Aðgerðir í menntamálum
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er boðað að hefja sókn í menntamálum og bæta umhverfi nemenda og kennara:
„Lögð verður áhersla á íslenskukennslu, læsi og aðgengi að fjölbreyttum námsgögnum. Styðja þarf skólakerfið til að mæta áskorunum, tryggja inngildingu barna sem ekki hafa íslensku að móðurmáli og snemmtæka íhlutun fyrir börn með fjölþættan vanda. Framhaldsskólar og háskólar fá stuðning til að efla menntun, nýsköpun og aðgengi um allt land, auk þess sem hugað verður sérstaklega að iðnog verknámi, sí- og endurmenntun og raunfærnimati. Ríkisstjórnin hyggst móta ungmennastefnu og beita sér fyrir jöfnu aðgengi allra barna að íþróttum, listum og frístundastarfi. Skoðað verður hvort setja eigi samræmdar reglur um notkun snjalltækja og samfélagsmiðla í skólum.“
Menntamál
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.