Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

27. apríl 2023 InnviðaráðuneytiðSigurður Ingi Jóhannsson

Komum heil heim af rafskútunum

Ávarp á kynningarfundi um herferð Samgöngustofu vegna rafhlaupahjóla

Ágætu gestir.

Takk kærlega fyrir að bjóða mér til þessa fundar um nýja kynningarherferð Samgöngustofu.
Við höfum á síðustu árum lagt mikla áherslu á að styðja við fjölbreytta ferðamáta. Með því að ferðast oftar í strætó, gangandi eða hjólandi drögum við úr losun gróðurhúsaloftegunda, stuðlum að betri loftgæðum í þéttbýli og vinnum að bættri lýðheilsu.

Samhliða áherslu á fjölbreytta ferðamáta hefur smáfarartækjum fjölgað mikið í umferðinni á síðustu árum. Einkum eru það rafhlaupahjólin, eða rafskúturnar sem margir kalla þau, sem hafa breytt landslaginu. Vinsældir þeirra hafa verið miklar og notkun margfaldast á undanförnum árum. Þeim vinsældum hafa þó fylgt ýmsar áskoranir og hættur.
Notkun þeirra hafa fylgt fjölmörg slys, og ekki aðeins skeinur og skrámur, heldur því miður mjög alvarleg slys og tvö andlát.

Tölurnar tala sínu máli. Í nýlegri skýrslu Samgöngustofu um umferðarslys árið 2022 eru upplýsingar sem vekja mann alvarlega til umhugsunar.

  • Um fjórðungur allra látinna og alvarlega slasaðra í umferðinni árið 2022 voru á rafhlaupahjólum, eða 49 tilvik af 204. Sömu tölur fyrir fólksbíla eru 61 tilvik af 204 en á það verður að líta að umferð fólksbíla er margfalt meiri en rafhlaupahjóla. Þessar tölur gefa til kynna að meiri áhætta er fólgin í því að vera á rafskútu heldur en í fólksbíl.
  • Í sömu skýrslu kemur fram að tvöfalt fleiri slasast á rafhlaupahjóli en á venjulegu reiðhjóli. Notkun reiðhjóla er 4-5 sinnum meiri en á rafhlaupahjólum skv. síðustu könnun sem þýðir að áhættan við að vera á rafhlaupahjólum miðað við reiðhjól er sjö til tíföld.
  • Þá kemur í ljós að 23% alvarlegra slysa á rafhlaupahjólum verða á svokölluðum „djammheimferðartíma“, seint á kvöldin á föstudags- og laugardagskvöldum. U.þ.b. 3% alvarlega slasaðra hjólreiðamanna, 3% alvarlega slasaðra fótgangandi og 3% alvarlega slasaðra í bifreið eru að slasast á þessum sama tíma.

    Við þurfum að muna að við erum óvarðari á rafhlaupahjólum en mörgum öðrum fararmátum. Líkamsstaða okkar á rafhlaupahjólum með hendur þétt upp að líkamanum þýðir einnig að minna þarf til að missa jafnvægið. Að sama skapi eigum við erfiðara með að bera hendur fyrir okkur ef við dettum. Þetta þýðir að andlitsmeiðsli eru algengari en í t.d. hjólreiðaslysum.
  • Síðast en ekki síst hafa gögn sýnt að mörg börn slasast á rafhlaupahjólum en þau hafa verið allt að 45% þeirra sem leituðu á bráðamóttöku vegna slíkra slysa.

Við þurfum að bregðast þessu af krafti með sameiginlegu átaki. Þessi ferðamáti er nýr af nálinni og við þurfum læra á hann, auka fræðslu og laga regluverk og innviði. Ég nefni hér þrennt sem skiptir miklu máli.

Í fyrsta lagi vil ég nefna umferðarlögin sjálf. Nú er til umfjöllunar á Alþingi frumvarp sem ég lagði fram um breytingar á lögunum til að auka öryggi notenda smáfarartækja og annarra vegfarenda. Þar er m.a. lagt til að innleiða nýjan ökutækjaflott smáfarartækja í umferðarlög, að ökumenn verði að hafa náð 13 ára aldri og notendum yngri en 16 ára verði gert skylt að nota hjálm og að almennt bann verði við lagt við að breyta hraðastillingum.

Í öðru lagi höfum við lagt áherslu á að bæta innviði. Framlög til uppbyggingar göngu- og hjólreiðastíga hafa aukist á undanförnum árum og áfram verður haldið á sömu braut. Mikilvægi slíkra innviða hefur aukist samhliða hraðri aukningu á umferð smáfarartækja.

Síðast en ekki síst er nauðsynlegt að efla fræðslu með áherslu á það að við sjálf sýnum ábyrgð og fyrirhyggju í umferðinni. Og þar kemur að tilefni þessa ágæta fundar – sem er hin nýja kynningarherferð.

Samgöngustofa hefur í samstarfi við fjölmarga aðila – í þetta sinn tryggingafélaginu VÍS – gert áhrifaríkar herferðir og auglýsingar. Minnt okkur á að spenna beltin, nota ekki símana okkar undir stýri eða aka ekki undir áhrifum.

Nú er kastljósinu beint að rafskútum. Rétt eins og við notkun annarra ferðamáta – ökutækja, reiðhjóla, mótorhjóla eða hesta – þurfum að sýna varkárni og vera skynsöm. Komum heil heim af rafskútunum.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum