Hoppa yfir valmynd
10. júlí 2023 ForsætisráðuneytiðKatrín Jakobsdóttir

Sjálf­bært Ís­land og smit­á­hrif okkar á heims­vísu - Grein Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra á Vísi 6. júlí 2023

Sjálfbær þróun er eitt mikilvægasta viðfangsefni okkar tíma. Hún snýst um að við ofnýtum ekki auðlindir jarðar, svo að það komi niður á lífsgæðum komandi kynslóða. Á síðustu fimmtíu árum hefur hallað mjög á ógæfuhliðina í þessum efnum. Árið 1970 dugði ársskammtur af auðlindum jarðar í eitt ár, þannig að ekki var gengið á höfuðstólinn. Núna er staðan hins vegar sú að árskammtur af auðlindum er uppurinn í byrjun ágúst og gæðin því ofnýtt sem því nemur. Skuldin fellur á framtíðarkynslóðir ef ekkert verður að gert. Þjóðir með hátt neyslustig, eins og Ísland, ganga enn hraðar á innstæðuna.

Sameinuðu þjóðirnar hafa lagt ríka áherslu á að þessari þróun verði snúið við.Árið 2015 settu þær fram metnaðarfull markmið um sjálfbæra þróun sem Ísland á aðild að. Í forsætisráðuneytinu hefur nú verið settur á fót sérstakur vettvangur, Sjálfbært Ísland, til að vinna markvisst að framgangi þessara markmiða og mótun stefnu um sjálfbært Ísland í breiðu samfélagslegu samráði.

Heimsmarkmiðin um sjálfbæra þróun eru 17 talsins og ætlunin er að þeim verði náð árið 2030. Við erum því hálfnuð á þeirri vegferð. Um miðjan júlí mun Ísland kynna stöðu sína gagnvart heimsmarkmiðunum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna í annað sinn. Eitt af því sem Ísland hefur lagt áherslu á, samhliða gerð stöðuskýrslu til Sameinuðu þjóðanna, er að vekja athygli á svokölluðum neikvæðum smitáhrifum eða (negative spillover effects) á sjálfbæra þróun heimsins. Smitáhrif verða m.a. þegar auðugri þjóðir með hátt neyslustig, eins og við Íslendingar, flytja inn vörur frá efnaminni löndum og geta með því haft margvísleg neikvæð smitáhrif á umhverfi, samfélag, efnahag og öryggi. Slíkt dregur úr sjálfbærri þróun í viðkomandi landi. Umræðan um smitáhrif hefur hingað til ekki verið mikil. Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands hefur nú að beiðni íslenskra stjórnvalda gert úttekt smitáhrifum Íslands og lagt mat á til hvaða aðgerða þurfi að grípa til þess draga úr þeim. Þar kemur fram að m.a. þurfi að setja fram skýra framtíðarsýn, greina betur neikvæð smitáhrif Íslands en þar vega neysla og innflutningur þyngst, efla hringrásarhagkerfið og auka framlag Íslands til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu.

Ísland mun standa fyrir sérstökum hliðarviðburði um smitáhrif í tengslum við ráðherrafund Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun þann 11. júlí næstkomandi kl. 14:00 og fylgjast má með honum á vefsíðu Sjálfbærs Íslands . Þar verður ítarleg umfjöllun um smitáhrif og rætt við innlenda og erlenda sérfræðinga á sviði sjálfbærrar þróunar með það að markmiði að vekja upp umræðu um smitáhrif á alþjóðavettvangi og hvað stjórnvöld og samfélög þurfi að gera til þess að draga úr þeim eins og kostur er.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum