Hoppa yfir valmynd
16. janúar 2006 Innviðaráðuneytið

UT-dagurinn er 24. janúar

UT-dagurinn lógóÍslendingar eru í hópi þeirra þjóða sem hvað best nýta sér upplýsingatæknina og með hverju árinu sem líður leikur tæknin stærra hlutverk í daglegu lífi okkar. Opnast hefur aðgangur að gífurlegu magni upplýsinga og þjónustu bæði frá opinberum aðilum og fyrirtækjum. Um leið eru samskipti manna í millum fjölbreyttari og auðveldari en nokkru sinni fyrr. Upplýsinga- og fjarskiptatækni hafa fært okkur þessi nýju tækifæri og auknu lífsgæði.

Upplýsingatæknidagurinn, UT-dagurinn, verður haldinn í fyrsta sinn þann 24. janúar nk. Hann er haldinn til að vekja athygli á þeim tækifærum sem Íslendingar hafa á sviði upplýsingatækni, upplýsingatækniiðnaðar og fjarskipta (sjá fréttatilkynningu frá 5. desember sl).

Að deginum standa forsætisráðuneyti, iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti, samgönguráðuneyti og fjármálaráðuneyti í samstarfi við Póst- og fjarskiptastofnun, Samtök upplýsingatæknifyrirtækja og Skýrslutæknifélagið.

Á UT-deginum verða ýmsir viðburðir og kynningar í fjölmiðlum:

  • Haldin verður ráðstefna á Nordica hóteli á UT-daginn undir yfirskriftinni: Tæknin og tækifærin - Ráðstefna um áhrif og ávinning, framtíðarsýn og áhugaverð verkefni stjórnvalda.
  • Ráðstefnan verður send beint út á vef UT-dagsins: www.utdagur.is.
  • Opnaður verður nýr vefur um upplýsingatækni http://utvefur.is.
  • Gefið verður út kynningarefni í tilefni dagsins m.a. tölfræðileg samantekt um íslenska upplýsingasamfélagið frá Hagstofunni og nýr bæklingur um upplýsingatækni frá Upplýsingu, félagi bókasafns- og upplýsingafræða.
  • Í tengslum við UT-daginn verður gefið út umfangsmikið blað sem dreift verður með Morgunblaðinu 20. janúar.

Tæknin og tækifærin

Ráðstefna um áhrif og ávinning, framtíðarsýn
og áhugaverð verkefni stjórnvalda

Ráðstefnan verður haldin á Nordica hóteli 24. janúar 2006. Skýrslutæknifélag Íslands sér um skráningu á ráðstefnuna á vef sínum. Aðgangseyrir er kr. 4000 og er hádegisverður þar innifalinn.

Ráðstefnustjóri verður Óskar B. Hauksson, stjórnendaráðgjafi, Gáttir ehf.

Dagskrá:

Kl. Dagskrárliður
8:30 Húsið opnar – afhending ráðstefnugagna
9:00 Ávarp Halldórs Ásgrímssonar, forsætisráðherra
9:10 Íslenskt upplýsingasamfélag - tölfræðileg samantekt
Guðfinna Harðardóttir, sérfræðingur, Hagstofa Íslands
9:30

Íslenskur sýndarveruleiki
Hilmar V. Pétursson, framkvæmdastjóri CCP

9:50 Alþjóðavæðing
Friðrik Sigurðsson, forstjóri TM Software
10:10 Upplýsingatækni – áhrif og ávinningur
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra
10:30

Kaffi

10:45 Stafræn tilvera - stafræn viðskipti
Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Þróunarsviðs Símans
11:05

Opið net - lykill að lífsgæðum
Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi

11:25

Ísland.is - Þjónustuveita ríkis og sveitarfélaga
Bolli Þór Bollason, ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytis

11:45

Hver ert þú? Rafræn auðkenning og undirskriftir
Haraldur Bjarnason, sérfræðingur, fjármálaráðuneyti

12:05 Hádegisverður
13:00 Upplýsingatækni, þekking og menning
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra
13:20

Tilraunaverkefni um samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila
Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri og Arnar Pálsson, sérfræðingur í félagsmálaráðuneyti

13:40

Rafræn samfélög - aukin lífsgæði á landsbyggðinni

Virkjum alla - rafrænt samfélag við Skjálfanda
Susan Martin, verkefnisstjóri

Sunnan3 - rafrænt samfélag á Árborgarsvæðinu
Sigurður Tómas Björgvinsson, verkefnisstjóri og framkvstj. hjá Stjórnsýsluráðgjöf ehf.

14:00 Fjarskiptaáætlun, verkefni fjarskiptasjóðs og öryggismál í fjarskiptum
Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra
14:20 Kaffi
14:35

Stuttar kynningar (10 mínútur) á áhugaverðum verkefnum:

AUFT - Átak í upplýsinga- og fjarskiptatækni - Helstu verkefni dóms- og kirkjumálaráðuneytis á þessu sviði
Friðjón R. Friðjónsson, vefstjóri i dóms- og kirkjumálaráðuneyti

Rafrænir lyfseðlar – frá lækni til apóteks
Benedikt Benediktsson, verkefnisstjóri, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

Upplýsingatækni á nýju hátæknisjúkrahúsi
Björn Jónsson, sviðsstjóri upplýsingatæknisviðs, Landspítali háskólasjúkrahús

Útrás RSK
Bragi L. Hauksson, deildarstjóri upplýsingatæknideildar RSK

Leitin breytir heiminum
Hjálmar Gíslason, framkvæmdastjóri, Spurl ehf.

Bezt í heimi! - Vefvæddir íslenskir veiðimenn
Áki Ármann Jónsson, forstöðumaður veiðistjórnunarsviðs Umhverfisstofnunar

Gagnvirk kortavefsjá - miklir möguleikar í miðlun
Guðný Káradóttir, framkvæmdastjóri Gagarín

Stafræn miðlun úr safni RÚV
Dóra Ingvadóttir, framkvæmdastjóri, Ríkisútvarpið

Menntagátt - miðstöð upplýsinga
Sigrún Eva Ármannsdóttir, forstöðumaður, Hugur hf

16:15 Léttar veitingar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum