Hoppa yfir valmynd

Stök ræða fyrrum fjármálaráðherra

03. maí 2011 Fjármála- og efnahagsráðuneytiðSteingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra 2009-2011

Steingrímur ritar grein um greiðslu sérstakra vaxtabóta

Almenn vaxtaniðurgreiðsla til stuðnings íbúðareigendum

Hátt í þriðjungur landsmanna varð þess var nú um mánaðamótin að lögð var inn á bankareikning þeirra sérstök vaxtaniðurgreiðsla. Þann 1. maí voru greiddar út sérstakar bætur til tæplega 97 þúsund einstaklinga og eru útgjöld ríkissjóðs vegna útgreiðslunnar um 3 mia. kr. (um 5% af heildargreiðslum heimilanna á ári vegna íbúðalána). Síðari hluti útgreiðslu þessa árs verður greiddur út í ágústmánuði.

Að hámarki nemur endurgreiðslan vegna sérstakrar vaxtaniðurgreiðslu 200 þ. kr. hjá einstaklingum en 300 þ. kr. hjá einstæðum foreldrum og hjónum/sambýlisfólki. Þessar greiðslur eru hluti af og í samræmi við þær aðgerðir, sem kynntar voru af hálfu ríkisstjórnar, fjármálafyrirtækja og lífeyrissjóða þann 3. desember 2010, til að mæta skuldavanda heimilanna í kjölfar efnahagshrunsins. Viðræður standa nú yfir milli ríkisins, fjármálafyrirtækja og lífeyrissjóða um leiðir til að tryggja fjármögnun hinna síðartöldu á þessum greiðslum í samræmi við desembersamkomulagið.

Við gerð samkomulagsins var litið til þess að nauðsynlegt væri í kjölfar efnahagshrunsins að koma til móts við fólk með lán vegna húsnæðisöflunar með almennum hætti. Vandi fjölmargra húsnæðiseigenda til skamms tíma er greiðsluvandi og er því aukin útgreiðsla vaxtabóta afar áhrifarík leið til að mæta þeim vanda.

Í heild er gert ráð fyrir að kostnaður vegna vaxtabóta í ár verði um 18 mia. kr. Það þýðir að niðurgreiðsla ríkissjóðs á kostnaði heimilanna vegna húsnæðislána er nálægt 1/3 af gjöldunum (í heild er hann 60 mia. kr.). Ísland er því fremst í flokki OECD-ríkja þegar kemur að vaxtaniðurgreiðslu húsnæðislána, en afar fá, ef nokkur önnur ríki innan OECD eyða rúmlega 1% af landsframleiðslu sinni í slíkar niðurgreiðslur.

Eins og fram hefur komið eru hinar nýju bætur greiddar út til mikils fjölda húsnæðiseigenda. Hinn hefðbundni hluti vaxtabótakerfisins er annars eðlis þar sem í þeim hluta eru innbyggðar tekjuskerðingarreglur. Það þýðir að lág- og millitekjuhópar njóta góðs af honum en í tilviki tekjulægstu hópanna mun vaxtaniðurgreiðsla ríkisins nema um 80% af heildarvaxtagjöldum viðkomandi. Hjá hjónum getur hámarksgreiðsla vaxtabóta numið 900 þúsund krónum en áður en farið var út í skuldaaðgerðir ríkisstjórnarinnar gat sú upphæð að hámarki verið 400 þúsund krónur. Þetta er því meiri en 120% aukning á hæstu útgreiðslu vaxtabóta. Ásakanir þess efnis að ekkert hafi verið komið til móts við skuldsetta íbúðaeigendur eru því harla innistæðulitlar þegar þessar staðreyndar eru ljósar.

Hinar sérstöku vaxtaniðurgreiðslur verða við lýði á árunum 2011 og 2012. Eftir þann tíma er gert ráð fyrir að skuldaúrvinnsluaðgerðum, sbr. hin fjölþættu úrræði sem í boði eru, verði almennt lokið, húsnæðisverð verði þá tekið að hækka og hagvöxtur að skila meiri tekjum og auknum kaupmætti. Þá skiptir ekki litlu máli sá árangur sem náðst hefur við að ná niður vöxtum og verðbólgu, en hvort tveggja mældist um 18% þegar núverandi ríkisstjórn tók við. Þessir tveir þættir, háir vextir og mikil verðbólga, reyndust íbúðaeigendum mjög íþyngjandi. Húsnæðis- og bílakaupalán í erlendri mynt eða með gjaldeyrisviðmiðun eru svo kapítuli út af fyrir sig. Í því tilviki er einnig að greiðast úr málum og því ríkar ástæður til að ætla að erfiðasta tímabil efnahagshrunsins fyrir íbúðaeigendur sé senn að baki. Er það vel.
Höfundur er fjármálaráðherra

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum