E. Lög og reglur |
Lýsing á aðgerð
Gerðar verði breytingar á reglugerð nr. 441/2006, um söfnun, meðferð, varðveislu og dreifingu blóðs, og viðauka IV við sömu reglugerð í því skyni að afnema mismunun gagnvart samkynhneigðum þegar kemur að blóðgjöf.
Markmið aðgerðarinnar verði að afnema mismunun sem blóðgjafar hafa sætt á grundvelli kynhneigðar.
Tímaáætlun: 2022–2023.
Ábyrgð: Heilbrigðisráðuneyti.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Markmið 3.8 og 5.6.
Staða verkefnis í október 2024: Hafin verður svokölluð NAT skimun (e. Nucleic Acid Test) á öllu blóði þann 1. júlí 2025. Skimunin felur í sér greiningu á lifrabólgu B (HBV), lifrabólgu C (HCV) og eyðniveiru 1 og 2 (HIV) í gjafablóði. Í framhaldi af skimuninni mun heilbrigðisráðuneytið setja í forgang að afnema bann um blóðgjafir karla sem stunda kynlíf með körlum.
Ábyrgð
Heilbrigðisráðuneytið
Lokið