Hoppa yfir valmynd

Jafnréttisþingi 2025 er lokið

Jafnréttisþingið 2025 var haldið fyrir fullum Norðurljósasal Hörpu, 22. maí 2025. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra og ráðherra jafnréttismála, setti þingið og stýrði pallborðsumræðum auk þess að afhenda Samtökum um kvennaathvarf jafnréttisviðurkenningu.

Þingið var að þessu sinni helgað baráttunni gegn mansali og varpaði skýru ljósi á mikilvægi þess að Ísland taki markviss skref í baráttunni gegn kynferðislegu mansali og skipulagðri brotastarfsemi.

Fyrirlesarar á þinginu voru Carolina Barrio Peña, saksóknari og sérfræðingur hjá Refsivörslusamvinnustofnun ESB (Eurojust) og Janna Davidson, talskona sænskra stjórnvalda í mansalsmálum og sérfræðingur í aðgerðaþróun hjá sænsku lögreglunni.

Hægt er að horfa á upptökur frá þinginu í heild sinni:

Myndir frá þinginu

Ljósmyndirnar tók Sigurjón Sigurjónsson.

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta