Hoppa yfir valmynd

Frétt

1. október 2010 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Akstursgjald ríkisstarfsmanna - auglýsing nr. 4/2010

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið óbreytt akstursgjald í aksturssamningum ríkisstarfsmanna og ríkisstofnana sem hér segir:

Almennt gjald

  1. Fyrstu 10.000 km, kr. 99,00 pr. km
  2. Frá 10.000 til 20.000 km, kr. 89,10 pr. km
  3. Umfram 20.000 km, kr. 79,20 pr. km

Við útreikning á sérstöku gjaldi skal bæta 15% álagi á almenna gjaldið og við útreikning á torfærugjaldi skal bæta 45% álagi á almenna gjaldið.

Akstursgjald þetta gildir frá og með 1. október 2010. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 1/2010 dagsett 29. janúar 2010.

Vakin er athygli á því að auglýsingar ferðakostnaðarnefndar eru birtar á vefsíðu fjármálaráðuneytisins. Þar er auk þess að finna reglur nefndarinnar um greiðslu dagpeninga erlendis og greinargerð um forsendur útreikninga akstursgjalds og dagpeninga.

Veffangið er: www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostnadur

Reykjavík, 1. október 2010.

Ferðakostnaðarnefnd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum