Uppgjör ríkissjóðs
Skýrsla hvers mánaðar um greiðsluhreyfingar A-hluta ríkissjóðs með samanburði við áætlanir innan ársins og útkomu sama tímabils árið á undan. Þar kemur m.a. fram upplýsingar um innheimtar tekjur, greidd gjöld, fjárfestingu, fjármögnun og skuldastöðu.
Ársfjórðungsskýrsla fyrir A-hluta ríkissjóðs
Skýrsla birt í lok hvers ársfjórðungs og skal sýna rekstur og efnahag A-hluta ríkssjóðs innan ársins til loka viðkomandi ársfjórðungs. Þar kemur m.a. fram samanburður á fjárheimildum og útgjöldum eftir málefnasviðum og málaflokkum. Einnig kemur fram samanburður á fjárhagsstöðu ríkisaðila og verkefna við fjárveitingar samkvæmt fylgiriti.
Ríkisreikningur
Ríkisreikningur sýnir endanlegt uppgjör ríkisfjármála hvers ár og nær yfir fjárreiður A-, B- og C- hluta ríkissjóðs.
Ríkisreikningur er settur fram í tveimur hlutum. Fyrri hluti nær yfir fjárreiður A- hluta ríkissjóðs í heild. Seinni hluti inniheldur samandregnar upplýsingar um fjármál ríkisaðila og lykiltölur úr ársreikningum ríkisaðila í A-, B- og C- hluta.
Á vef Fjársýslu ríkisins, www.fjs.is, er hægt að skoða ríkisreikning á pdf formi. Ríkisreikningur í heild og sundurliðaðir eru aðgengilegir á vefnum ríkisreikningur.is og er þar að finna sundurliðun á tekjum og gjöldum ríkisins frá árinu 2004 og til dagsins í dag. Gögnin er hægt að skoða á margvíslegan hátt. Þar er að finna almenn yfirlit sem sýna sömu upplýsingar og finna má í útgefnum ríkisreikningi en einnig er hægt að kafa dýpra og fá upplýsingar niður á kostnaðartegund.
Sjá einnig:
- 11.10.2018 Fjármála- og efnahagsráðuneytiðRíkisreikningur 2017
- 14.06.2017 Fjármála- og efnahagsráðuneytiðRíkisreikningur 2016
- 16.06.2016 Fjármála- og efnahagsráðuneytiðRíkisreikningur 2015
- 29.06.2015 Fjármála- og efnahagsráðuneytiðRíkisreikningur 2014
- 14.08.2014 Fjármála- og efnahagsráðuneytiðRíkisreikningur 2013
- 14.12.2018 Fjármála- og efnahagsráðuneytiðUppgjör ríkissjóðs á fyrstu níu mánuðum ársins 2018
- 31.08.2017 Fjármála- og efnahagsráðuneytiðUppgjör ríkissjóðs á fyrri hluta árs 2017
- 29.08.2016 Fjármála- og efnahagsráðuneytiðHeildarútgjöld ríkissjóðs innan fjárheimilda á fyrri hluta ársins
- 24.05.2016 Fjármála- og efnahagsráðuneytiðHeildarútgjöld ríkissjóðs innan fjárheimilda á fyrsta ársfjórðungi ársins 2016
Rekstur og eignir ríkisins
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.