Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

08. júlí 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, HeilbrigðisráðuneytiðGuðbjartur Hannesson, félagsmálaráðherra 2010, heilbrigðisráðherra 2010, velferðarráðherra 2011-2013

Ekki missa af þessu!

Grein Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra í Fréttablaðinu 8. júlí 2011.

Með okkar augum, fyrsti þáttur af sex, hóf göngu sína á Ríkissjónvarpinu síðastliðinn mánudag. Ég fylgdist spenntur með enda nýmæli á ferð í íslenskri dagskrárgerð. Við stjórnvölinn er fólk með þroskahömlun sem fjallar um málefni líðandi stundar með sínum augum og opnar þar sýn sem alla jafna stendur sjónvarpsáhorfendum ekki til boða. 

Efnistök fyrsta þáttar voru í sjálfu sér ekki framandi. Saman fóru stuttar fréttaskýringar í bland við léttara efni og framsetningin kunnugleg úr hefðbundnum magasínþáttum. Til umfjöllunar voru málefni sem miklu varða í lífi fólks með fötlun en einnig atriði sem eru jafnt á áhugasviði fatlaðs fólks sem ófatlaðs og varða okkur öll í stóru og smáu.

Umfjöllun um Fjölmennt var áhugaverð og augljóst hvað miklu skiptir að fólki með fötlun gefist kostur á að mennta sig og þjálfa færni sína svo það fái notið sín sem best í samfélaginu. Réttur til náms þarf að vera öllum tryggður og ávinningur er ávallt fyrir hendi hver sem á í hlut sé áhuginn er fyrir hendi. 

Blindur faðir sem rætt var við lýsti stöðu sinni miðað við sjáandi feður og sagðist hlusta á son sinn vaxa úr grasi. Þótt auðvitað væri sitthvað honum erfiðara að annast í uppeldinu hefði hann margt annað að gefa syni sínum sem væri ekki síður mikils virði.

Umfjöllunarefni þáttarins áttu sammerkt að umsjónarmennirnir drógu fram á einfaldan en skýran hátt að öll erum við að fást við það sama þegar allt kemur til alls, þótt áherslur séu mismunandi eftir einstaklingum, aðstæðum þeirra og lífsreynslu.

Umsjónarmennirnir sinntu verkefnum sínum vel, jafnt tæknifólkið á bak við tjöldin og fólkið fyrir framan myndavélarnar. Áhugi spyrla á viðfangsefnunum leyndi sér ekki, spurningum var vel fylgt eftir en þó fór saman einbeiting og afslappað og þægilegt viðmót.

Ég hef ekki mikinn áhuga á tísku en þótti sannfærandi umfjöllun um klæðaburð sumarsins hjá þeim sem vilja fylgjast með og matreiðsluhornið fékk mig til að sleikja út um.  

Með okkar augum er tímamótaþáttur í íslensku sjónvarpi og vonandi er með honum sleginn tónn sem fær að hljóma áfram. Það er svo mikilvægt að undirstrika fjölbreytileika samfélagsins og sýna hve það er miklu ríkara einmitt vegna hans. Ég nota líka tækifærið og rifja upp slagorð fatlaðs fólks: Ekkert um okkur án okkar! nokkuð sem allir ættu að hafa hugfast sem á einhvern hátt fjalla um tilhögun mála sem varða fatlaða.  

Ég þakka öllum þeim sem gerðu mögulega framleiðslu þessara þátta sem enginn ætti að missa af í Ríkissjónvarpinu á mánudögum kl. 18.30. Ég hvet fólk líka til að heimsækja þáttinn á fésbók: facebook.com/medokkaraugum 

Guðbjartur Hannesson
velferðarráðherra

 

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum