Hoppa yfir valmynd
C. Forvarnir í grunnskólum í samvinnu við heilsugæslu, frístundaheimili og félagsmiðstöðvar

Lýsing á aðgerð

C.2. Fræðsla starfsfólks. 

Starfsfólk grunnskóla, frístundaheimila og félagsmiðstöðva hljóti fræðslu um kynferðislegt og kynbundið ofbeldi og áreitni og forvarnir sem hæfa grunnskólabörnum. Forvarnateymi, með stuðningi frá skólaskrifstofum sveitarfélaga eftir því sem við á, beri ábyrgð á fræðslunni. Tryggt verði að allt starfsfólk hljóti lágmarksfræðslu á netnámskeiði, sbr. aðgerð A.4. Skólaskrifstofur bjóði upp á frekari fræðslu og umræðu innan umdæmis síns og stjórnendur grunnskóla, frístundaheimila og félagsmiðstöðva nýti annað faglegt og gagnreynt fræðsluefni til að tryggja viðunandi þekkingu og þjálfun starfsfólks.

  • Mælikvarði: 90% starfsfólks í grunnskóla hafi lokið netnámskeiði, sbr. aðgerð A.4, í lok árs 2025.
  • Kostnaðaráætlun: Innan ramma.
  • Ábyrgðaraðili: Forvarnateymi grunnskóla.
  • Dæmi um samstarfsaðila: Skólaskrifstofur, forvarnafulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga, Skólastjórafélag Íslands, Menntamálastofnun og frjáls félagasamtök.

Staða verkefnis

Netnámskeið Barna- og fjölskyldustofu hefur verið kynnt sérstaklega fyrir skólaskrifstofum, skólum utan skólaskrifstofa og sjálfstætt starfandi skólum og er töluvert af starfsfólki skólanna nú þegar búið að ljúka við námskeiðið. Haldinn verður sérstakur kynningarfundur fyrir skólastjórnendur grunnskóla í upphafi árs 2024 til að kynna námskeiðið betur og hvetja til þátttöku. Óskað verður eftir gögnum um hlutfall starfsfólks sem lokið hefur námskeiðinu innan hvers skóla að vori 2024.   

Verkefnið telst hafið.

Staða verkefnis

Hafið
Til baka

Jafnréttismál

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum