Hoppa yfir valmynd

Vísinda- og tækniráð

Vísinda- og tækniráð mótar opinbera stefnu í vísindum og tækni á Íslandi

Það hefur það hlutverk að efla vísindarannsóknir, vísindamenntun og tækniþróun í landinu í því skyni að treysta stoðir íslenskrar menningar og auka samkeppnishæfni atvinnulífsins. 

Vísinda- og tæknistefna fyrir 2020-2022

Forsætisráðherra er formaður ráðsins en þar sitja einnig mennta- og menningarmálaráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Formaður skipar tvo menn í ráðið auk þess sem 14 fulltrúar eru tilnefndir í ráðið af ráðuneytum, háskólum og aðilum vinnumarkaðarins. Formaður ráðsins getur einnig kveðið allt að fjóra ráðherra til setu í ráðinu.

Ráðið markar stefnu stjórnvalda í vísinda- og tæknimálum til þriggja ára í senn. Umfjöllun ráðsins á hvoru sviði um sig er undirbúin af starfsnefndum ráðsins, vísindanefnd og tækninefnd. Vísinda- og tækniráð fundar fjórum sinnum ári. Vísinda- og tækniráð starfar skv. lögum nr. 2/2003

Sjá einnig:

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum