var því samþykkt að hefja samningaviðræður um ráðstafanir til að styrkja ákvæði samningsins og efla framkvæmd hans eftir árið 2000. Í ákvörðun þingsins segir að stefnt sé að því að samningaviðræðurnar leiði til niðurstöðu þar sem skuldbindingar til handa aðildarríkjum sem skráð eru í Viðauka I við samninginn (þ.e. OECD-ríkin og ríki Austur-Evrópu) verði auknar með ákvæðum um:
- stefnumörkun og aðgerðir,
- mælanlegar takmarkanir eða samdrátt í útstreymi gróðurhúsalofttegunda af mannavöldum og bindingu gróðurhúsalofttegunda, miðað við tilgreind ártöl, s.s. árin 2005, 2010 og 2020.

Í ákvörðuninni segir að m.a. skuli taka mið af mismunandi upphafsstöðu aðila, tækni sem tiltæk er og öðrum kringumstæðum sem og þörfinni á sanngjörnu og viðeigandi framlagi frá hverju og einu aðildarríkjanna.

Í ákvörðuninni segir ennfremur að samningaviðræðurnar skuli ekki fela í sér auknar skuldbindingar þróunarríkja, en að leitað skuli leiða til að efla framkvæmd þeirra aðgerða sem tilgreindar eru í grein 4.1 í Rammasamningnum (í grein 4.1 eru ýmis ákvæði sem varða öll aðildarríki samningsins).

Með ákvörðuninni var stofnuð sérstök samninganefnd (Ad-hoc Group on the Berlin Mandate - AGBM) sem kom saman í fyrsta sinn í ágúst 1995. Áttundi og síðasti fundur nefndarinnar er fyrirhugaður í október 1997. Niðurstöður samningaviðræðna verða lagðar fyrir þing aðildarríkjanna sem haldið verður í Kyoto í desember nk.

7.2. ÁHERSLUATRIÐI ÍSLENSKRA STJÓNVALDA

Íslensk stjórnvöld skrifuðu undir Rammasaminginn þegar hann var lagður fram til undirritunar í Ríó de Janeiro í júní 1992. Tillaga um fullgildingu samningsins var lögð fyrir 116. löggjafaþing og var hún samþykkt og Ísland varð 26. aðildarríki samningsins á árinu 1994.

Þátttaka Íslands í samningaviðræðunum eftir fyrsta fund aðildarríkjanna kom til sérstakrar umfjöllunar í ríkisstjórninni um mitt ár 1995 og var þá ákveðið að taka virkan þátt í viðræðunum með áherslu á eftirfarandi atriði:
- að nýjar skuldbindingar taki til allra gróðurhúsategunda og aðgerðir til að binda kolefni í jörðu og gróðri verði metnar jafngildar aðgerðum til að draga úr losun,
- að tekið verði tillit til sérstakra aðstæðna einstakra ríkja, sérstaklega ríkja sem mæta orkuþörf sinni að verulegu leyti með endurnýjanlegum orkugjöfum,
- að nýjar skuldbindingar takmarki ekki möguleika aðildarríkja til að auka endurnýjanlega orkugjafa vegna iðnframleiðslu jafnvel þó framleiðsluferlin ykju losun staðbundið.

Við upphaf samningaviðræðnanna ákvað ríkisstjórnin að skipa sérstakan samráðshóp undir stjórn umhverfisráðuneytis til að fylgjast með og undirbúa þátttöku Íslands í samningaviðræðunum. Frá upphafi áttu landbúnaðar-, sjávarútvegs-, iðnaðar- og viðskipta-, samgöngu- og utanríkisráðuneyti aðild að þessu samráði. Á þessu ári hafa embættismenn úr forsætis- og fjármálaráðuneyti einnig tekið þátt í undirbúningi samningaviðræðnanna.

7.3. HELSTU TILLÖGUR SEM FRAM HAFA KOMIÐ

Frestur til að leggja fram tillögur í samingaviðræðunum rann út í byrjun júní 1997. Fjölmargar tillögur liggja nú fyrir og á samningafundi í júlí náðist mikilvægur árangur í því að slá saman áþekkum tillögum og að jafna ýmis minniháttar ágreiningsatriði. Öll mikilvægustu atriði samningsins eru þó enn óútkljáð, eins og kemur fram í eftirfarandi yfirliti, þar sem stuttlega er fjallað um erfiðustu ágreiningsefnin:

7.3.1. Losunar- og tímamörk

Nokkuð víðtæk samstaða er um að samningurinn skuli fela í sér lagalega bindandi losunarmörk miðað við ákveðna tímasetningu. Aftur á móti eru mjög skiptar skoðanir um hver þau mörk eiga að vera.

Fyrir Berlínarfundinum 1995 lá tillaga að bókun frá Samtökum smáeyjaríkja þess efnis að losun koltvíoxíðs af mannavöldum í ríkjum sem tiltekin eru í Viðauka I í samingnum, skuli vera 20% minni árið 2010 en árið 1990. ESB hefur lagt fram tillögu um að losun tiltekinna gróðurhúsalofttegunda af mannavöldum í löndum í Viðauka I, skuli vera 7,5% minni árið 2005 og 15% minni árið 2010 miðað við árið 1990. Þá hafa verið lagðar fram tillögur um 5% minnkun árið 2005 og 10% árið 2010. Þá er rétt að geta þess að Ástralía hefur lagt til að miðað verði við að losunarkvótar einstakra ríkja í Viðauka I verði frá -30% til +40% miðað við viðmiðunarár, allt eftir getu einstakra ríkja til að draga úr losun. Í sumum tillögum er viðmiðunarár ekki tiltekið, en almennt er talið að ekki sé mögulegt að ná samkomulagi um annað viðmiðunarár en 1990.

Íslensk stjórnvöld hafa hvorki sett fram tillögu um losunarmörk né tekið afstöðu til fyrirliggjandi tillagna, en hafa lagt áherslu á sveigjanleika, þar sem tekið sé tillit til sérstakra aðstæðna einstakra ríkja.

Bandaríkjamenn vilja að losunarmörk verði lagalega bindandi, en hafa enn ekki gefið upp hvaða tölur þeir vilji að miðað verði við.

Í þessu sambandi er rétt að geta þess að í þeim losunarspám sem gerðar hafa verið gera allflest ríki ráð fyrir að losun gróðurhúsaloftegunda af mannavöldum muni vaxa meira en 20% á tímabilinu 1990 til 2010.

7.3.2. Sérstakar aðstæður einstakra ríkja

Í samningsumboðinu sem samþykkt var á Berlínarfundinum árið 1995 segir að taka beri tillit til mismunandi upphafsstöðu og hvernig aðilar hafi nú þegar brugðist við vandanum, uppbyggingar hagkerfisins og auðlindagrunns, þörfinni fyrir að viðhalda sjálfbærum hagvexti, þeirri tækni sem tiltæk er og öðrum kringumstæðum hvers og eins ríkis. Þá hefur Alþjóða vísindanefndin um loftslagsbreytingar (IPCC) viðurkennt að flatur niðurskurður leiði til mun hærri heildarkostnaðar við að ná sama árangri en ef losunarmörkum er skipt á aðildarríkin í samræmi við aðstæður hvers og eins.

Þrátt fyrir þessi ákvæði og niðurstöðu IPCC er eitt helst ágreiningsefni samningaviðræðnanna hvort og hvernig eigi að taka tillit til sérstakra aðstæðna í einstökum ríkjum þegar losunarmörk eru sett.

ESB, Bandaríkjamenn og ýmis þróunarríki hafa mælt gegn því að samið verði um mismunandi losunarmörk fyrir einstök ríki sem tiltekin eru í Viðauka I við samninginn. Þessi í stað vilja þessi ríki flatan niðurskurð, þ.e. sömu hlutfallstölu (%) fyrir hvert og eitt Viðauka I ríki.

Fjölmörg ríki, þar með talið Ísland í samstarfi við norsk stjórnvöld, hafa lagt fram tillögur um að losunarmörk verði mismunandi eftir aðstæðum hvers og eins. Í þeim hópi eru m.a. Japan, Sviss og Ástralía sem hafa lagt tillögur um mismunandi leiðir til að taka tillit til aðstæðna þannig að þau ríki sem geti sýnt fram á að þau eigi erfiðara með að draga úr losun fái meira svigrúm en hin sem talin eru eiga tiltölulega auðvelt með að draga úr losun.

Bandaríkjamenn og ESB viðkenna að aðstæður til að draga úr losun séu mismunandi og af þeim sökum yrði kostnaði vegna aðgerða misskipt. En þessir aðilar og ýmis þróunarlönd telja að ekki sé ráðrúm til að þróa framkvæmanlega leið til að taka á þessu atriði á þeim stutta tíma sem til stefnu er. Talsmenn þessara viðhorfa hafa þó gefið í skyn að það megi hugsanlega taka þetta til frekari skoðunar síðar.

Í þessu sambandi er rétt að geta þess að ESB-ríkin hafa gert samkomulag sín á milli um hvernig þau hyggjast dreifa byrðunum ef samningar takast um að draga úr heildarlosun um 15%. Samkvæmt því koma nokkur ríki til með að geta aukið losun, t.d. Portúgalir um 43%, Grikkir um 31% og Svíar um 5%, á meðan önnur þurfa að draga úr losun um meira en 15%, t.d. Lúxemborg um 30% og Danir og Þjóðverjar um 25%. Þá geta Frakkar og Finnar verið með óbreytta losun miðað við 1990.

7.3.4. Sveigjanleiki

Mörg ríki leggja áherslu á að samningurinn verði að tryggja sveigjanleika sem geri mögulegt að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á sem hagkvæmastan hátt. Í þessu sambandi hafa komi fram tillögur um að hægt verði að eiga viðskipti með losunarkvóta á milli ríkja og að fleiri en eitt ríki geti haft samvinnu um framkvæmdir sem miða að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.

Nokkur ríki, þ.m.t. Samtök smáeyjaríkja, hafa andmælt slíku fyrirkomulagi og leggja áherslu á að hvert ríki um sig eigi að takast á við sínar skuldbindingar og að ákvæði um sveigjanleika muni virka letjandi á aðgerðir til að draga úr losun.

Bandaríkin, Ástralía, Nýja Sjáland, Noregur og fleiri ríki vilja tryggja sem mestan sveigjanleika þannig að litlar sem engar takmarkanir verði settar á viðskipti á milli þeirra ríkja sem tiltekin eru í Viðauka I. Þá vilja þessi ríki einnig opna fyrir þann möguleika að þau ríki sem tiltekin eru í Viðauka I geti átt samstarf innbyrðis og við þróunarríki um framkvæmdir sem draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og jafnframt bókfært hluta af þeirri minnkun sem kann að skapast af þeim framkvæmdum á þann aðila sem fjármagnar verkið (sameiginleg framkvæmd eða "joint implemention").

ESB styður ákvæði um sveigjanleika en með þeim fyrirvara að fyrst verði að tryggja að samningurinn í heild dragi verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda. Þá hefur ESB haft efasemdir um sameiginlegar framkvæmdir með þróunarríkjum þar sem erfitt geti reynst að meta raunveruleg áhrif þeirra.

Íslensk stjórnvöld hafa verið jákvæð gagnvart hugmyndum sem skapa sveigjanleika við framkvæmd samningsins.

7.3.5. Lofttegundir og binding

Skiptar skoðanir eru um hvaða lofttegundir eigi að falla undir samninginn þrátt fyrir að Berlínarumboðið sé miðað við allar gróðurhúsalofttegundir. Samtök smáeyjaríkja leggja til að eingöngu verði miðað við koltvíoxíð. Japan hefur einnig verið á sömu skoðun þar sem enn sé talsverð óvissa bundin við þær aðferðir sem notaðar eru til að mæla losun og meta áhrif annarra efna.

Bandaríkjamenn hafa lagt til að samningurinn nái til 6 helstu gróðurhúsalofttegundanna (CO2, CH4, N2O, HFC, PFC og SF6), en ESB hefur þrjár lofttegundir í sínum tillögum og leggur til að öðrum þremur verði bætt við eftir árið 2000.

Sömuleiðis eru skiptar skoðanir um hvort taka eigi tillit til aðgerða einstakra ríkja til að auka bindingu koltvíoxíðs, eins og þó er gert ráð fyrir í Berlínarumboðinu. Bandaríkin, Nýja-Sjáland og ýmis önnur ríki hafa lagt til að tekið verði tillit til sérstakra aðgerða til að auka bindingu koltvíoxíðs í losunarbókhaldi einstakra ríkja. Japan hefur aftur á móti mælt gegn því og bendir á að slíku bókhaldi fylgi talsverð óvissa sem kunni að veikja samkomulagið. ESB hefur enn ekki fullmótaða afstöðu til þessa máls.

Íslensk stjórnvöld hafa stutt hugmyndir um að samningurinn nái til allra gróðurhúsalofttegunda sem skipta máli, þ.e. fyrrgreindra sex lofttegunda, og að tekið verði tillit til aðgerða einstaka ríkja við að auka bindingu.

7.3.6. Stefnumörkun og aðgerðir

ESB hefur lagt fram tillögu um ýmsar aðgerðir sem aðildarríki samningsins sem skráð eru í Viðauka I yrðu skuldbundin til að framkvæma. Í tillögum ESB eru m.a. tillögur um að Viðauka I ríkin yrðu skuldbundin til að afnema styrki sem hvetja til notkunar á kolefnaríkum orkugjöfum og að komið verði á koltvíoxíðsskatti. Þá er einnig að finna í tillögum ESB ákvæði um að afnema alþjóðlegt samkomulag sem segir að eldsneyti sem selt er flugvélum í alþjóðlegu flugi og skipum í alþjóðlegum siglingum skuli vera skattfrjálst.

Bandaríkin, Ástralía, Japan og fleiri ríki leggja áherslu á sjálfstæði einstakra ríkja til að velja þær leiðir sem þau telja heppilegastar. Þessi ríki telja óheppilegt að samningurinn hafi nákvæm fyrirmæli um tilteknar aðgerðir þar sem aðstæður í einstökum ríkjum séu mismunandi.

Íslensk stjórnvöld hafa tekið undir hugmyndir um sameiginlega stefnumörkun og aðgerðir, en hafa gert efnislegar athugasemdir við einstaka liði í tillögum ESB.

7.4. HORFUR Í SAMNINGAVIÐRÆÐUNUM

Aðgerðir til að takmarka losun gróðurhúsalofttegunda munu hafa veruleg áhrif á efnahagsstarfsemi og lífsafkomu einstakra ríkja. Því er eðlilegt að samningagerð sé erfið.

Framangreind upptalning sýnir að ýmis vandasöm atriði hafa enn ekki verið til lykta leidd á þeim 7 samingafundum sem fram hafa farið hingað til. Einn samningafundur er eftir fyrir aðildarríkjaþingið í desember og því er eðlilegt að ýmsir sjái á því tormerki að samningar takist á þeim stutta tíma sem til stefnu er.

Í þessu sambandi ber að hafa í huga að fjölmargir þjóðarleiðtogar hafa ítrekað undirstrikað mikilvægi þess að ná einhverju samkomulagi í Kyoto. Það er því mikill þrýstingur um einhvern sýnilegan árangur af þeirri miklu vinnu sem fram hefur farið frá því að Berlínarumboðið var samþykkt árið 1995.

Þá er einnig mikilvægt að gera sér ljóst að almennt er álitið að væntanlegt samkomulag í Kyoto verði aðeins fyrsti áfangi af mörgum til að styrkja samninginn svo takast megi að stöðva vaxandi uppsöfnun gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftinu.

Það er ólíklegt að það takist að leysa úr öllum þeim ágreiningsmálum sem lýst hefur verið hér að framan, en almennt virðist vera mikill vilji til þess og að á Kyotofundinum verði jafnframt ákveðið að halda áfram tilraunum til að finna ásættanlegar leiðir til að taka á þeim sem ekki tekst að leiða þar til lykta. Ennfremur er lögð áhersla á að mörkuð verði einhver stefna um frekari skuldbindingar þróunarríkja þar sem verulegur vöxtur í losun er fyrirsjáanlegur í þróunarríkjunum á næstu árum og áratugum ef ekkert verður að gert. Í þessu sambandi þarf sérstaklega að huga að þeim ríkjum sem langt eru komin í iðnvæðingu og hafa hug á aðild að OECD.


VIÐAUKI I

RAMMASAMNINGUR
SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA UM LOFTSLAGSBREYTINGAR

VIÐAUKI II
FRAMKVÆMDAÁÆTLUN RÍKISSTJÓRNARINNAR VEGNA RAMMASAMNINGS SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA UM LOFTSLAGSBREYTINGAR
(Samþykkt í ríkisstjórn 17. okt. 1995)


ALMENNAR OG HAGRÆNAR AÐGERÐIR

Ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið að áhersla verði lögð á hvetjandi aðgerðir, fræðslu og hagstjórnartæki til að takmarka útstreymi gróðurhúsalofttegunda á Íslandi.

Ríkisstjórnin hyggst stuðla að markvissri eflingu fræðslu um gróðurhúsaáhrifin og leiðir til að takmarka útstreymi gróðurhúsalofttegunda, bæði í fjölmiðlum, í skólum og á öðrum vettvangi. Í þessu skyni verður leitað samstarfs við sveitarfélög, skóla, stofnanir, félög og atvinnufyrirtæki eftir því sem við á. Fræðslunni verður beint til almennings, nemenda, atvinnurekenda og starfsmanna helstu atvinnugreina.

Ríkisstjórn Íslands hyggst endurskoða skattlagningu eldsneytis, svo að hún taki mið af útstreymi koltvíoxíðs og verki takmarkandi á það. Stefnt er að því að leggja á sérstakan CO2-skatt á þá notkun jarðefnaeldsneytis sem ekki tengist starfsemi í alþjóðlegri samkeppni, en að öðru leyti verði fylgt hliðstæðum reglum sem settar verða um CO2-skatt í samkeppnislöndum.

Ríkisstjórnin hyggst endurskoða gjaldtöku af bifreiðum og eldsneyti með það fyrir augum að auka hlutfall sparneytinna bifreiða. Stefnt er að því að vörugjöld á mengunarlausa bíla, t.d. rafbíla, verði felld niður.

Umhverfisráðherra mun skipa sérstaka "umsjónarnefnd ráðuneytanna", að höfðu samráði við aðra hlutaðeigandi ráðherra, til að hafa umsjón með framkvæmdaáætlun vegna rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar. Hlutverk nefndarinnar verður m.a. það að meta á hverju ári árangur af framkvæmdum og aðgerðum í fyrirliggjandi framkvæmdaáætlun. Jafnframt mun hún gera tillögur til viðkomandi ráðuneyta eða framkvæmdaaðila um nýjar eða hertar aðgerðir eða endurskoðun aðgerða, eftir því sem hún telur þörf á til að ná settu markmiði um takmörkun útstreymis og aukningu upptöku gróðurhúsalofttegunda.

Settar verða reglur til að takmarka notkun flúorkolefna og annarra öflugra og langlífra gróðurhúsalofttegunda eftir því sem kostur er.

Rannsóknir og vöktun í tengslum við áhrif loftslagsbreytinga og viðbrögð við þeim verða efldar á markvissan hátt.

Komið verður upp eftirliti með framkvæmd stefnumiða og aðgerða, m.a. með reglulegri endurskoðun útstreymisreikninga og gerð spár um þróun útstreymis.

Framlög til þróunaraðstoðar verða aukin fram til aldamóta, og er stefnt að því að þau verði a.m.k. 0,3-0,4% af þjóðarframleiðslu árið 2000.

SÉRTÆKAR AÐGERÐIR

Meginviðmið ríkisstjórnarinnar er að stefnt skuli að því að takmarka útstreymi frá hverri atvinnugrein, eftir því sem kostur er, með það fyrir augum að heildarútstreymi koltvíoxíðs vegna innlendrar neyslu verði ekki meira árið 2000 en það var árið 1990. Þó verði leitast við að halda þeirri meginreglu að halda í lágmarki kostnaði þjóðfélagsins við að ná settu markmiði.

1. Sjávarútvegur

Ríkisstjórnin hefur falið sjávarútvegsráðuneytinu að koma eftirfarandi framkvæmdaáætlun vegna fiskveiða í framkvæmd, í samvinnu við umhverfisráðuneyti og iðnaðarráðuneyti. Lögð verður áhersla á eftirfarandi þætti:

Starfshópur um umhverfis- og orkumál í fiskveiðum: Sjávarútvegsráðherra mun skipa sérstakan starfshóp að höfðu samráði við umhverfisráðherra og iðnaðarráðherra til þess að gera áætlun um hvernig megi ná settu markmiði um að draga úr útstreymi koltvíoxíðs og annarra gróðurhúsalofttegunda frá fiskiskipaflotanum.

Markviss efling orkusparnaðar við fiskveiðar: Sjávarútvegsráðuneytið mun beita sér fyrir aðgerðum til að stuðla að orkusparnaði hjá fiskiskipaflotanum á sem flestum sviðum. Meðal verkefna verður könnun á hagkvæmni og eldsneytisnotkun mismunandi veiða og veiðarfæra og gera tillögur um aðgerðir, s.s. beitingu hagstjórnartækja. Auk þess verður unnið að eflingu fræðslu fyrir útgerðarmenn, skipsstjóra og vélstjóra um leiðir til að koma í veg fyrir sóun eldsneytis og til að draga úr notkun eldsneytis við fiskveiðar og siglingar.

Rafmagn til skipa í höfnum: Gerðar verða ráðstafanir til þess að í öllum höfnum geti skip fengið rafmagn úr landi á samkeppnisfæru verði við rafmagn frá ljósavélum. Ef þurfa þykir verði jafnframt settar reglur sem takmarka notkun ljósavéla í höfnum.

2. Samgöngur

Ríkisstjórnin hefur falið samgönguráðuneytinu í samvinnu við umhverfisráðuneytið og iðnaðarráðuneytið að koma í framkvæmd stefnumiðum og aðgerðum til að takmarka útstreymi gróðurhúsalofttegunda frá samgöngum. Lögð verður áhersla á eftirfarandi atriði:

Heildstætt skipulag samgangna m.t.t. umhverfis- og orkumála: Samgönguráðherra skipar sérstakan starfshóp, að höfðu samráði við umhverfisráðherra og iðnaðarráðherra, til að leggja grunn að heildstæðu skipulagi samgangna í landinu m.t.t. umhverfis- og orkumála. Starfshópnum verður falið að stuðla að stórefldri fræðslu til að draga úr sóun eldsneytis og bæta nýtingu ökutækja. Starfshópurinn mun einnig láta gera könnun á hagkvæmni og eldsneytisnotkun mismunandi samgönguleiða með það að markmiði að efla þjóðhagslega hagkvæmar, lítt mengandi og eldsneytissparandi samgönguleiðir.

Efling almenningssamgangna: Komið verður á markvissu og virku samstarfi við sveitarfélög um að efla almenningssamgöngur í þéttbýli. Stuðlað verður að því að við gerð bæjar- eða borgarskipulags verði lögð sérstök áhersla á almenningssamgöngur. Kannað verður hvort hagkvæmt er að rafvæða ákveðnar leiðir almenningsfarartækja.

Bætt aðstaða fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur: Gerðar verða ráðstafanir til þess að gangandi og hjólandi vegfarendur eigi örugga og greiðfæra leið um borgir og bæi um allt land. Til að styðja við framkvæmdir á þessu sviði verður komið á samstarfi við sveitarfélög og skipulagsyfirvöld eftir því sem þurfa þykir.

Upplýsingaskylda söluaðila nýrra bifreiða: Lögleiddar verða reglur um að söluaðilum nýrra bifreiða sé skylt að veita væntanlegum kaupendum með samræmdum hætti upplýsingar um eldsneytisnotkun nýrra bifreiða sem boðnar eru til sölu.

Takmörkun á notkun lífrænna leysiefna við vegagerð: Til þess að minnka útstreymi rokgjarnra lífrænna efna verður Vegagerð ríkisins falið að leita hagkvæmra leiða til að draga úr leysiefnanotkun og minnka mengun af völdum lífrænna leysiefna við gerð vega.

3. Iðnaður

Ríkisstjórnin hefur falið iðnaðarráðuneytinu að hrinda stefnumiðum ríkisstjórnarinnar vegna útstreymis gróðurhúsalofttegunda frá iðnaði í framkvæmd, í samráði við umhverfisráðuneytið. Helstu markmið ríkisstjórnarinnar eru að efla orkusparnað og auka notkun hreinna orkugjafa í stað jarðefnaeldsneytis, og að takmarka útstreymi gróðurhúsalofttegunda frá iðnaði svo það verði ekki meira árið 2000 en það var árið 1990. Það er skoðun ríkisstjórnarinnar að þess skuli gætt að þetta markmið komi ekki í veg fyrir að hinar hreinu orkulindir landsins verði nýttar t.d. í nýjum stóriðjufyrirtækjum, jafnvel þótt fyrirtækin stundi starfsemi sem óhjákvæmilega felur í sér aukið útstreymi koltvíoxíðs eða annarra gróðurhúsalofttegunda vegna iðnaðarferla. Í framkvæmdaáætluninni verður lögð áhersla á eftirfarandi þætti:

Orkusparnaðarátak í iðnaði: Sett verður af stað eldsneytis- og orkusparnaðarátak í iðnfyrirtækjum. Sérstök áhersla verður lögð á að koma í veg fyrir orkusóun og draga úr notkun jarðefnaeldsneytis.

Aukin áhersla á vatnsafl og jarðvarma: Stuðlað verður enn frekar að notkun jarðvarma og raforku úr vatnsafli, í stað jarðefnaeldsneytis, á sem flestum sviðum. Stuðlað verður að áframhaldandi rafvæðingu katla í iðnaði þar sem það er hagkvæmt. Leitað verður leiða til þess að gera raforkuverð til iðnaðar samkeppnisfært við olíu á sem flestum sviðum.

Dregið úr útstreymi frá iðnaðarferlum: Gerð verður úttekt á möguleikum til þess að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda frá iðnaðarferlum og notkun hráefna í iðnaði. Kannaðir verða möguleikar á að nýta viðarafganga, viðarkurl eða viðarkol í auknum mæli sem kolefnisgjafa í járnblendiverksmiðjunni.

4. Landbúnaður (landnýting, landgræðsla og skógrækt)

Ríkisstjórnin hefur falið landbúnaðarráðuneytinu að sjá um að gera sérstakar landgræðslu- og skógræktaráætlanir í samvinnu við umhverfisráðuneytið. Meginmarkmið með þeim verði að stöðva hraðfara jarðvegs- og gróðureyðingu í landinu fyrir næstu aldamót og vinna aftur sem mest af því sem tapast hefur af gróðri landsins. Til viðbótar verður stefnt að því að auka árlega bindingu koltvíoxíðs í lúpínu, skógi og öðrum gróðri þannig að hún verði a.m.k. 100 þúsund tonnum meiri árið 2000 en hún var árið 1990. Lögð verður áhersla á eftirfarandi þætti í áætluninni:

Landgræðsluáætlun: Gerð verður sérstök landgræðsluáætlun fyrir allt landið og verður fyrstu útgáfu hennar lokið eigi síðar en árið 1996. Meginmarkmið áætlunarinnar verður að stöðva hraðfara jarðvegs- og gróðureyðingu í landinu fyrir næstu aldamót og vinna aftur sem mest af því sem tapast hefur af gróðri landsins, í samræmi við stefnumið ríkisstjórnarinnar. Leitað verður leiða til þess að koma á öflugu samstarf við bændur og aðra hagsmunaaðila við þessi verkefni.

Skógræktaráætlun: Að teknu tilliti til heildarskipulags fyrir landnýtingu á Íslandi, sem fyrr var getið, og landgræðsluáætlunar verði jafnframt unnin sérstök skógræktaráætlun. Stefnt verður að því að efla skógrækt um allt land svo að um aldamótin verði plantað fjórfalt fleiri trjáplöntum á ári en gert var 1990. Jafnframt verði markvisst unnið að því að draga úr þéttleika plöntunar, í samræmi við ráðleggingar Skógræktar ríkisins. Áhersla verði lögð á að gera landeigendum á svæðum sem til þess henta kleift að hefja nytjaskógrækt, m.a. með styrkjum til gróðursetningar í nýja skógræktarreiti

Verkefni vegna bindingar koltvíoxíðs í lífmassa: Ríkisstofnunum á sviði landgræðslu og skógræktar verði falið að samræma og stýra aðgerðum, í landgræðslu- og skógræktaráætlun og með öðrum aðgerðum ef þörf krefur, til að auka árlega bindingu koltvíoxíðs í gróðri á sem hagkvæmastan hátt um 100 þúsund tonn fyrir lok aldarinnar. Markmiðið verði að standa við skuldbindingar rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar um aldamótin og efla upptöku koltvíoxíðs og bæta gróðurfar í landinu til lengri tíma. Sérstök áhersla verði lögð á arðsamar framkvæmdir, m.a. plöntun nytjaskóga og stöðvun land- og jarðvegseyðingar.

5. Sorphirðu- og úrgangsmál

Ríkisstjórnin hefur falið umhverfisráðuneytinu að framfylgja stefnu sinni í sorphirðu- og úrgangsmálum og stuðla að því að dregið verði eins og kostur er úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda og annarra mengunarefna frá sorpförgun. Lögð verður áhersla á eftirfarandi þætti:

Minna sorp: Markvisst verður stefnt að því að draga úr umbúðamagni, efla endurvinnslu og auka jarðgerð sorps með það að markmiði að draga úr sorpförgun um 50% fyrir næstu aldamót. Unnin verður sérstök "sorphirðuáætlun" fyrir allt landið, til þess að ná settu marki. Við gerð hennar verður sérstaklega hugað að notkun hagstjórnartækja til að efla endurvinnslu og jarðgerð úrgangs og draga úr sorpmagni.

Brennsla metans: Könnuð verði myndun metangass í sorphaugum höfuðborgarsvæðisins í Álfsnesi og kannaðar leiðir til nýtingar eða eyðingar þess.

Opinni brennslu sorps hætt: Ríkisstjórnin hefur ákveðið að allri opinni brennslu sorps á landinu skuli hætt fyrir 1. janúar 1996.

6. Eftirlit með aðgerðum vegna rammasamnings

Mikilvægur þáttur fyrirliggjandi framkvæmdaáætlunar er eftirlit með framgangi verkefna, til þess að unnt sé að endurskoða og endurskipuleggja aðgerðir til að uppfylla skuldbindingar rammasamningsins. Af þessum sökum hefur ríkisstjórnin ákveðið að koma á eftirliti með framgangi einstakra verkefna og aðgerða í fyrirliggjandi framkvæmdaáætlun vegna gróðurhúsaáhrifa. Eftirlitið felst m.a. í eftirfarandi þáttum.

Á vegum umhverfisráðuneytisins verður á hverju ári unnið útstreymisbókhald til að fylgjast með þróun útstreymis gróðurhúsalofttegunda frá öllum uppsprettum af manna völdum, og til að meta upptöku koltvíoxíðs í lífmassa. Auk þess verður haft eftirlit með gangi einstakra stefnu-miða, aðgerða og verkefna í áætluninni, og lagt mat á áhrif þeirra á útstreymi eða bindingu gróðurhúsalofttegunda. Jafnframt verða spár um útstreymi árið 2000 endurskoðaðar á hverju ári.

Umhverfisráðuneytið mun síðan í samvinnu við hlutaðeigandi ráðuneyti og stofnanir yfirfara fyrri stefnumið og aðgerðir úr framkvæmdaáætluninni, og endurskoða áætlunina. Ef þurfa þykir verða ákveðin verkefni efld eða ný tekin upp. Þannig verður markvisst stefnt að því að uppfylla skuldbindingar rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar, svo að útstreymi gróðurhúsalofttegunda á Íslandi árið 2000 verði ekki meira en það var árið 1990.

7. Rannsóknir og vöktun

Ríkisstjórnin hyggst efla rannsóknir og vöktun á Íslandi til að auka þekkingu á áhrifum loftslagsbreytinga á Íslandi og til þess að leggja grunn að aðgerðum til að draga úr skaðsemi þeirra breytinga sem búist er við. Helstu rannsókna- og vöktunarþættir, sem ríkisstjórnin leggur áherslu á, eru: Veðurfarsrannsóknir, vöktun andrúmslofts, hafrannsóknir, könnun á áhrifum sjávarborðshækkunar á Íslandi, og rannsóknir á sviði landgræðslu og skógræktar.

Veðurfarsrannsóknir og vöktun andrúmslofts

Ríkisstjórninni er ljóst að lífsskilyrði á Íslandi og atvinnuhættir eru afar viðkvæm fyrir breytingum á veðurfari. Af þessum sökum hyggst ríkisstjórnin styðja og efla rannsóknir á veðurfari landsins og veðurfarsbreytingum í landinu, sem og vöktun andrúmslofts með tilliti til gróðurhúsalofttegunda. Jafnframt verði markvisst fylgst með erlendum rannsóknum á veðurfarslíkönum og niðurstöðum þeirra um líklegar veðurfarsbreytingar vegna gróðurhúsaáhrifa, og stuðlað að þátttöku íslenskra vísindamanna í alþjóðlegu samstarfi á þeim vettvangi. Þannig verði tryggt að ávallt sé til staðar þekking í landinu á eðli og áhrifum loftslagsbreytinga á Íslandi.

Hafrannsóknir og könnun á áhrifum sjávarborðshækkunar

Hagsæld á Íslandi byggist að verulegu leyti á fiskveiðum og vinnslu sjávarafurða. Ríkisstjórnin hyggst af þeim sökum efla rannsóknir á áhrifum hugsanlegra loftslagsbreytinga á samskipti lofts og sjávar, hafstrauma og lífsskilyrði í sjó. Þannig verði aukin þekking manna á hugsanlegum áhrifum á framleiðslugetu íslenskra hafsvæða, útbreiðslusvæði nytjafiska, hrygningarstöðvar og leiðir fiskigangna.

Jafnframt verði gerð athugun á hugsanlegum afleiðingum sjávarborðshækkunar á Íslandi og kannaðar leiðir til þess að draga úr skaðsemi hennar. Sérstaklega verði hugað að flóðahættu í sjávarplássum víða um landið og möguleikum til aðlögunar eða mótvægis gegn aukinni flóðahættu.

Rannsóknir á sviði landgræðslu og skógræktar

Landgræðsla og skógrækt á Íslandi eru ekki aðeins mikilvægar til þess að hamla gegn landeyðingu og bæta lífsskilyrði í landinu. Þær eru líka meðal þeirra leiða sem lögð er áhersla á til að efla bindingu koltvíoxíðs í lífmassa og vinna þannig gegn auknum styrk koltvíoxíðs í lofti, með það fyrir augum að hamla gegn auknum gróðurhúsaáhrifum. Af þessum sökum hyggst ríkisstjórnin efla landgræðslu- og skógræktarstarf í landinu, með auknum rannsóknum á kolefnishringrás í jarðvegi og gróðri á Íslandi, með áherslu á þá þætti, sem ráða hraða uppsöfnunar og losunar kolefnis í jarðvegi og plöntum. Einnig verði áhrif landgræðslu- og skógræktaraðgerða á hraða uppsöfnunar á lífrænu efni könnuð til að leggja grundvöll fyrir áætlanagerð og auka hagkvæmni aðgerða við að auka bindingu koltvíoxíðs í lífmassa. Loks verði efldar rannsóknir á umfangi og hraða jarðvegs- og gróðureyðingar m.t.t. taps á kolefni jarðvegsins og m.t.t. tapaðrar getu íslenskra gróðurlenda til að binda CO2.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum