F. Alþjóðastarf |
Lýsing á aðgerð
Utanríkisráðuneyti nýti áfram öll tækifæri til að leggja ríka áherslu á mannréttindi hinsegin fólks í alþjóðlegu samstarfi og í samskiptum við önnur ríki og leitist þannig við að hafa jákvæð áhrif á stöðu hinsegin fólks um allan heim. Stjórnvöld nýti sér þá stöðu og reynslu sem Ísland hefur þegar kemur að réttindum og félagslegri stöðu hinsegin fólks til að auka vernd og réttindi þess annars staðar í heiminum.
Markmið aðgerðarinnar verði að stjórnvöld leggi sérstaka áherslu á réttindi hinsegin fólks í utanríkisstefnu Íslands.
Tímaáætlun: 2022–2025.
Ábyrgð: Utanríkisráðuneyti.
Kostnaðaráætlun: Rúmist innan fjárheimilda.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Aðalinntak heimsmarkmiðanna um að engir einstaklingar eða hópar verði skildir eftir.
Staða verkefnis: Ísland hefur unnið í samræmi við aðgerðina á gildistíma áætlunarinnar.
Ísland hefur m.a:
- Gefið öllum aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna sem taka þátt í allsherjarúttekt mannréttindaráðsins tilmæli um réttindi hinsegin fólks.
- Flutt og tekið þátt í sameiginlegum ræðum um réttindi hinsegin fólks á vettvangi alþjóðastofnana.
- Lagt sérstaka áherslu á réttindi hinsegin fólks í setu Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna 2025-2027.
- Stutt við átaksverkefni skrifstofu mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna (OHCHR) vegna baráttu fyrir réttindum hinsegin fólks hvarvetna í heiminum (UN Free & Equal).
Ábyrgð
Utanríkisráðuneytið
Komið vel á veg