Hoppa yfir valmynd

Frétt

22. mars 2011 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Akstursgjald ríkisstarfsmanna - auglýsing nr. 1/2011

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið akstursgjald í aksturssamningum ríkisstarfsmanna og ríkisstofnana sem hér segir:

Almennt gjald

  1. Fyrstu 10.000 km, kr. 104,00 pr. km
  2. Frá 10.000 til 20.000 km, kr. 94,00 pr. km
  3. Umfram 20.000 km, kr. 83,50 pr. km

Við útreikning á sérstöku gjaldi skal bæta 15% álagi á almenna gjaldið og við útreikning á torfærugjaldi skal bæta 45% álagi á almenna gjaldið.

Akstursgjald þetta gildir frá og  með 1. apríl 2011. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 4/2010 dagsett 1. október 2010.

Vakin er athygli á því að auglýsingar ferðakostnaðarnefndar eru birtar á vefsíðu fjármálaráðuneytisins. Þar er auk þess að finna reglur nefndarinnar um greiðslu dagpeninga erlendis og greinargerð um forsendur útreikninga akstursgjalds og dagpeninga. Veffangið er http://www.fjarmalaraduneyti.is/ferdakostnadur.

Reykjavík, 21. mars 2011.

Ferðakostnaðarnefnd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum