Menning og menntun
Eitt af verkefnum sendiráðsins er að hlúa að og efla menningar- og menntasamstarf Íslands og Bandaríkjanna. Sendiráðið getur haft milligöngu um íslenska listviðburði í Bandaríkjunum, tónleika, leiklist, myndlistarsýningar o.fl., en tekið er fram að ekki er um fjármögnun viðburða að ræða.
Sendiráðið aðstoðar íslenska námsmenn í Bandaríkjunum eftir föngum, sbr. þjónusta við Íslendinga, og vinnur að auknu mennta- og vísindasamstarfi milli ríkjanna. Að neðan er að finna tengla í vefsetur íslenskra menntastofnanna sem eru í samstarfi við Bandaríkin.
Vefsetur sem tengjast menningu Íslands og Bandaríkjanna
The American Scandinavian Foundation
Vefsetur sem tengjast menntamálum Íslands og Bandaríkjanna
Fulbright stofnunin á Íslandi (m.a. upplýsingar um nám í Bandaríkjunum)