Hoppa yfir valmynd
3. nóvember 2022 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Farsæl skólaganga allra barna: Hvernig byggjum við upp heildstæða skólaþjónustu til framtíðar?

Mennta- og barnamálaráðuneytið stendur fyrir ráðstefnu um framtíð skólaþjónustu á Íslandi mánudaginn 14. nóvember kl. 9:00–16:00 á Hilton Reykjavík Nordica.

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, kynnti nýlega áform um ný heildarlög um skólaþjónustu og í þeirri vinnu gegnir samráð við hlutaðeigandi lykilhlutverki til að koma sem best til móts við þarfir skólasamfélagsins og tengdra þjónustukerfa.

Á ráðstefnunni verða erindi frá þjónustuveitendum og þjónustuþegum ásamt umræðum um þá þætti sem hafa þarf í huga þegar við mótum skólaþjónustu framtíðar.

Nánari dagskrá verður auglýst síðar. Aðgangur er ókeypis og verður ráðstefnunni streymt fyrir þau sem komast ekki á staðinn.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum