Hoppa yfir valmynd

Stök ræða fyrrum fjármálaráðherra

10. nóvember 2011 Fjármála- og efnahagsráðuneytiðSteingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra 2009-2011

Nýsköpun í atvinnumálum - grein ráðherra

Áhrif laga um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki í formi skattaafsláttar eru nú að koma í ljós. Heildarfjárhæð skattaafsláttarins vegna umsvifa fyrirtækja sem starfa á sviði nýsköpunar, rannsókna og þróunar á árinu 2010 nam hátt í hálfum milljarði króna. Af því tilefni lagði fjármálaráðherra nýverið fram minnisblaði í ríkisstjórn um niðurstöðuna og skrifaði grein þann 9. nóvember í Fréttablaðið um áhrif laganna. Grein ráðherra birtist hér.

Áhersla ríkisstjórnar VG og Samfylkingar í atvinnumálum hefur m.a. verið að styðja við nýsköpun og vöxt sprotafyrirtækja sem lið í að auka fjölbreytni og leggja grunn að heilbrigðum og sjálfbærum vexti efnahagslífsins. Slík nýsköpun er ekki og á ekki að vera bundinn við einkageirann og þannig voru t.d. afhent á dögunum fyrstu verðlaunin og viðurkenningar fyrir nýsköpun í starfsemi og rekstri hjá hinu opinbera. Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að umhverfi sprota – og nýsköpunarfyrirtækja verði bætt með breytingu á skattalögum þannig að styðja megi við bakið á rannsóknar- og og þróunarstarfi. Við þetta hefur verið staðið og nú liggur árangurinn eftir fyrsta heila árið fyrir.

Í október 2009 lagði undirritaður fram frumvarp til laga um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki í formi skattaafsláttar. Frumvarpið varð að lögum nr. 152/2009 og er markmið þeirra að efla rannsóknir og þróunarstarf og bæta samkeppnisskilyrði nýsköpunarfyrirtækja. Lögin tóku gildi á árinu 2010 og ná þá í fyrsta sinn til heils rekstrarárs. Áhrif skattafsláttarins koma hins vegar ekki fram fyrr en nú í lok október 2011 við álagningu opinberra gjalda á lögaðila vegna rekstrarársins 2010. Í grófum dráttum er afslátturinn allt að 20% af útlögðum kostnaði vegna rannsókna og þróunar hjá nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum sem fengið hafa staðfestingu Rannís sem slík, þó upp að ákveðnu hámarki. Afslátturinn er útborganlegur að því marki sem hann er hærri fjárhæð en þau opinberu gjöld sem lögð eru á umsækjanda skattafsláttarins eftir hefðbundna skuldajöfnun.

 Nú liggur fyrir að heildarfjárhæð skattaafsláttarins vegna umsvifa á þessu sviði á árinu 2010 nam hátt í hálfum milljarði króna.

 Alls áttu 53 lögaðilar rétt á skattafslætti vegna kostnaðar við nýsköpun á árinu 2010 samkvæmt álagningu ársins 2011. Flest fyrirtækin, eða 48 talsins, fengu alla afsláttarfjárhæðina endurgreidda, eða samtals 440,9 m.kr. Af fyrirtækjunum 53 eru 39 skráð í Reykjavík, 13 í skattumdæmi Reykjaness og eitt fyrirtæki á Vest­fjörðum. Meðalafsláttur á fyrirtæki er 9,2 m.kr sem þýðir að meðalstærð verkefnis er 46 m.kr. Þegar rýnt er í skiptingu skattafsláttarins eftir atvinnugreinum má sjá svart á hvítu þá ánægjulegu staðreynd að  fyrirtæki sem starfa við nýsköpun og hlotið hafa skattaafsláttinn starfa á mjög fjölbreyttu sviði. Mjög mörg þeirra fást við hugbúnaðargerð eða hugbúnaðar tengda starfsemi og taka þau til sín yfir 40% allrar endurgreiðslnanna. Einnig er gróska t.d. í rannsóknar- og þróunarstarfi í líftækni, verkfræði og tækjaframleiðslu á búnaði til prófana og leiðsagnar og verkefnum á sviði matvælaframleiðslu og sorpsöfnunnar. Svona mætti lengi áfram telja.

En stuðningur við nýsköpun er að sjálfsögðu ekki eingöngu fólgin í skattafslætti vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar. Allt starfsumhverfið og stuðningskerfið skiptir þar máli. En, skattaafslátturinn er viðbót og með honum eykst stuðningur ríkissjóðs verulega við nýsköpunarfyrirtæk, ekki síst í ljósi þess að stærstur hluti fjárhæðarinnar er greiddur út sem beinn styrkur. Til samanburðar er framlag ríkissjóðs til Tækni­þróunar­sjóðs, sem einnig hefur það hlutverk að styðja við rannsóknir, þróun og nýsköpun í þágu atvinnulífsins, samtals 720 m.kr. í fjárlögum ársins 2011. Það þýðir að skattafslátturinn nemur tveimur þriðju hlutum af framlagi Tækniþróunarsjóðs og eykur þar með beint framlag ríkisins til nýsköpunarfyrirtækja um rúmlega 67% á þessu ári. Samanlögð framlög ríkisins til rannsókna, þróunar og nýsköpunar í þágu atvinnulífsins gegn um þennan tvíþætta farveg, nema því 1.205,6 m.kr. á árinu 2011.

Með öðrum orðum, það verður tæpast annað sagt en að umrædd lög um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki hafi náð yfirlýstum tilgangi sínum um að örva nýsköpun, fjölga störfum og stuðla að verðmætaaukningu í efnahagslífinu. Landfræðileg dreifing umsækjenda er að vísu nokkuð umhugsunarefni en vonandi fjölgar enn í hópi þeirra sem nýta sér þennan möguleika í ár og fyrirtæki út öllum landshlutum verða með þegar gert verður upp að ári.

 Á tímum þegar samfélagsleg umræða einkennist á köflum óhóflega mikið af sundurlyndi og bölmóði, ekki síst í umfjöllun um atvinnumál, er ekki úr vegi að vekja athygli á því sem vel er að takast. Hér hefur ríkisstjórnin sannarlega staðið við sitt og mætt jákvæðu andrúmslofti og samstarfsvilja þeirra sem mest sýsla við nýsköpunar- og þróunarmál. Þannig þarf að sameina kraftana á fleiri sviðum og leggja sameiginlega lóð á vogarskálar uppbyggingar og bjartsýni.


Höfundur er fjármálaráðherra.

                                         

 

 

 

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum