Hoppa yfir valmynd

Stök ræða fyrrum fjármálaráðherra

19. janúar 2012 Fjármála- og efnahagsráðuneytiðOddný G. Harðardóttir, fjármála- og efnahagsráðherra 2011-2012

Lækkun skattbyrðar - grein fjármálaráðherra

Oddný G. Harðardóttir, fjármálaráðherra, birti grein í Fréttablaðinu þann 18. janúar. Greinin fjallar um samanburð á tekjuskattbyrði einstaklinga síðastliðin ár og hversu mikilvægt það er að þeir útreikningar og forsendur sem notast er við í skattaumræðunni séu réttir. Greinina má lesa hér.

Tryggvi Þór Herbertsson þingmaður skrifar grein í Fréttablaðið í fyrradag þar sem hann ber saman tekjuskattbyrði einstaklinga fyrir árin 2009 annars vegar og 2012 hinsvegar.  Í skrifum sínum gerir Tryggvi Þór þau algengu mistök að reikna áhrif tekjuskattsþreps á þann hluta tekna sem eru undir tekjuskattsþrepinu og fær því út nokkuð bjagaða mynd.  Þannig reiknar hann hæstu tekjuskattsprósentu á einstakling með 800 þúsund krónur í mánaðarlaun á alla upphæðina í stað þess að reikna hátekjuprósentuna á það sem hann fær umfram 704.367 krónur. Til viðbótar gleymir hann í útreikningum sínum hækkun persónufrádráttar sem tók gildi nú um áramótin.

Línuritið sem Tryggvi Þór birtir er hinsvegar mjög gagnlegt fyrir umræðuna ef það er haft rétt. Þess vegna fylgir slík útgáfa hér borin saman við niðurstöður Tryggva Þórs (TÞH)  

Eins og sést á línuritinu þá hefur skatthlutfall  á meðal- og lægritekjur lækkað, en aukist á hærri tekjur  líkt og haldið hefur verið fram og stutt með útreikningum fjármálaráðuneytis,fræðimanna, Hagstofunnar og í úttekt Tíundar, tímariti Ríkisskattstjóra Það er því ljóst að  skattbyrði flestra hefur tvímælalaust lækkað eftir að ráðist var í skattkerfisbreytingar í tíð núverandi ríkisstjórnar og auknar byrðar settar á hærri tekjur. Fullyrðingar Tryggva Þórs um að skattbyrði allra hafi aukist eru rangar.   

Umræðan um skattamál hér á landi er mikils virði ef útreikningar og forsendur  sem notast er við eru réttar. Skattborgarar eiga skilið vandaða umræðu um þetta mikilvæga mál.

Oddný G. Harðardóttir
Fjármálaráðherra

Samanburður á skattbyrði áranna 2012 og 2009


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum