Hoppa yfir valmynd

Stök ræða fyrrum fjármálaráðherra

28. janúar 2011 Fjármála- og efnahagsráðuneytiðSteingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra 2009-2011

Ísland á tímamótum og á réttri leið ! - grein fjármálaráðherra í Fréttablaðinu  26.janúar sl.

Grein fjármálaráðherra, Steingríms J. Sigfússonar, í Fréttablaðinu 26. janúar 2011.

Við áramótin 2010 – 2011 er Ísland á tímamótum í margvíslegum skilningi. Fjárlögin fyrir árið 2011 marka þáttaskil í glímunni við ríkisfjármálin og framvindu þeirrar áætlunar sem unnið er eftir til að gera hin opinberu fjármál sem fyrst sjálfbær á nýjan leik. Á því sviði hefur óumdeilanlega náðst mikill árangur, útkoman bæði árin 2009 og 2010 er betri en áætlanir og fjárlög gerðu ráð fyrir og með fjárlögum ársins 2011 næst sá árangur sem að var stefnt að frumjöfnuður á rekstrargrunni verður jákvæður svo nemur nálægt 1% af þjóðarframleiðslu. Neikvæður heildarjöfnuður upp á um eða innan við 2,5% verður sömu leiðis með því betra sem stefnt er að meðal OECD ríkja sem mörg hver glíma við erfiðleika í efnahags- og ríkisfjármálum.

Þetta skipar Íslandi á bekk með aðeins u.þ.b. 8 OECD löndum sem stefna að jákvæðum frumjöfnuði samkvæmt fjárlögum sínum á árinu. Fjárlögin 2011 og fyrri ráðstafanir ríkisstjórnarinnar innihalda vissulega erfiðar aðgerðir, en þó er óumdeilt að þær hafa verið útfærðar á þann hátt að reynt er að verja hið norræna velferðarsamfélag eins og kostur er og hlífa hinum tekjulægri. Ísland hefur farið sína eigin leið en engu að síður náð þeim árangri sem að var stefnt. Það er skoðun undirritaðs að ábyrg og sjálfbær opinber fjármál eigi að vera kjarninn í stefnu allra félagslega þenkjandi stjórnvalda. Án sjálfbærra opinberra fjármála verður velferðin ekki tryggð til frambúðar.

Sá árangur sem náðst hefur við að innleiða efnahagslegan stöðugleika skapar mikilvægar forsendur fyrir áframhaldandi endurreisn og uppbyggingu Íslands í kjölfar fjármálaáfallsins sem hér varð í október 2008. Verðbólga er nú komin inn fyrir viðmiðunarmörk Seðlabanka Íslands (2,5%), vextir hafa lækkað skarpt og eru nú komnir á viðunandi ról, gengi krónunnar hefur styrkst um ein 12% á síðasta ári og helst stöðugt, atvinnuleysi er minna en spáð var og skuldir ríkissjóðs hafa náð hámarki og stöðvast við mun lægra hlutfall landsframleiðslu en áður var talið (heildarskuldir um 84%, en hreinar skuldir um 43%, án Icesave).

Að baki er árangursrík IV. endurskoðun efnahagsáætlunar íslenskra stjórnvalda í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðin og með stuðningi Norðurlandanna fjögurra, Póllands og Færeyja. Þessi endurskoðun markar einnig tímamót og með henni opnast aðgangur að síðasta hluta gjaldeyrislána sem Ísland getur nú tekið eftir þörfum til að byggja áfram upp gjaldeyrisvaraforða og búa í haginn fyrir framtíðina. Að áfallalausu lýkur samstarfinu við AGS síðsumnars (í ágúst). Að frátöldum þeim töfum sem urðu á framkvæmd efnahagsáætlunarinna af utanaðkomandi orsökum eru allar forsendur til að áætlunin verði talið dæmi um vel heppnaða aðgerð. Ísland hefur aðlagað áætlunina að sínum aðstæðum og pólitísku áherslum og AGS getur notað árangurinn sem skrautfjöður í hattinn og til að bæta sinn orðstý.

Þegar staða Íslands nú er metin er hún á flestan hátt betri en menn gátu gert sér vonir um fyrir tveimur árum síðan. Áhættuálagið á Ísland (cds) hefur lækkað jafnt og þétt og við erum löngu horfin af lista yfir þær þjóðir sem mest hætta er á að ekki ráði við skuldbindingar sínar. Landið er ekki lengur nefnt í því sambandi. Áframhaldandi og jákvæð þróun næstu mánuði gerir raunhæft að ætla að Íslandi opnist almennt aðgangur að alþjóðlegum fjármálamörkuðum innan skamms. Viðsnúningur er orðin í hagkerfinu og hagvöxtur hafinn en óvissan um hve kraftmikill hann verður er að nokkru bundin því hvernig tekst að örva fjárfestingar á komandi mánuðum og misserum. Í þeim efnum eru horfur þó batnandi, útlit er fyrir mikinn vöxt í ferðaþjónustu, ýmsum tækni og þekkingargreinum og hinum skapandi geira. Almennt er útflutnings- og samkeppnisstarfsemin kraftmikil eins og sést á met afgangi af vöru- og þjónustuviðskiptum. Góðar horfur eru á að á næstu vikum og mánuðum verði teknar endanlegar ákvarðanir um nokkur lítil og meðalstór fjárfestingaverkefni sem breikka grundvöll atvinnulífsins og auka fjölbreitni einkum á siði grænnar orkunýtingar.

Ísland er á réttri leið þó vissulega bíði stjórnvalda að glíma áfram við mörg krefjandi verkefni.

 

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra         

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum