Hoppa yfir valmynd
18. desember 2007 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Fjarskiptasjóður semur við Vodafone um síðari áfanga GSM-verkefnis

Samið hefur verið við Vodafone um að fyrirtækið taki að sér verkefni vegna síðari áfanga á uppbyggingu GSM þjónustu á Íslandi. Snýst það um uppbyggingu á þjónustu á völdum svæðum þar sem markaðslegar forsendur standa ekki undir rekstri slíks kerfis.

GSM-farsímasamband bætt
GSM-farsímasamband bætt

Stefnt er að því að ljúka verkinu á 12 mánuðum og er samningsupphæðin 400 milljónir króna. Endanleg samningsupphæð lækkaði frá því sem upphaflega stóð til vegna áforma Vodafone um uppbyggingu á markaðsforsendum á tilteknum svæðum. Friðrik Már Baldursson, formaður stjórnar fjarskiptasjóðs, og Gestur G. Gestsson, framkvæmdastjóri tæknisviðs Vodafone, skrifuðu undir samninginn.

Þrjú tilboð bárust í síðari áfanga GSM-farsímaþjónustunnar og voru þau opnuð 16. október. Tvö eru frá innlendum fyrirtækjum og eitt frá svissnesku. Tilboðin voru öll undir kostnaðaráætlun fjarskiptasjóðs sem var 732 milljónir króna. Bjóðendur voru:

Síminn hf. 655 milljónir króna - 12 mánaða verktími.
Vonafone (Og fjarskipti ehf.) 487 milljónir króna - 22 mánaða verktími.
Amitelo AG 468 milljónir króna - 12 mánaða verktími.

Sá sem lægst bauð, svissneska fjarskiptafyrirtækið Amitelo, fullnægði ekki kröfum sem gerðar voru vegna verkefnisins og því var gengið til samninga við þann sem átti næst lægsta tilboðið. Ríkiskaup önnuðust framkvæmd útboðsins fyrir hönd fjarskiptasjóðs.

Þessi síðari áfangi farsímaverkefnisins varðar styrkingu GSM farsímaþjónustu á stofnvegum og ferðamannasvæðum þar sem GSM þjónusta er takmörkuð í dag. Alls eru þjónustusvæðin í þessum áfanga 32. GSM þjónustan verður bætt á vegum á Vestfjörðum, Norðausturlandi, í Fljótum, víða á Snæfellsnesi, á Bröttubrekku, Dölunum og Suðurstrandarvegi svo dæmi séu tekin. Ferðamannasvæðin eru til dæmis þjóðgarðarnir við Snæfellsjökul og í Jökulsárgljúfrum.

Síminn átti lægsta tilboð í fyrri áfanga GSM verkefnisins og er það nú langt komið. Í þeim áfanga var komið á GSM þjónustu á öllum Hringveginum, fimm fjallvegum og nokkrum ferðamannasvæðum.



Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum