Hoppa yfir valmynd

Málefni innviðaráðuneytisins eru skilgreind í forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands (31. janúar 2022 og með síðari breytingum).

Samkvæmt forsetaúrskurði fer innviðaráðuneyti með mál er varða:

1. Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins.

2. Samgöngur í lofti, á láði og legi, þar á meðal:

  1. Flugvelli, vegi, hafnir, vita og sjóvarnir.
  2. Skipulag og uppbyggingu samgöngukerfisins.
  3. Viðhald og rekstur samgöngukerfisins.
  4. Farþegaflutninga og farmflutninga landi, þ.m.t. almenningssamgöngur.
  5. Landflutninga.
  6. Samgönguöryggi.
  7. Samgönguvernd.
  8. Samgönguáætlun.
  9. Rannsókn samgönguslysa, þ.m.t. málefni rannsóknarnefndar samgönguslysa.
  10. Samgöngutækjaskrár.
  11. Eftirlit með skráningu og búnaði samgöngutækja.
  12. Eftirlit með loftferðum og umferð ökutækja og skipa.
  13. Leiðsögu-, vöktunar-, upplýsinga- og eftirlitskerfi samgangna.
  14. Áhafnir skipa
  15. Réttindamál fagaðila í skipum, loftförum og ökutækjum.
  16. Köfun.
  17. Slysavarnaskóla sjómanna.
  18. Skipagjald.
  19. Samgöngustofu.
  20. Vegagerðina.

3. Sveitarstjórnarmál, þar á meðal:

  1. Stjórnsýslu og verkefni sveitarfélaga.
  2. Tekjustofna og fjármál sveitarfélaga.
  3. Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
  4. Mörk sveitarfélaga.
  5. IHS.

4. Skipulagsmál, þar á meðal:

  1. Skipulagslög.
  2. Skipulag haf- og strandsvæða.
  3. Skipulagsstofnun.

5. Húsnæðis- og mannvirkjamál, þar á meðal: 

  1. Húsnæðislán.
  2. Greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstaklinga.
  3. Greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði.
  4. Húsnæðissjóð. 
  5. Húsaleigumál.
  6. Húsnæðisbætur.
  7. Sértækan húsnæðisstuðning vegna náttúruhamfara í Grindavík
  8. Húsnæðissamvinnufélög og byggingarsamvinnufélög.
  9. Almennar íbúðir.
  10. Húsnæðissjálfseignarstofnanir.
  11. Húsnæðismálasjóð.
  12. Fjöleignarhús.
  13. Frístundabyggð.
  14. Kærunefnd húsamála.
  15. Fasteignaskrá og fasteignamat
  16. Eftirlit með mannvirkjum og gerð þeirra.
  17. Brunavarnir.
  18. Byggingarvörur.
  19. Eftirlit með öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga í mannvirkjum.
  20. Yfirfasteignamatsnefnd
  21. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

6. Byggðamál, þar á meðal:

  1. Byggðaáætlun og sóknaráætlanir.
  2. Svæðisbundna flutningsjöfnun.
  3. Póstþjónustu, póstrekstur og eftirlit með póstþjónustu.
  4. Byggðastofnun

7. Skráningu einstaklinga, lögheimili og aðsetur, þar á meðal:

  1. Þjóðskrá Íslands.
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum