Lýsing á aðgerð
B.2. Þróun námsefnis fyrir leikskóla.
Tryggt verði að leikskólar hafi aðgang að vönduðu námsefni sem stuðli að forvörnum gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni og henti leikskólabörnum á öllum aldri, sbr. grunnþætti menntunar samkvæmt aðalnámskrá leikskóla. Farið verði heildstætt yfir kennslu- og fræðsluefni sem til er og það uppfært og endurútgefið eftir því sem við á. Þá verði þróað nýtt, gagnvirkt efni sem hæfi aldri og þroska nemenda, sbr. þingsályktun nr. 35/149, um áætlun fyrir árin 2019–2022 um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess. Efnið verði byggt á gagnreyndri þekkingu og þekkingu á leikskólastarfi og sérstöðu leikskólastigsins. Sérstaklega verði tekið tillit til ólíkra þarfa og aðstæðna kynjanna og mismunandi einstaklinga og hópa, svo sem fatlaðra barna, hinsegin barna og barna sem hafa annað móðurmál en íslensku. Þá verði tryggt að námsefnið taki mið af notkun barna á stafrænni tækni. Efninu fylgi greinargóðar leiðbeiningar til starfsfólks leikskóla um notkun þess. Námsefnið verði aðgengilegt á vef Menntamálastofnunar og verði öllum opið og frjálst til notkunar.
- Mælikvarði: Nýtt námsefni fyrir leikskóla verði tilbúið fyrir árslok 2022.
- Kostnaðaráætlun: 2 millj. kr. á árinu 2021 og 3 millj. kr. á árinu 2022.
- Ábyrgðaraðili: Barnaverndarstofa/Barnahús.
- Dæmi um samstarfsaðila: Forvarnafulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga, Menntamálastofnun, Jafnréttisstofa, verkefni Reykjavíkurborgar Opinskátt um ofbeldi, verkefnið Fræðsla, ekki hræðsla, Þroskahjálp, Tabú og Fjölmenningarsetur.
Staða verkefnis
Út eru komnar teiknimyndirnar Líkami minn tilheyrir mér og má finna þær á vefnum Stopp ofbeldi! Leikskóli.
Myndirnar eru fjórar og fræða börn um kynferðisofbeldi, að slíkt sé aldrei þeim sjálfum að kenna og að það sé gagnlegt að segja einhverjum fullorðnum frá sem þau treysta. Myndirnar heita Líkami minn, Íslensk lög, Hræðsla og Það er aldrei þér að kenna. Með efninu fylgja kennsluleiðbeiningar og samtalsspjöld til að ræða með börnunum.
Verkefninu telst lokið.