Hoppa yfir valmynd

Stök ræða fyrrum fjármálaráðherra

09. maí 2011 ForsætisráðuneytiðJóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra 2009-2013

Lífskjarasóknin er hafin

Þáttaskil hafa nú orðið í endurreisnarferli íslensks efnahagslífs. Tveggja ára samdráttarskeiði, eftir eitt alvarlegasta efnahagshrun hagsögunnar er lokið og hagur landsmanna vænkast nú á ný. Vextir og verðbólga hafa ekki verið lægri í áraráðir og gengi krónunnar er stöðugt. Með undirritun kjarasamninga til þriggja ára á almennum vinnumarkaði hafa skapast mikilvægar forsendur til verja þennan góða árangur og hefja kraftmikla lífskjarasókn fyrir landsmenn.

Með kjarasamningunum og þeim aðgerðum sem ríkisstjórnin hét að beita sér fyrir á grundvelli þeirra er launafólki, lífeyrisþegum og atvinnulausum  tryggðar verulegar kjarabætur og stigið er stórt skref í að bæta kaupmátt almennings eftir þá erfiðleika sem á dundu í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008.

Samhliða auknum kjarabótum fela samningarnir í sér skuldbindingu ríkissjóðs um að fara í verulegar aðgerðir til stóreflingar velferðakerfisins og örvunar í hagkerfinu. Góður árangur ríkisstjórnarinnar við stjórn ríkisfjármála og árangursríkar aðgerðir síðastliðin tvö og hálft ár sem dregið hafa stórlega úr hallarekstri ríkissjóðs gerir það að verkum að hann er í stöðu til að standa að baki launamönnum og atvinnulífi með umfangsmiklum aðgerðum. Með því skapast góð hagvaxtaskilyrði, bætt lífskjör og betra samfélag.

Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar vegna kjarasamningana er viðamikil en helstu atriðin eru þessi:

Betri kjör- aukin menntun - meiri velferð

  • Bætur almannatrygginga verða hækkaðar til samræmis við launahækkanir.
  • Atvinnuleysisbætur verða hækkaðar til samræmis við launahækkanir.
  • Fjármögnun fæðingarorlofssjóðs verður tryggð og staða sjóðsins styrkt.
  • Persónuafsláttur verður hækkaður og verðbættur frá og með 2012.
  • Tekju – og eignatengingar barna- og vaxtabóta verða endurskoðaðar.
  • Árleg framlög til menntakerfisins alls verða aukin um tæpa tvo og hálfan milljarð króna.
  • Heildstætt nám í fjarkennslu verður í boði á framhaldsskólastigi.
  • Sköpuð verða námstækifæri fyrir allt að 1.000 atvinnuleitendur haustið 2011 og næstu tvö skólaár þar á eftir í framhaldsskólum, frumgreinadeildum, háskólum og í framhaldsfræðslu.
  • Starfstengdum úrræðum fyrir atvinnuleitendur verður fjölgað um allt að 1.500 árið 2011 þannig að heildarfjöldi þeirra einstaklinga sem njóta slíkra úrræða tvöfaldist. 
  • Lögum um vinnumarkaðsaðgerðir verður breytt á þann hátt að bótatímabil einstaklinga í starfstengdum úrræðum verður ekki skert.
  • Stofnaður verður þróunarsjóður til að efla starfstengt nám á framhaldsskóla- og háskólastigi og þróa styttri námsbrautir. Í hann verða lagðar 300 m.kr. á ári næstu þrjú árin.
  • Gerðar verða breytingar á lögum til að tryggja réttindi launafólks við aðilaskipti á fyrirtækjum er varða launakjör, starfsskilyrði og vernd gegn uppsögnum.
  • Lögum um opinber innkaup verður breytt til þess að tryggja betur réttindi starfsmanna þeirra sem selja vöru og þjónustu til ríkissjóðs.
  • Starfsendurhæfingarsjóður verður efldur.
  • Nýtt húsnæðisbótakerfi útfært.
  • Til viðbótar þessum kjarabótum hefur þegar verið ákveðið að greiða 18 mia. kr. í vaxtabætur fyrir árin 2011 og 2012 sem gerir í heild 36 mia. kr.
  • Aðgerðum vegna skuldavanda heimila og fyrirtækja verður fylgt eftir af festu.

Örvun atvinnulífsins – sókn í atvinnumálum

  • Stöðugleiki á vinnumarkaði og efnahagslífi verður tryggður með kjarasamningum til þriggja ára.
  • Atvinnuleysi á að lækka í 4-5% á samningstímanum.
  • Útgjöld vegna opinberra framkvæmda verða aukin um 13 mia.til ársloka 2012.
  • Á fjárlögum 2011 er gert ráð fyrir 21 mia.kr. í opinberar framkvæmdir.
  • Atvinnutryggingagjald fyrirtækja verður lækkað úr 3,81% niður í allt að 2,15% á samningstímabilinu í takt við þróun atvinnuleysis.
  • Fjármálaráðherra mun leggja fram tillögur til lagabreytingar á vorþingi sem miðar að einfaldara og bættu skattaumhverfi fyrirtækja og einstaklinga í rekstri.
  • Ný fjárfestingaráætlun miðar að því að auka fjárfestingar úr 13% af landsframleiðslu í 20% á tímabilinu.
  • 300 m.kr. verður varið árlega næstu þrjú árin til markaðssetningar erlendis á Íslandi sem eftirsóknarverðs ferðamannastaðar.
  • Rammááætlun og vatnalög verða afgreidd fyrir næsta vetur.
  • Stefnt að amk tveimur umfangsmiklum fjárfestingaverkefnum í orkufrekum iðnaði.
  • Átakið allir vinna framlengt, amk út árið 2012.
  • Efnt til klasasamstarfs og samkeppnissjóðir á sviði menntamála, heilbrigðis- og velferðarmála, orku- og umhverfismála efldir.
  • Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins efldur til fjárfestinga í sprotafyrirtækjum og Tækniþróunarsjóði gert kleift að aðstoða fyrirtæki í hugbúnaðar- og hátækni til að auka útflutning.

Nýtum sóknarfærin

Hér er aðeins drepið á helstu sóknarfærin sem nýgerðir kjarasamningar og yfirlýsing ríkisstjórnarinnar fela í sér fyrir land og þjóð. Stóra tækifærið fyrir Ísland, bæði fyrirtækin, heimilin og okkur öll sem þjóð,  liggur hinsvegar í því að nýta þau þáttaskil sem nú eru orðin í þróun efnahagslífins og í endurreisnarstarfinu frá hruni til að sækja sameiginlega fram. Segjum nú skilið við hugarfar kreppu og hruns, horfum bjartsýnum augum á þá óþjótandi möguleika sem Ísland býður uppá og tökum til hendinni við uppbyggingarstarfið. Nú eru sóknarfærin svo sannarlega til staðar og okkar allra er að nýta þau.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum